{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Dómsmálaráðuneytið
Umsóknir um embætti dómara við Landsrétt
21. ágúst síðastliðinn auglýsti ráðuneytið laus til umsóknar tvö embætti dómara við Landsrétt.
Annars vegar er þetta skipun í embætti dómara við Landsrétt sem skipað verður í hið fyrsta eftir að dómefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara skilar umsögn sinni til ráðherra.
Hins vegar er þetta setning í embætti dómara við Landsrétt. Sett verður í það embætti hið fyrsta eftir að dómnefnd skilar ráðherra umsögn sinni, til og með 28. febrúar 2029.
Síðasti dagur umsóknarfrests var 7. september 2026.
Umsækjendur um bæði embættin eru:
- Björn L. Bergsson héraðsdómari,
- Halldóra Þorsteinsdóttir héraðsdómari,
- Hulda Árnadóttir héraðsdómari,
- Ragnheiður Snorradóttir héraðsdómari,
- Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari
Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar á næstu dögum.