04. maí 2024Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Mannréttindi, Úkraína, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna endurnýjar ályktun um stöðu mannréttinda í Íran
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um stöðu mannréttinda í Íran sem lögð var fram af ríkjahópi undir forystu Íslands. Ályktunin tryggir annars vegar áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til þess að vakta og gefa reglubundna skýrslu um stöðu mannréttinda í Íran, og framlengir hins vegar um eitt ár umboð tímabundinnar óháðrar rannsóknarnefndar sem safnar upplýsingum og gögnum vegna hrinu grófra mannréttindabrota íranskra stjórnvalda í kjölfar víðtækra mótmæla eftir andlát Jina Mahsa Amini haustið 2022.