06. apr. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Alþjóðamál
Daði Már sótti ráðherraráðsfund OECD
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat í vikunni ráðherraráðsfund Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, í París. Meginefni fundarins voru horfur og áskoranir í efnahagsmálum, en rík áhersla var lögð á frjáls alþjóðaviðskipti og fjárfestingu, bæði opinbera og af hálfu einkaaðila, sem drifkrafta verðmætasköpunar.