NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Prófsýning vegna prófs til viðurkenningar bókara í skattskilum og upplýsingatækni

 

Prófsýning verður haldin dagana 14. og 15. nóvember kl. 16-18 í húsnæði Endurmenntunar HÍ að Dunhaga 7, 107 Reykjavík.  Próftaki þarf að skrá sig á prófsýningu á þar til gerðu skráningarformi á eftirfarandi slóð   http://endurmenntun.is/namsframbod/namsbrautir/profsyning

Ekki þarf að greiða fyrir prófsýninguna þótt skráningarformið gefi það til kynna en það er víst staðlað form.

Prófsýning er haldin til þess að gefa próftaka færi á að sjá hvað fór úrskeiðis hjá honum.  Á prófsýningunni verður Inga Jóna Óskarsdóttir fulltrúi prófnefndar viðurkenndra bókara ásamt prófgerðarmönnunum Soffíu Eydísi Björgvinsdóttur og Guðrúnu Björg Bragadóttur.

Vinsamlegast skráið ykkur á prófsýninguna fyrir lok mánudagsins 12. nóvember n.k.