NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn

Árið 2014 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum.

Árið 2014 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar. Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni www.norden.se.


  • Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2014 og skal skila umsóknum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu sjóðsins.
  • Styrkjum verður úthlutað í apríl nk.

    Stjórn sænsk- íslenska samstarfssjóðsins, 17. desember 2013.