15. sep. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Mannauðsmál ríkisins, Hagsýn í rekstri
Forstöðumenn í lykilhlutverki
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra sagði í ávarpi sínu á fundi með forstöðumönnum stofnana að þeir væru í lykilhlutverki við innleiðingu á stefnu og áætlanagerð ríkisstjórnarinnar og við að leiða breytingar og umbætur í þjónustu. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, sem heldur úti stjórnendasetri ríkisins, stóð á dögunum fyrir fundi með forstöðumönnum en fundurinn er hluti af fræðsluröð sem ætlað er að efla stjórnun, auka árangur og eftirfylgni með stefnu ríkisstjórnarinnar hjá stofnunum ríkisins.