Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Hagsýn í rekstri
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1–50 af 52
    Raða eftir:
    27. ágú. 2026Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri, Forsætisráðuneytið

    Hagsýni í ríkisrekstri

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið Forsætisráðuneytið Hagsýni í ríkisrekstri Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er kveðið skýrt á um eitt af forgangsverkefnum kjörtímabilsins: Að hagræða í ríkisrekstri, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Með þessi markmið að leiðarljósi hefur Stjórnarráðið hrint af stað viðamiklu umbótaverkefni sem unnið verður að á næstu árum. 1

    29. jan. 2026Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Forsætisráðherra leggur til verulega lækkun handhafalauna

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingu á ​lögum um laun forseta Íslands og lögum um Stjórnarráð Íslands. Með frumvarpinu er lögð til veruleg lækkun launa handhafa forsetavalds, úr samtals um 10 milljónum á ári niður í fasta greiðslu upp á 300 þúsund krónur. Greiðslurnar dragast þannig saman um 97 prósent.

    17. des. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Skýrsla vinnuhóps um hagsýni í ríkisrekstri – um helmingur tillagna hagræðingarhóps verði að veruleika

    Vinnuhópur forsætisráðherra um hagsýni í ríkisrekstri hefur skilað skýrslu um störf sín og framgang verkefna. Samkvæmt núgildandi fjármálaáætlun verður hagrætt í ríkisrekstri um 107 milljarða króna á tímabili áætlunarinnar frá 2026-2030 og þar af um ellefu milljarða króna á næsta ári.

    11. des. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland, Hagsýn í rekstri

    Ánægja og notkun eykst stöðugt

    Sífellt fleiri nýta sér þjónustu Ísland.is og ánægja og þekking eykst jafnt og þétt milli ára. Fólki sem notar vefinn reglulega fjölgar hratt. Almennt mælist þekking, notkun og ánægja vel í öllum hópum, hvort sem horft er til aldurs, búsetu, menntunar eða tekna, samkvæmt nýrri könnun Gallup um Ísland.is, Mínar síður og Stafræna pósthólfið.

    09. des. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Hagsýn í rekstri

    Áformað að afnema áminningarskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

    Áform um breytingar á starfsmannalögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Áformað er að afnema áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar, annars vegar, og lausnar um stundarsakir, hins vegar. Jafnframt eru áform um breytingar á ákvæðum starfsmannalaga um setningu í embætti, auglýsingaskyldu og greiðsludag launa.

    21. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Hagsýn í rekstri

    Frumvarp um skýrslugjöf í stað jafnlaunavottunar afgreitt úr ríkisstjórn

    Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna var afgreitt úr ríkisstjórn í dag. Í frumvarpinu er lagt til að jafnlaunavottun verði lögð niður í núverandi mynd án þess þó að hvikað verði frá markmiðum um að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns.

    18. nóv. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Skipulagsmál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Hagsýn í rekstri

    Mælti fyrir frumvarpi um eina öfluga stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi sem felur í sér að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sameinist. Með sameiningunni verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar.  Um 150 manns starfa hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur stöðum á landinu og um 25 manns hjá Skipulagsstofnun. Sameiningunni er ætlað að auka bolmagn hins opinbera í skipulagsmálum og ná bæði fram samlegðaráhrifum og meiri samþættingu málaflokka á sama sviði.

    17. nóv. 2025Innviðaráðuneytið, Samgöngur, Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskipti, Hagsýn í rekstri

    Taktu þátt í að einfalda regluverk og bæta þjónustu hins opinbera

    Innviðaráðuneytið og stofnanir þess óska eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk og bæta þjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess.

    17. nóv. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Hagsýn í rekstri

    Sameining Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra áformar að leggja fram á vorþingi 2026, frumvarp þar sem lagt er til að Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verði sameinaðar í eina stofnun. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir tilfærslu á verkefnum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga hvað varðar eftirlit með matvælum til stofnunarinnar. Áform frumvarpsins eru í samræmi við áherslur sem birtast í stjórnarsáttmála um einföldun stjórnsýslu, hagræðingu í ríkisrekstri og aukna skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.

    17. nóv. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Hagsýn í rekstri

    Umbætur í verkefnastjórnsýslu og opinberum fjárfestingum

    Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skrifað undir samkomulag við Háskólann í Reykjavík og Verkfræðingafélag Íslands um nýjan samráðsvettvang um verkefnastjórnsýslu og opinberar fjárfestingar. Tilgangurinn er að efla samstarf milli ráðuneytisins, HR og Verkfræðingafélagsins á þessu sviði, stuðla að þróun bestu starfsvenja í stjórnsýslu, tengja saman þekkingu og draga fram bestu aðferðir.

    24. okt. 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Gervigreind, Hagsýn í rekstri, Norrænt samstarf

    Ný samnorræn gervigreindarmiðstöð tekur formlega til starfa

    Ný samnorræn og baltnesk gervigreindarmiðstöð, New Nordics AI, var opnuð í vikunni.

    20. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Krafa um tilvísun til sjúkraþjálfara afnumin og verklagi breytt

    Núgildandi fyrirkomulag tilvísana og fyrirkomulag beiðna til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um aukinn meðferðafjölda í sjúkraþjálfun hefur reynst tímafrekt, ómarkvisst og kostnaðarsamt. Krafa um tilvísun sérfræðings, þurfi sjúkratryggður fleiri meðferðarskipti en sex, verður því afnumin 1. apríl 2026. Fleiri breytingar verða gerðar á fyrirkomulagi þessara mála samhliða afnámi tilvísanaskyldunnar. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir markmiðið að bæta stjórnsýslu, auka skilvirkni og draga úr sóun.

    13. okt. 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Gervigreind, Hagsýn í rekstri

    1,4 milljarða samstarfsverkefni stóreflir gervigreindarinnviði Íslands

    Evrópska miðstöðin EuroHPC Joint Undertaking hefur veitt íslensku samstarfsverkefni styrk upp á ríflega 700 milljónir króna til að koma á fót miðstöð á Íslandi fyrir gervigreind og stórvirka tölvuvinnslu.

    09. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Drög að frumvarpi tengt breyttu skipulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu til umsagnar

    Unnið er að breytingum á fyrirkomulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu sem til fjölda ára hefur verið á hendi Heyrnar og talmeinastöðvar. Sett verður á fót sérhæfð, þverfagleg þjónustueining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem tekur að mestu við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar sem verður lögð niður. Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um niðurlagningu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    09. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar, Hagsýn í rekstri

    Fimm frumvörp til að herða tökin í útlendingamálum

    Dómsmálaráðherra mun mæla fyrir fimm frumvörpum á 157. löggjafarþingi til að ná stjórn í útlendingamálum. Í þingmálaskrá 2025-2026 er áhersla lögð á tiltekt í útlendingamálum sem felur m.a. í sér að afnema séríslenskar reglur og samræma íslenska löggjöf við löggjöf Norðurlanda í útlendingamálum. Þá hyggst ráðherra herða skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfa og uppfylla skyldur Íslands samkvæmt Schengen-samkomulaginu.

    04. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Áformar að leggja niður stjórn Sjúkratrygginga Íslands

    Birt hafa verið til umsagnar áform heilbrigðisráðherra um lagabreytingu þess efnis að stjórn Sjúkratrygginga Íslands verði lögð niður. Hlutverk forstjóra verður jafnframt skýrt nánar í lögum og hann gerður ábyrgur fyrir þeim verkefnum sem stjórninni hefur hingað til verið falið. Þetta er í samræmi við stefnu stjórnvalda á liðnum árum um að einfalda yfirstjórn stofnana og styður einnig markmið um hagræðingu í ríkisrekstri.

    26. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Lyfjamál, Hagsýn í rekstri

    Breytingar á greiðsluþátttöku í lyfjakostnaði um næstu áramót

    Í kjölfar endurskoðunar á greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í lyfjakostnaði hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að gera breytingar á greiðsluþátttökukerfinu um næstu áramót.

    17. sep. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Skipulagsbreyting á framhaldsskólastigi – sameiginleg stjórnsýsla, sjálfstæðir framhaldsskólar

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir í dag áform um nýtt skipulag fyrir opinbera framhaldsskóla. Áformin miða að því að efla stuðning við framhaldsskóla, starf þeirra og þjónustu við nemendur. Næsta skref er að eiga samráð við skólameistara, kennara, starfsfólk, nemendur og nærsamfélag skóla við mótun skipulagsins.

    15. sep. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Mannauðsmál ríkisins, Hagsýn í rekstri

    Forstöðumenn í lykilhlutverki

    Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra sagði í ávarpi sínu á fundi með forstöðumönnum stofnana að þeir væru í lykilhlutverki við innleiðingu á stefnu og áætlanagerð ríkisstjórnarinnar og við að leiða breytingar og umbætur í þjónustu. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, sem heldur úti stjórnendasetri ríkisins, stóð á dögunum fyrir fundi með forstöðumönnum en fundurinn er hluti af fræðsluröð sem ætlað er að efla stjórnun, auka árangur og eftirfylgni með stefnu ríkisstjórnarinnar hjá stofnunum ríkisins.

    29. ágú. 2025Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Innleiðing hagræðingar- og umbótaverkefna komin á fullt

    Vinna við hagræðingar- og umbótaverkefni er komin á fullt skrið í ráðuneytum, eftir víðtækt samráð við almenning og stjórnsýslu í byrjun árs. Yfir helmingur tillagna sem hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar skilaði af sér í mars er í innleiðingu eða skoðun í einhverri mynd hjá ráðuneytunum. Á meðal verkefna sem komin eru í farveg í forsætisráðuneytinu eru afnám handhafalauna og vinna við nefndahús. Í næstu viku munu fleiri ráðuneyti gera grein fyrir sínum verkefnum.

    11. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Málefni eldra fólks, Félags- og fjölskyldumál, Hagsýn í rekstri

    Ríki og sveitarfélög taka höndum saman um gagnaöflun og stafræna þróun í velferðarþjónustu

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga landsins, munu ráðast í samstarf um öflun og nýtingu gagna í velferðarþjónustu og stafræna þróun hins opinbera. Markmiðið er að taka saman upplýsingar frá ólíkum þjónustuaðilum og stofnunum þannig að yfirsýn fáist yfir aðstæður þeirra sem þurfa á þjónustu að halda og stuðlað sé að samfellu í þjónustunni. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafa undirritað samkomulag þess efnis.

    09. ágú. 2025Dómsmálaráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Hyggst afnema æviskipanir í tiltekin embætti

    Áform um breytingar á lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem lagt er til að skipunartími í tiltekin embætti verði fimm ár, í stað ótímabundinnar skipunar. Þá er lagt til að færa skipunarvald vegna þessara embætta frá dómsmálaráðherra til forstöðumanna embættanna.

    09. ágú. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjárlög, Hagsýn í rekstri

    Tiltekt og umbætur í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2026

    Í morgun var kynnt fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026. Þetta fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar felur í sér áframhald þeirrar vinnu sem lagt var upp með í fjármálastefnu og fjármálaáætlun fyrr á árinu, um bættan ríkisrekstur og aukinn stöðugleika. Með fjárlögunum eru þannig sköpuð skilyrði fyrir lækkun vaxta, til hagsbóta fyrir heimili og fyrirtæki landsins.

    14. júl. 2025Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar, Lög og réttur, Hagsýn í rekstri

    Áform um einfaldari og skilvirkari meðferð bótakrafna kynnt í samráðsgátt

    Dómsmálaráðherra hefur lagt fram áform í Samráðsgátt stjórnvalda um lagabreytingar sem miða að því að einfalda meðferð bótakrafna sem gerðar eru á grundvelli laga um meðferð sakamála. Markmið breytinganna er að þeir sem eiga rétt til bóta geti nálgast þær á einfaldari, skýrari og fyrirsjáanlegri hátt og þannig dregið úr þörf fyrir málarekstur. Með því minnkar álag hjá dómstólum og dregið er úr kostnaði.

    03. jún. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Framhald vinnu um hagræðingu og umbætur í ríkisrekstri

    Á fundi ríkisstjórnar þriðjudaginn 4. mars voru kynntar tillögur starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri eftir víðtækt samráð við almenning og stofnanir ríkisins. Samþykkt var að vinnuhópur forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis sem starfaði með hagræðingarhópnum muni vinna áfram að framkvæmd tillagna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og að ráðuneyti taki mið af vinnunni við gerð fjármálaáætlunar 2026-2030.

    03. jún. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Nefndahúsi fyrir stjórnsýslunefndir komið á fót

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að koma á fót sérstöku nefndahúsi sem hýsi stjórnsýslunefndir á vegum ríkisins. Þessi fyrirætlan er í samræmi við tillögu hagræðingarhóps um fækkun nefnda og aukinn samrekstur.

    09. maí 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Einfaldað, hagrætt og sameinað hjá MNH

    Rúmlega 20 hagræðingarverkefni eru nú þegar í vinnslu í ráðuneytinu.

    09. maí 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menningarmál, Hagsýn í rekstri

    Þrjú söfn sameinast í eitt

    Til stendur að sameina Hljóðbókasafn Íslands, Kvikmyndasafn Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.

    06. maí 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Hagsýn í rekstri

    Mælaborð árangursupplýsinga birt samhliða ársskýrslum ráðherra

    Við framlagningu fjármálaáætlunar fyrir árin 2026-2030 var birting markmiða og mælikvarða málaflokka færð í tíma að útgáfu ársskýrslna ráðherra í stað þess að birtast á sama tíma og fjármálaáætlun að vori. Með þessu myndast virk tenging milli stefnumótunar og árangursmats, sem stuðlar að markvissari ákvarðanatöku og bættri nýtingu opinberra fjármuna.

    25. apr. 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Hagsýn í rekstri

    Samningur undirritaður um háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum

    Rektorar Háskóla Íslands, Háskólans á Hólum og háskólaráðherra undirrituðu í dag samkomulag um stofnun háskólasamstæðu með þátttöku þessara tveggja háskóla.

    11. apr. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Hagsýn í rekstri

    Stefna um opinbera þjónustu: stöðumat og valkostir

    Skjal um stöðumat og valkostir fyrir stefnu um opinbera þjónustu hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er gerð grein fyrir núverandi stöðu, lykilviðfangsefnum og mögulegum leiðum til umbóta í þjónustu ríkis og sveitarfélaga.

    11. apr. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Framsækið þróunarverkefni um nýtingu gervigreindar í íslensku menntakerfi

    Gervigreind tveggja leiðandi fyrirtækja á heimsvísu verður notuð í þróunarverkefni sem kanna mun nýtingu og gagnsemi hennar í íslensku skólastarfi undir leiðsögn íslenskra kennara. Verkefnið er nú að hefjast og er markmið þess að styðja við kennara, ráðgjafa og skólastjórnendur í notkun gervigreindar við kennslu.

    09. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Hagsýni í ríkisrekstri: Mikill sparnaður vegna aðgerða sem unnið er að í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu

    Áætlað er að hagræðingaraðgerðir sem félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst ráðast í skili meira en 13 milljarða króna sparnaði á ársgrundvelli árið 2030. Strax á næsta ári er áætlaður sparnaður ríflega 5 milljarðar króna. Aðgerðirnar eru hluti af hagræðingar- og umbótaverkefnum sem unnið er að innan Stjórnarráðsins.

    09. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Hagsýn í rekstri

    Breyttu fyrirkomulagi vegna atvinnuleysistrygginga ætlað að hvetja fólk til virkni

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, fyrirhugar að gera breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu með það að markmiði að grípa fólk fyrr en áður og stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi sem er útsettur fyrir langtímaatvinnuleysi. Hvergi á Norðurlöndum er bótatímabil atvinnuleysistrygginga jafn langt og á Íslandi eða 30 mánuðir. Áformaskjal hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem fyrirhugað er að stytta tímabilið niður í 18 mánuði.

    09. apr. 2025Innviðaráðuneytið, Samgöngur, Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskipti, Hagsýn í rekstri

    Unnið að umbóta- og hagræðingarverkefnum á málefnasviði ráðuneytisins

    Innviðaráðuneytið vinnur að umbóta- og hagræðingarverkefnum í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar um hagsýni í ríkisrekstri.

    03. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Hagræðingarhópur skilar tillögum til ríkisstjórnar

    Starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri skilaði í dag tillögum sínum til ríkisstjórnar og voru þær kynntar á fjölmiðlafundi í forsætisráðuneytinu síðdegis.

    31. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármálaáætlun, Hagsýn í rekstri

    Fjármálaáætlun 2026-2030 um öryggi og innviði Íslands

    Örugg hagstjórn og lækkun verðbólgu og vaxta eru leiðarljós fyrstu fjármálaáætlunar nýrrar ríkisstjórnar sem Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti í dag. Um leið skapar ríkisstjórnin svigrúm til fjárfestingar í öryggi og innviðum landsins með hagræðingu og markvissri forgangsröðun.

    25. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Lögskipuðum hæfnisnefndum fækkað um þrjár

    Frumvarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra um fækkun hæfnisnefnda varð að lögum frá Alþingi í gær. Með því verða lagðar niður þrjár fastar, lögbundnar hæfnisnefndir sem hafa haft það hlutverk að meta hæfni umsækjenda um stöður stjórnenda og millistjórnenda á málefnasviði heilbrigðisráðuneytisins. Með þessu er stefnt að aukinni skilvirkni og hagræðingu innan heilbrigðiskerfisins.

    19. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Sameining heilsugæslustöðvanna á Dalvík og í Fjallabyggð

    Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hefur ákveðið að sameina heilsugæslustöð HSN á Dalvík og starfsstöð HSN í Fjallabyggð frá og með 1. september næstkomandi. Markmiðið er að efla mönnun heilbrigðisfagfólks á svæðinu og þjónustu við íbúa.

    17. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Sýslumenn, Hagsýn í rekstri

    Frumvarp til laga um sameinað embætti sýslumanns samþykkt í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag.

    10. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Hagsýn í rekstri

    Stefna ríkisins í mannauðsmálum gefin út í fyrsta sinn

    „Mannauður í lykilhlutverki“ er yfirskrift stefnu ríkisins í mannauðsmálum, sem gefin var út í dag. Stefnan er sú fyrsta sinnar tegundar hjá ríkinu og í henni eru sett fram fimm markmið og áherslur sem er ætlað styðja við stefnumiðaða og aðlögunarhæfa mannauðsstjórnun og skapa eftirsóknarvert starfsumhverfi þar sem hæfni starfsfólks fær notið sín til fulls.

    10. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Stafræn heilsa: Ný miðlæg eining til að efla nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti í gær, á fyrstu nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og ráðuneytis nýsköpunarmála, ákvörðun um að sett verði á fót ný miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið undir heitinu Stafræn heilsa. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni, styðja við nýsköpun, þar með aðkomu einkaaðila og tryggja yfirsýn. Samhliða verður ráðist í styrkingu stjórnkerfis og stýringar stafrænnar heilbrigðisþjónustu.

    09. feb. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Neytendamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Dýravelferð, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Stórfelld einföldun regluverks: úr ellefu eftirlitsaðilum í tvo

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson og atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, kynntu í dag á sameiginlegum fundi ráðuneytanna áform um að gera leyfisveitingar og eftirlit með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum einfaldara og skilvirkara auk þess að bæta þjónustu.

    09. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Hagræðing og tiltekt í heilbrigðiskerfinu

    Í upphafi árs tók heilbrigðisráðherra ákvörðun um að ráðast í 38 aðgerðir til hagræðingar og einföldunar í heilbrigðiskerfinu í samræmi við markmið ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um hagræðingu og hagsýni í ríkisrekstri. Aðgerðirnar eru mislangt komnar, fimm er þegar lokið en ráðuneytið hefur mótað skýra sýn á framhald þeirra aðgerða sem áfram er unnið að.

    07. feb. 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Gervigreind, Hagsýn í rekstri

    Verðmætasköpun og velferð leiðarstef í fyrstu aðgerðaáætluninni um gervigreind

    Fyrsta aðgerðaáætlun Íslands um gervigreind hefur verið gefin út.

    01. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Verum hagsýn í rekstri ríkisins

    Eitt af forgangsverkefnum nýrrar ríkisstjórnar er að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir, eins og fram kemur í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar. Ríkisstjórnin boðar í því skyni til samráðs við þjóðina undir yfirskriftinni Verum hagsýn í rekstri ríkisins.

    01. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Verum hagsýn í rekstri ríkisins

    Eitt af forgangsverkefnum nýrrar ríkisstjórnar er að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir, eins og fram kemur í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar. Ríkisstjórnin boðar í því skyni til samráðs við þjóðina undir yfirskriftinni Verum hagsýn í rekstri ríkisins.

    30. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Samantekt um hagræðingartillögur almennings

    Samantekt um tillögur, hugmyndir og sjónarmið sem bárust í verkefninu Verum hagsýn í rekstri ríkisins hefur verið birt í samráðsgátt. Alls bárust 3.985 umsagnir sem er metfjöldi og um 0,7% þjóðarinnar tók þátt í samráðinu.

    23. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Forsætisráðherra skipar hagræðingarhóp

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað fjögurra manna starfshóp sem á að skila tillögum um hagræðingu í ríkisrekstri þann 28. febrúar. Hópinn skipa Björn Ingi Victorsson formaður, sem er endurskoðandi og forstjóri Steypustöðvarinnar, Gylfi Ólafsson, hagfræðingur og fyrrverandi forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Hildur Georgsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum og fyrrverandi yfirlögfræðingur Ríkiskaupa, og Oddný Árnadóttir, framkvæmdastjóri Landssambands eldri borgara (LEB) sem áður var deildarstjóri hjá Valitor

    16. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Bréf ráðherra til forstöðumanna um hagræðingu

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafa ritað forstöðumönnum hjá ríkinu bréf þar sem óskað er eftir hugmyndum og sjónarmiðum um hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband