24. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Fatlað fólk, Almannatryggingar og lífeyrir
Fjögur frumvörp félags- og vinnumarkaðsráðherra urðu að lögum um helgina
Fjögur frumvörp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, urðu að lögum um helgina. Um er að ræða frumvarp vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði, frumvarp um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, frumvarp um breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi, auk frumvarps vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu.