NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Viðmiðunarfjárhæð eignamarka vegna húsaleigubóta


Fjölbýli
Fjölbýli

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, og 7. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, tekur viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á neysluverðsvísitölu.

Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hækkaði neysluverðsvísitalan um 4,2% frá ársbyrjun 2013 til ársbyrjunar 2014.

Frá og með 1. janúar 2014 er uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta 6.927.000 kr.