26. ágú. 2026Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur
Ákæruvald
Dómsmálaráðuneytið
Ákæruvald
Skipan ákæruvalds
Ríkissaksóknari, héraðssaksóknari og lögreglustjórar, að undanskildum ríkislögreglustjóranum, fara með ákæruvaldið í landinu.
Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds og sæta héraðssaksóknari og lögreglustjórar, níu talsins, eftirliti og leiðsögn af hálfu ríkissaksóknara í störfum sem ákærendur og handhafar ákæruvalds.
Ríkissaksóknara til aðstoðar eru vararíkissaksóknari, saksóknarar og aðstoðarsaksóknarar