Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Öryggis- og varnarmál
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 51–100 af 171
    Raða eftir:
    20. feb. 2026Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkisráðuneytið

    Heimsókn utanríkisráðherra til Japans lauk í Nagasaki

    Þorgerður Katrín hitti varnarmálaráðherra Japans, Shinjiro Koizumi, í gær en Japan er eitt af formlegum samstarfsríkjum Atlantshafsbandalagsins.

    18. feb. 2026Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Yfirmaður sænska heraflans í heimsókn á Íslandi

    Michael Claesson, hershöfðingi og yfirmaður sænska heraflans, heimsótti Íslandi í vikunni í tilefni þess að nú sinnir flugsveit á vegum sænska flughersins loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hérlendis í fyrsta skipti.

    15. feb. 2026Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra sótti öryggisráðstefnuna í Munchen

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti um helgina öryggisráðstefnuna í Munchen. Í framhaldi fer hún í vinnuheimsókn til Japans.

    04. feb. 2026Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkisráðuneytið

    Þorgerður Katrín ræddi við varautanríkisráðherra Bandaríkjanna

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag símafund með Christopher Landau varautanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þar voru pólitísk samskipti ríkjanna, gjöfult varnarsamstarf þeirra og viðskiptamál í brennidepli.

    03. feb. 2026Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Hakkaþon Atlantshafsbandalagsins á Íslandi

    Árlegur tækniviðburður á vegum Atlantshafsbandalagsins, e. NATO TIDE Hackathon 2026, fór fram á Íslandi í síðustu viku. Markmið hans er að stuðla að aukinni stafrænni samvirkni og nýtingu gervigreindar í þágu bandalagsins.

    20. jan. 2026Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Svíþjóð sinnir loftrýmisgæslu á Íslandi í fyrsta sinn

    Flugsveit sænska flughersins er væntanleg til landsins í byrjun febrúar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Flugsveitin samanstendur af sex JAS Gripen orrustuþotum og um 110 liðsmönnum, en um er að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Svíþjóðar á Íslandi.

    19. jan. 2026Utanríkismál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Norræn samstaða um öryggismál á norðurslóðum

    Aukið samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og öryggi á norðurslóðum voru meðal mála í brennidepli á fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og utanríkisráðherra Grænlands, sem fram fór í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    14. jan. 2026Almannaöryggi, Fjarskipti, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    CERT-IS setur á laggirnar vaktstöð netöryggis

    Ný vaktstöð netöryggis (e. National Security Operations Center), sem tryggir sólarhringsvöktun og skjót viðbrögð við netógnum, er í burðarliðnum hjá CERT-IS. Verkefnið er samfjármagnað af Evrópusambandinu í gegnum styrkjaáætlunina Digital Europe og er liður í að efla netöryggi á Íslandi.

    07. jan. 2026Rit og skýrslur, Almannaöryggi, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Samgöngur og fjarskipti, Úkraína, Annað, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Formennskuáætlun Íslands í Eystrasaltsráðinu 2026-2027

    Ísland tekur við sem formennskuríki Eystrasaltsráðsins af Póllandi hinn 1. júlí 2026, á tímum djúpstæðra landfræðipólitískra áskorana á Eystrasaltssvæðinu.

    07. jan. 2026Rit og skýrslur, Almannaöryggi, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Samgöngur og fjarskipti, Úkraína, Annað, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Formennskuáætlun Íslands í Eystrasaltsráðinu 2026-2027

    Ísland tekur við sem formennskuríki Eystrasaltsráðsins af Póllandi hinn 1. júlí 2026, á tímum djúpstæðra landfræðipólitískra áskorana á Eystrasaltssvæðinu.

    07. jan. 2026Rit og skýrslur, Almannaöryggi, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Samgöngur og fjarskipti, Úkraína, Annað, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Formennskuáætlun Íslands í Eystrasaltsráðinu 2026-2027

    Ísland tekur við sem formennskuríki Eystrasaltsráðsins af Póllandi hinn 1. júlí 2026, á tímum djúpstæðra landfræðipólitískra áskorana á Eystrasaltssvæðinu.

    06. jan. 2026Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Model NATO-ráðstefna haldin á Alþingi í haust

    Ungt fólk fær tækifæri til að setja sig í spor fulltrúa aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og takast á við sviðsett neyðarástand í alþjóðlegum öryggismálum.

    17. des. 2025Almannaöryggi, Netöryggi, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin sameina krafta sína í netöryggismálum

    Ísland tekur þátt í stofnun netöryggismiðstöðvar (e. cyberhub) sem miðar að því að efla greiningu, viðbrögð og varnir gegn netógnum, ásamt Noregi, Danmörku, Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litáen. Verkefnið er samfjármagnað af Evrópusambandinu í gegnum styrkjaáætlun Digital Europe með heildarfjárhagsramma upp á 14 milljónir evra. Um er að ræða Nordic Baltic Cyber Consortium (NBCC), en Samfélagsöryggisstofnun Danmerkur fer með umsjón verkefnisins með aðkomu CERT-IS fyrir hönd utanríkisráðuneytisins.

    15. des. 2025Fjarskipti, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Netöryggisæfing til að efla viðbragðsgetu bandalagsríkja gegn fjölþáttaógnum

    Ísland tók nýverið þátt í fjölþjóðlegu netöryggisæfingunni Cyber Coalition 2025, sem haldin hefur verið árlega frá árinu 2008 á vegum Atlantshafsbandalagsins. Markmið hennar er að efla samvinnu og viðbragðsgetu þjóða gegn net- og fjölþáttaógnum, en að þessu sinni tóku lið frá 35 aðildar- og samstarfsríkjum bandalagsins þátt í æfingunni sem fram fór dagana 28. nóvember til 4. desember sl.

    09. des. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Samráðshópur þingmanna skilar skýrslu um megináherslur í varnarmálum

    Samráðshópur þingmanna hefur skilað utanríkisráðherra skýrslu þar sem fram koma megináherslur sem lagt er til að verði grunnur að stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum.

    05. des. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Borgaraþjónusta, Evrópusamvinna, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Alþjóðasamningar, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Rit og skýrslur

    Skýrsla utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkis- og alþjóðamál

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flutti árlega skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál fyrir Alþingi.

    27. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Mikilvægi Íslands í sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins

    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), heimsótti í dag Ísland í sinni fyrstu vinnuheimsókn og átti fundi með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hann skoðaði einnig öryggissvæðið í Keflavík og fundaði með þingmönnum á Alþingi.

    27. nóv. 2025Almannaöryggi, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir í samstarfi við Atlantshafsbandalagið

    Skrifað var undir viljayfirlýsingu í dag um fyrirhugaða uppbyggingu mannvirkja í Helguvík en það er Atlantshafsbandalagið sem fjármagnar framkvæmdirnar.

    17. nóv. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heimsækir Ísland

    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er væntanlegur í vinnuheimsókn til Íslands 27. nóvember næstkomandi. Er þetta fyrsta heimsókn Mark Rutte til Íslands í stöðu framkvæmdastjóra sem hann tók við af Jens Stoltenberg í október 2024.

    13. nóv. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Öryggismál og stuðningur við Úkraínu í brennidepli á fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna

    Haustfundur varnarmálaráðherra Norðurlandanna (NORDEFCO) fór fram í Helsinki í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum. Norrænt varnarsamstarf, þróun öryggismála í Evrópu og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu voru efst á baugi fundarins þar sem yfirmenn hermála Norðurlandanna voru jafnframt viðstaddir. Þá áttu norrænu varnarmálaráðherrarnir fund með kollegum sínum frá Eystrasaltsríkjunum í dag.

    12. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Neðansjávarfar til að efla eftirlit við strendur Íslands afhent Landhelgisgæslunni

    Landhelgisgæsla Íslands tók formlega á móti ómannaða neðansjávarfarinu GAVIA AUV frá Teledyne Gavia í dag. Um samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands og utanríkisráðuneytisins er að ræða en Háskóli Íslands færði Landhelgisgæslunni farið til eignar fyrr á árinu.

    09. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Almannaöryggi

    Dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra heimsóttu Northern Challenge

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra heimsóttu í dag fjölþjóðlegu sprengjueyðingaæfinguna Northern Challenge, sem fram fer hér á landi. Northern Challenge er ein umfangsmesta fjölþjóðlega æfing sprengjusérfræðinga í Evrópu og sú stærsta innan NATO sem sérhæfir sig í sprengjueyðingu. Æfingin fer fram ár hvert á Íslandi og í henni taka þátt um 400 fulltrúar frá sextán ríkjum, þar á meðal frá Íslandi, Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Þá taka fulltrúar frá bandarísku alríkislögreglunni þátt í æfingunni og deila reynslu sinni í meðhöndlun sönnunargagna.

    04. nóv. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Málefni Úkraínu í brennidepli í ferð ráðherra til Brussel

    Möguleg fjölþjóðleg stuðningsaðgerð til handa Úkraínu, áframhaldandi varnartengdur stuðningur við varnarbaráttu landsins og samstarf innan sameiginlegu viðbragðssveitarinnar JEF voru til umræðu á fundum varnarmálaráðherra sem fram fóru í Brussel í dag og í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundunum.

    04. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Samráðshópur þingmanna vegna mótunar öryggis- og varnarstefnu hefur störf

    Í tengslum við mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands hefur utanríkisráðherra skipað samráðshóp þingmanna sem tilnefndir eru af þingflokkum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Hlutverk samráðshópsins er að fjalla um inntak og áherslur öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland.

    03. nóv. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Dómsmálaráðuneytið

    Utanríkisráðherra boðar stefnumótun og aðgerðir í varnarmálum

    Utanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í dag tillögu að mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024 kemur fram að mótuð verði öryggis- og varnarmálastefna. Stefnunni er ætlað að lýsa helstu öryggisáskorunum til lengri og skemmri tíma með áherslu á ytri ógnir og draga fram markmið Íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi, fjalla um nauðsynlegan varnarviðbúnað, og skipulag og getu sem þurfi að vera til staðar á Íslandi, auk þess að benda á hugsanlegar umbætur á laga- og stofnanaumgjörð varnarmála.

    19. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Undirrituðu viljayfirlýsingu á sviði varnarmála

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, undirrituðu í dag tvíhliða viljayfirlýsingu um varnarmál í tengslum við heimsókn Pistoriusar til Íslands.

    17. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra fundaði með formanni hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins

    Á fundinum voru öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum helst til umræðu, en einnig var farið yfir vaxandi framlag Íslands innan Atlantshafsbandalagsins og stuðning við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu innrásarstríði Rússlands.

    15. okt. 2025Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu eflingu loftvarna og stuðning við Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins komu saman til fundar í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum en hann fór fram í skugga vaxandi eldflauga- og drónaárása Rússlands gegn Úkraínu, lofthelgisbrota í Póllandi og Eistlandi og aukinna fjölþáttaaðgerða.

    07. okt. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra heimsótti USS Newport News í Grundartangahöfn

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra heimsótti bandaríska kafbátinn USS Newport News, í höfninni á Grundartanga í dag. Um er að ræða reglulega þjónustuheimsókn kjarnorkuknúna bandarískra kafbáta á Íslandi, en þá fyrstu sem fram fer í höfn. Áhöfn USS Newport News telur um 140 einstaklinga, en báturinn er Los Angeles-gerðar og ber ekki kjarnavopn.

    01. okt. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu áréttaður

    Varnarmálaráðherrar ríkja sem styðja varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) funduðu í gær um stöðuna á vígvellinum og stuðning ríkjanna við baráttu íbúa Úkraínu gegn innrásarstríði Rússlands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn í beinu framhaldi af heimsókn sinni til Kænugarðs þar sem hún ræddi við ráðamenn og kynnti sér afleiðingar stríðsins.

    18. sep. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Kynntu sér mikilvægt framlag Íslands til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins

    Mannvirkjasjóðsnefnd Atlantshafsbandalagsins heimsótti Ísland á dögunum og fékk kynningu á varnarmannvirkjum og innviðum, og framlagi Íslands til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins. Skoðaði nefndin sig m.a. um á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og heimsótti Grindavík og ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli.

    15. sep. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra styrkti böndin á Grænlandi og fylgdist með varnaræfingu

    Heimsókn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra til Grænlands lauk í dag en hún var mikilvægur liður í samstarfi Íslands og Grænlands hvað varðar norrænt samráð um öryggis- og varnarmál. Þá átti utanríkisráðherra tvíhliða fund með Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, þar sem málefni norðurslóða, áskoranir sem svæðið stendur frammi fyrir og tækifæri til frekara samstarfs ríkjanna í ört breytilegum heimi var til umræðu.

    05. sep. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Aukin áhersla Íslands á öryggis- og varnarmál til umræðu í Washington

    Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál fór fram í Washington D.C. í gær. Öflug tvíhliða varnarsamvinna ríkjanna og staða alþjóðaöryggismála voru með helstu umræðuefna.

    05. sep. 2025Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Aukin áhersla á öryggismál á Norður-Atlantshafi á leiðtogafundi JEF í Ósló

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF – Joint Expeditionary Force) í Ósló. Í JEF-samstarfinu eru ásamt Íslandi hin Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Bretland og Holland.

    04. sep. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra fundaði með starfsbræðrum sínum í Noregi

    Sameiginlegar áskoranir, öryggismál á norðurslóðum og aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála var ofarlega á baugi á tvíhliða fundum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Tore O. Sandvik varnarmálaráðherra Noregs og Espen Barth Eide utanríkisráðherra, sem fram fóru í Ósló í tengslum við opinbera heimsókn forseta Íslands til Noregs. Ráðherrarnir áréttuðu áframhaldandi og óbilandi stuðning ríkjanna við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu og blóðugu innrásarstríði Rússlands. Þá voru hörmungarnar fyrir botni Miðjarðarhafs sömuleiðis til umræðu og ítrekuðu ráðherrarnir mikilvægi mannúðaraðstoðar og virðingu fyrir alþjóðalögum.

    04. sep. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Samstaða og samráð á óvissutímum

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti síðdegis í dag fundi með Ursulu Von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), og António Costa, forseta leiðtogaráðs ESB.

    01. sep. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Finnland sinnir loftrýmisgæslu á Íslandi í fyrsta sinn

    Flugsveit finnska flughersins er væntanleg til landsins í lok janúar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F/A-18 Hornet orrustuþotum og allt að 50 liðsmönnum.

    26. ágú. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Yfirhershöfðingi þýska hersins heimsækir Ísland

    Carsten Breuer, yfirhershöfðingi þýska heraflans, sótti Ísland heim í vikunni og átti í dag fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Jónasi G. Allanssyni, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

    13. ágú. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Belgíski flugherinn annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi

    Flugsveit belgíska flughersins, sem væntanleg er til landsins í vikunni, tekur við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi af spænska flughernum.

    10. ágú. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Öryggismál í brennidepli á fundum í Helsinki

    Fjölþáttaógnir og öryggismál í Evrópu voru ofarlega á baugi á fundi sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti með Elinu Valtonen, utanríkisráðherra Finnlands í Helsinki í dag.

    21. júl. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Spánn sinnir loftrýmisgæslu við Ísland í fyrsta sinn

    Flugsveit spænska flughersins er væntanleg til landsins í vikunni, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af sex F-18 orrustuþotum og allt að 130 liðsmönnum.

    17. júl. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Aukið samstarf Íslands og ESB á sviði öryggis- og varnarmála

    Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) átti í dag fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á öryggissvæðinu í Keflavík í vinnuheimsókn hennar til landsins.

    11. júl. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Mælt fyrir stefnu í varnar- og öryggismálum

    Um er að ræða fyrstu formlegu stefnu í varnarmálum og byggist hún á tillögum samráðshóps þingmanna sem skipaður var í mars til að fjalla um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum.

    10. júl. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Alþjóðamál

    Undirrituðu tvíhliða samstarfsyfirlýsingu um varnarmál

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, undirrituðu í dag tvíhliða samstarfsyfirlýsingu um varnarmál í Helsinki. Undirritunin fór fram í tengslum við opinbera heimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, til Finnlands.

    03. júl. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Stóraukning framlaga ESB til varnarmála styrkir NATO

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í dag fjarfund með Antonío Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB), Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB, ásamt forsætisráðherrum Noregs, Bretlands, Kanada og forseta Tyrklands.

    01. júl. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra í vinnuheimsókn í Úkraínu

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er nú stödd í vinnuheimsókn í Úkraínu þar sem hún fundar með ráðamönnum, áréttar stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu og kynnir sér stöðu mála. Þorgerður Katrín hefur í dag meðal annars átt fundi með Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu og Denys Shmyhal forsætisráðherra.

    25. jún. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Einhugur og samstaða á sögulegum leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins

    Einhugur og samstaða einkenndi leiðtogafund aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í Haag í Hollandi, sem var sóttur af Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Fundurinn var haldinn í skugga árásarstríðs Rússlands í Úkraínu og átaka fyrir botni Miðjarðarhafs.

    24. jún. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins

    Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í dag í Haag í Hollandi, þar sem gert er ráð fyrir að aukin framlög bandalagsríkja til sameiginlegra varna bandalagsins verði helsta mál á dagskrá. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sækja fundinn fyrir hönd Íslands.

    23. jún. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ríkjahópur um sprengjuleit og eyðingu í Úkraínu fundar í Reykjavík

    Fulltrúar ríkja sem skipa ríkjahóp um sprengjuleit- og eyðingu í Úkraínu, áttu sameiginlegan fund í Reykjavík í síðustu viku.

    13. jún. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Varnarmálaráðherra Tékklands í heimsókn á Íslandi

    Möguleg tækifæri til að efla enn frekar samstarf Íslands og Tékklands á sviði varnarmála voru til umræðu á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Jana Černochová, varnarmálaráðherra Tékklands, sem fram fór í gær á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband