{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra lagði áherslu á mikilvægi EES-samningsins

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt starfsfólki ráðuneytisins og fulltrúum aðildarríkja Evrópusambandsins.

Fulltrúar aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB), sem eiga sæti í starfshópi innan ráðs ESB sem ber m.a. ábyrgð á samskiptum Íslands við sambandið og framkvæmd EES-samningsins (e. EFTA Working Party), heimsóttu Ísland í vikunni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók á móti hópnum í utanríkisráðuneytinu og lagði í ávarpi sínu áherslu á mikilvægi EES-samstarfsins.

„Við metum mikils okkar góða samstarf við Evrópusambandið og aðildarríki þess. Það er rótgróið og byggir á 30 ára velgengni í gegnum EES-samninginn, Schengen og annað samstarf,“ sagði Þorgerður Katrín í ávarpi sínu. „Íslensk stjórnvöld eru staðráðin í efla og styrkja þetta góða samband enn frekar, og ég get fullvissað ykkur um að Ísland er traustur og áreiðanlegur samstarfsaðili.“

Á meðan Íslandsdvölinni stóð fengu fulltrúarnir innsýn í áherslur Íslands á sviði efnahags-, viðskipta-, utanríkis-, og varnarmála. Þá heimsótti hópurinn höfuðstöðvar Brim í Reykjavík, Hellisheiðarvirkjun, Carbfix, Friðheima og gerði sér ferð á Þingvelli.

Auk fulltrúanna tók starfsfólk ESB ráðsins, framkvæmdastjórnar ESB og utanríkisþjónustu sambandsins þátt í heimsókninni.