NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Utanríkisráðuneytið

Ráðherra fundar með varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna 


Gunnar Bragi og Bob Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna
Gunnar Bragi og Bob Work

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Robert O. Work varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna áttu í morgun fund, en Work er staddur hér á landi í stuttri heimsókn. Hann heimsækir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli áður en hann heldur af landi brott. 

Á fundinum ræddu ráðherrarnir tvíhliða öryggis- og varnarmálasamstarf Íslands og Bandaríkjanna sem gagnkvæmur áhugi er á að efla frekar. Þá ræddu ráðherrarnir málefni norðurslóða, en Bandaríkin gegna formennsku í Norðurskautsráðinu næstu tvö árin. Gunnar Bragi reifaði yfirstandandi vinnu stjórnvalda við hugsanlega viðbragðs- og björgunarmiðstöð á Íslandi og sagði norðurslóðir vera kjarnamál í utanríkisstefnu Íslands. Málefni Úkraínu og samskiptin við Rússland voru ennfremur til umræðu, sem og staða mála við botn Miðjarðarhafs og straumur flóttamanna til Evrópu.