16. feb. 2026Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Matvælasjóður, Atvinnuvegir
Matvælasjóður skapar ávinning
Úttekt sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) gerði á Matvælasjóði sýnir að á árunum 2020-2024 hafi sjóðurinn skapað umtalsverðan ávinning fyrir íslenskan matvælageira og meginmarkmið sjóðsins (nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni) hafi náðst. Markmið úttektarinnar var að meta efnahagsleg og samfélagsleg áhrif sjóðsins og úthlutana ásamt áhrifum á styrkþega.