25. ágú. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál
Tekjuskattur
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Tekjuskattur
Til skattskyldra tekna teljast með þeim undantekningum og takmörkunum, er í lögum greinir, hvers konar gæði, arður, laun og hagnaður sem skattaðila hlotnast og metin verða til peningaverðs og skiptir ekki máli hvaðan þær stafa eða í hvaða formi þær eru.
Skyldu til að greiða tekjuskatt og útsvar bera allir þeir sem afla tekna á Íslandi. Þeir sem búsettir eru hér á landi bera fulla skattskyldu af tekjum sínum, en þeir sem búsettir eru erlendis og hafa héðan tekjur bera takmarkaða skattskyldu sem nær eingöngu til tekna sem þeir afla hér á landi