NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greinargerð um umbætur á löggjöf á fjármálamarkaði

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman greinargerð um þær umbætur á löggjöf á fjármálamarkaði sem eru fyrirhugaðar á yfirstandandi löggjafarþingi. Fjármála- og efnahagsráðherra stefnir að því að leggja fram nokkur viðamikil frumvörp í vetur sem breyta og bæta umgjörð fjármálaþjónustu.

Er þar fram haldið vinnu við umbætur sem staðið hefur undanfarin ár.  Á síðasta þingvetri voru t.d. gerðar grundvallarbreytingar á lagaumgjörð fjármálafyrirtækja með breytingum á lögum nr.  161/2002, um fjármálafyrirtæki, sem færa umgjörð íslenskra banka nær því sem þekkist meðal annarra þróaðra hagkerfa.

Meginmarkmið löggjafarvinnu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á sviði fjármálaþjónustu er að stuðla að virkum fjármálamarkaði þar sem einstaklingum og fyrirtækjum stendur til boða þjónusta og fjármagn sem tryggir vöxt og viðgang raunhagkerfisins án þess að efnahags- og fjármálalegum stöðugleika sé ógnað á sama tíma og réttur neytenda er tryggður.