NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samræmd könnunarpróf í 10. bekk 2012

Fyrstu niðurstöður með landshlutameðaltölum úr samræmdum könnunarprófum í 10. bekk liggja fyrir.Námsmatsstofnun hefur sent skólastjórum í grunnskólum landsins niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum í 10. bekk, sem haldin voru í september sl. Prófað var í íslensku, ensku og stærðfræði. Árangurinn er svipaður og í könnunarprófunum í fyrra en þó má greina framfarir og hærri meðaltöl í normaldreifingu einkunna í flestum landshlutum.