15. mar. 2025Atvinnuvegir, Dýravelferð, Fiskeldi, Lagareldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Verslun, Viðskipti, Auðlindir, Atvinnuvegaráðuneytið
Atvinnuvegaráðuneytið tekur til starfa
Atvinnuvegaráðuneytið tók til starfa 15. mars árið 2025.
Ráðuneytið byggir á grunni þeirra málefna sem heyrðu undir matvælaráðuneytið; sjávarútveg, landbúnað lagareldi, matvæli og matvælaöryggi. Að auki hafa málefni viðskipta, neytendamála og ferðamála hafa verið færð til ráðuneytisins frá fyrrum menningar- og viðskiptaráðuneyti ásamt málefnum iðnaðar sem voru færð frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Málefni skógræktar og landgræðslu sem heyrðu undir matvælaráðuneyti voru færð til umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytis.