23. jún. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða
Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem taka gildi 1. júlí 2025
Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. júlí nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í flestum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Um er að ræða tollkvóta sem veita heimild til innflutnings á kjöti, unnum kjötvörum, ostum og plöntum án tolla eða á lægri tollum en tollskrá segir til um. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan.