06. feb. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið
Stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu áréttaður á leiðtogafundi B9-ríkjanna og Norðurlandanna
Leiðtogafundi níu Atlantshafsbandalagsríkja á austurvæng bandalagsins lauk í Vilnius, höfuðborg Litáen, í dag. Um er að ræða samráðshóp hinna svokölluðu B9-ríkja, þ.e. Búlgaríu, Tékkland, Eistland, Ungverjaland, Lettland, Litáen, Pólland, Rúmeníu og Slóvakíu.