NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Landbúnaðarráðherra á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra hélt í morgun til Berlínar til að vera viðstaddur lokahelgina á heimsmeistaramóti íslenska hestsins þar sem að keppnislið frá 17 löndum leiða saman hesta sína.
Heimsmeistaramótið hefur vakið mikla athygli og má ljóst vera að mikil markaðstækifæri eru því samfara.
Á föstudaginn mun Sigurður Ingi m.a. funda með forsvarsmönnum FEIF (alþjóðasamtökum íslenska hestsins) um stöðu íslenska hestsins á heimsvísu og sóknarfæri fyrir hestamennsku á íslenskum hestum.