09. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Vinnumál, Fatlað fólk, Innflytjendur, Málefni eldra fólks, Almannatryggingar og lífeyrir
16 frumvörp sem hafa þýðingu fyrir fólk um land allt
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, er með sextán frumvörp á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi haustþing. Frumvörpin hafa þýðingu fyrir fjölda fólks um land allt. Má þar nefna ellilífeyrisþega, örorkulífeyrisþega, fólk á leigumarkaði, fatlað fólk, fólk sem tekur hlutdeildarlán, einstaklinga sem hefur verið gert að sæta öryggisráðstöfunum, innflytjendur, atvinnuleitendur og foreldra í fæðingarorlofi.