NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Dómsmálaráðuneytið

Kjörstöðum fjölgað vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Samkvæmt samkomulagi sem sýslumenn og Samband íslenskra sveitarfélaga gerðu hafa nokkur sýslumannsembætti, í samvinnu við sveitarfélög, fjölgað kjörstöðum til að auðvelda íbúum í umdæmum sínum að greiða atkvæði utan kjörfundar.

10. október síðastliðinn bættust við sex kjörstaðir í umdæmi sýslumannsins á Suðurlandi. Áður höfðu sýslumennirnir á Norðurlandi vestra og á Austurlandi auglýst aukna þjónustu í samvinnu við sveitarfélög. Fleiri sýslumannsembætti munu bætast í hópinn þegar nær dregur kosningum.

Upplýsingar um kjörstaði vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu eru uppfærðar reglulega á vefsíðu sýslumanna.