{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Utanríkisráðuneytið

Þorgerður Katrín fundaði með Selenskí

{image.Description}
Forsetaskrifstofa Úkraínu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tekur á móti Volodómír Selenskí Úkraínuforseta við komuna til landsins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fund með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta á Keflavíkurflugvelli síðdegis í dag.

„Við áttum upplýsandi og einlægt samtal um stöðu mála og ég undirstrikaði staðfastan stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu gegn landvinningastríði Rússlands,“ segir Þorgerður Katrín. „Við hlustum á óskir Úkraínu um stuðning og íslensk stjórnvöld munu halda ótrauð áfram að veita þeim nauðsynlegan varnar-, efnahags – og mannúðarstuðning, einkum sem lýtur að loftvörnum og á sviði orkumála enda horfir úkraínska þjóðin því miður fram á harðan vetur.“

Íslensk stjórnvöld hafa stutt dyggilega við Úkraínu á sviði orkumála meðal annars með framlögum í sérstakan orkusjóð og þá hafa íslensk orkufyrirtæki gefið varahluti og búnað svo Úkraínumenn geti viðhaldið orkuinnviðum sínum sem verða fyrir gengdarlausum árásum Rússa.

Ásamt Selenskí tóku þátt í fundinum orkumálaráðherrann Denys Shmyhal og Rustem Umerov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, sem meðal annars vinnur að því að efla samstarf um loftvarnir meðal Evrópuríkja.