Tölfræðilegar
upplýsingar um konur og karla á Íslandi
JafnréttisstofaJafnréttisstofa gefur út bæklinginn Konur og karlar á Íslandi 2013 í samstarfi við við Hagstofu Íslands og velferðarráðuneyti. Um er að ræða samantekt á helstu tölum um hlutfall kynjanna í ýmsum málaflokkum. Í bæklingnum er meðal annars að finna upplýsingar um stöðu kynjanna á atvinnumarkaði, í menntakerfinu og í áhrifastöðum, ásamt upplýsingum um mannfjölda, fjölskyldur og fæðingarorlof. Bæklingurinn veitir ákveðna yfirsýn yfir stöðu jafnréttismála á Íslandi og er hann einnig gefinn út á ensku.
Bæklinginn er hægt að nálgast í heilu lagi á pdf-formi, bæði í íslensku og ensku. Einnig er hægt að panta eintök hjá Jafnréttisstofu jafnretti[at]jafnretti.is