23. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ársskýrsla kærunefndar jafnréttismála 2023 komin út
Ársskýrsla kærunefndar jafnréttismála 2023 er komin út og hefur verið birt á vefnum.
Kristín Benediktsdóttir, formaður kærunefndar jafnréttismála, afhenti Guðmundi Inga Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, skýrsluna fyrir helgi og kynnti hana fyrir honum. Skýrslunni er skilað til ráðherra í samræmi við lög um stjórnsýslu jafnréttismála og í henni er farið yfir starfsemi nefndarinnar, málafjölda og niðurstöður, málsmeðferðartíma og aðrar tölfræðiupplýsingar vegna ársins 2023.