Þriðji fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025
Þriðji fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025 fór fram miðvikudaginn 8. október.
Á fundinum var farið yfir stöðu og horfur í fjármálakerfinu og hagkerfinu almennt og gerði Seðlabankinn grein fyrir helstu áhættuþáttum. Niðurstöður árlegs álagsprófs Seðlabankans gefa til kynna að kerfislega mikilvægu bankarnir séu vel í stakk búnir til að mæta óvæntum áföllum. Í fyrsta skipti voru forsendur sviðsmyndarinnar sem lá til grundvallar álagsprófinu sambærilegar við þær sem Evrópska bankaeftirlitsstofnunin notar í álagsprófi á evrópskar bankasamstæður. Varalausnir í greiðslumiðlun voru til umfjöllunar, þar á meðal innviður Seðlabankans fyrir smágreiðslubeiðnir.
Sérstaklega var fjallað um ríkisfjármál frá sjónarhóli fjármálastöðugleika. Þá var rætt um æskilega stefnumörkun á sviði fjármálastöðugleika. Loks var farið yfir svæðisbundna samvinnu við erlenda aðila um rekstraröryggi fjármálainnviða og fjármálaþjónustu.
Á fundinum var gerð grein fyrir störfum skilavalds.