17. feb. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki
Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu
Í kjölfar tilkynningar ríkisins sl. föstudag um fyrirhugað opið almennt útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, birti Arion banki erindi til Íslandsbanka um áhuga sinn á viðræðum um sameiningu bankanna. Í erindinu kom m.a. fram að hluthöfum Íslandsbanka, þ.m.t. ríkinu, stæðu til boða hlutabréf í sameinuðum banka skv. tiltekinni aðferðafræði.