09. jan. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Hagsýn í rekstri
Ríki og sveitarfélög sammælast um stafræna þróun og víðtæka nýtingu gagna í þágu barna
Mennta- og barnamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga landsins, munu ráðast í víðtækt samstarf um uppbyggingu traustra gagnainnviða og stafræna þróun þvert á stjórnsýslustig. Tilgangurinn er að tryggja sameiginlega yfirsýn varðandi þróun og innleiðingu stafrænna lausna, uppbyggingu gagnainnviða, til öflunar og nýtingu gagna í þágu farsældar barna og aukinna gæða í skóla- og frístundastarfi. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, og Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, undirrituðu nýverið samkomulag þess efnis.…