Efling almenningssamgangna ekki aðeins skynsamleg heldur nauðsynleg
Samferða skynseminni var yfirskrift upphafserindis Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra á málþingi ráðuneytis og Vegagerðarinnar, Stuð í strætó, sem haldið var í Reykjavík í dag. Þar var fjallað um framtíðarsýn og stefnu almenningssamgöngum og hvernig unnið hefur verið að breyttu skipulagi og samræmingu þeirra innan sveitarfélaga og milli sveitarfélaga undanfarin misseri.

Í erindi sínu sagði innanríkisráðherra að almenningssamgöngur á Íslandi hefðu verið í skötulíki, kerfið hefði ekki verið gott og fólk hefði að miklu leyti verið háð einkabílnum. Hann benti á að kostnaður við samgöngur væri sífellt dýrari hluti heimilishaldsins og leggja yrði meira uppúr almenningssamgöngum í stað rándýrra einkalausna sem einkabíllinn óneitanlega væri. ,,Og varðandi skipulagið hljótum við að spyrja hvort við ætlum að láta einkabílinn ráða inn í framtíðina skipulagingu byggða og byggðarlaga í þeim mæli sem allt stefnir í ef ekkert er að gert,” sagði ráðherrann meðal annars. Hann sagði skynsemisrök hníga í þá átt að lagt væri meira uppúr almenningssamgöngum en gert hefði verið, aðeins stórátak dygði í þeim efnum.
,,Ég leyfi mér að fullyrða að við stöndum frammi fyrir byltingu í almenningssamgöngum. Þetta á við á höfuborgarsvæðinu þar sem varið verður milljarði á ári til viðbótar þeim fjármunum sem þegar renna til almenningssamgangna. Ég hef sagt að þetta séu okkar jarðgöng hér á höfuðborgarsvæðinu – eða ígildi þeirra.”
Í lok máls síns sagði ráðherra að efling almenningssamgangna væri ekki bara skynsamleg heldur lífsnauðsynleg ef ætlunin væri að stuðla að hagkvæmri nýtingu fjármuna og vistvænna og heilbrigðara samfélagi.
Hér að neðan er listi yfir erindi þeirra sem studdust við glærukynningar:
-
Almenningssamgöngur - raunhæfur kostur um allt land? Hreinn Haraldsson vegamálastjóri -
Hvað gerir Strætó við aurinn? Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó -
Hvert þarftu að komast? Einar Kristjánsson, skipulags- og þróunarsviði Strætó -
Svona gerum við: Úr öllum áttum í eitt kerfi. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Austurbrú -
Ferðast milli hverfa: Almenningssamgöngur í Eyjafirði. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri -
Borg fyrir fólk: Umhverfi, skipulag og aðrir samgöngumátar. Kristín Soffía Jónsdóttir, umhverfis- og skiplagsráði Reykjavíkur -
Samgöngustefna fyrirtækja: Hvað er hún og hverju skilar hún? Þorsteinn R. Hermannsson, samgönguverkfræðingur hjá Mannviti
