Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 601–650 af 775
    Raða eftir:
    30. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    5,1% verðbólga í október – hjaðnar í takt við spár

    Verðbólga í október mælist 5,1% og minnkar úr 5,4% í september í takt við spár greiningaraðila. Verðbólga hefur ekki verið jafn lítil í þrjú ár. Hjöðnunin í október var drifin af minni hækkun húsnæðisverðs, en verðbólga án húsnæðis mælist 2,8% annan mánuðinn í röð. Spenna á húsnæðismarkaði virðist loks fara minnkandi.

    30. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Þekking og notkun Ísland.is eykst milli ára

    Næstum allir landsmenn þekkja til Ísland.is og 97% hafa einhvern tíma nýtt þjónustu sem er í boði á vefnum. Þetta kemur fram í nýlegri netkönnun Gallup á notkun og viðhorfi til kjarnaþjónusta Stafræns Íslands.

    25. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Opinber innkaup

    Leiðbeiningar um matslíkön og matsaðferðir í opinberum innkaupum

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um matslíkön og matsaðferðir í opinberum innkaupum. Markmið leiðbeininganna er að stuðla að skýrari ferlum og auknu gagnsæi í innkaupum ríkis, félaga í ríkiseigu og sveitarfélaga.

    25. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áfram öflugur stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki

    Ísland er í fremstu röð OECD landa þegar kemur að stuðningi við nýsköpun og þróun. Í anda þess er lagt til að stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki verði viðhaldið í frumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.). Í frumvarpinu er lagt til að endurgreiðsluhlutfall verði 34% til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og 22,5% til stórra fyrirtækja.

    22. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Ársskýrsla ríkisfyrirtækja fyrir árið 2023 birt

    Ársskýrsla ríkisfyrirtækja fyrir árið 2023 hefur verið birt. Í skýrslunni er að finna upplýsingar um starfsemi fyrirtækjanna, árangur og afkomu sem og skipun stjórna.

    21. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Bílanefnd ríkisins lögð niður

    Með breytingu á reglugerð um bifreiðamál ríkisins hefur bílanefnd verið lögð niður og ábyrgð og eftirlitshlutverk nefndarinnar færð yfir til forstöðumanna stofnana.

    18. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki

    Sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka frestað

    Ákveðið hefur verið að fresta sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Einhugur var innan ráðherranefndar um ríkisfjármál, þar sem forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra sitja, um að fresta sölunni, að fenginni ráðgjöf frá umsjónaraðilum útboðsins.

    18. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Stafræn meðmælasöfnun framboða til alþingiskosninga 2024

    Landskjörstjórn opnaði í gær stafrænt meðmælakerfi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember og geta stjórnmálasamtök sem hafa fengið úthlutuðum listabókstaf frá dómsmálaráðuneytinu nú stofnað stafræna meðmælasöfnun fyrir framboð sín í öllum kjördæmum. Stafræna meðmælakerfið var unnið í samstarfi Stafræns Íslands og Þjóðskrár og var þróun þess komin áleiðis þegar ljóst varð að kosið yrði í lok nóvember.

    16. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Frumvarp um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja í samráðsgátt

    Mjög góður árangur í orkuskiptum hér á landi kallar á að tekjuöflun af vegasamgöngum verði óháð jarðefnaeldsneyti. Innleiðing nýs, einfaldara og sanngjarnara kerfis þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu hófst árið 2023.

    16. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Samið um uppbyggingu á Ásbrú

    Samningur milli Kadeco, Reykjanesbæjar og ríkisins um uppbyggingu á Ásbrú var undirritaður í dag. Samningurinn felur meðal annars í sér að byggðar verði 800 íbúðir á Ásbrú auk uppbyggingar samfélagslegra innviða, almenningsrýmis og nýrra bygginga undir þjónustu fyrir íbúa.

    15. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland og Brasilía undirrita tvísköttunarsamning

    Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Brasilíu var undirritaður í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í gær. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Bergdísi Ellertsdóttur, sendiherra og staðgengli ráðuneytisstjóra, fyrir hönd Íslands og Rodrigo de Azeredo Santos, sendiherra, fyrir hönd Brasilíu.

    12. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjárlög

    Fjárlög 2025: Halli áætlaður 1,2% af landsframleiðslu

    Vegna stjórnarslita og alþingiskosninga í lok nóvember sl. var afgreiðslu fjárlaga flýtt frá því sem áður hafði verið gert ráð fyrir. Í ljósi þrengri tímaramma lagði fjármála- og efnahagsráðuneytið áherslu á að endurmeta afkomuhorfur áranna 2024 og 2025

    10. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Sigurður Páll Ólafsson skipaður skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Sigurð Pál Ólafsson í embætti skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

    10. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Mannauðsmál ríkisins, Nýsköpun, Gervigreind, Opinber innkaup, Stafrænt Ísland

    Góð þjónusta og sjálfbær rekstur meðal helstu áherslna í ríkisrekstri fyrir 2025

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt áherslur í ríkisrekstri fyrir árið 2025. Þær lúta að góðri þjónustu, sjálfbærum rekstri og öflugum mannauði. Í tengslum við áherslurnar standa stofnunum til boða ýmis verkefni, til að ná fram betri og hagkvæmari þjónustu.

    09. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjárlög

    Stutt við öflugt atvinnulíf og forgangsraðað í þágu viðkvæmra hópa

    Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2025 sem kynnt var í dag er áhersla lögð á forgangsröðun og bætta afkomu ríkissjóðs með markvissu aðhaldi í opinberum umsvifum. Þannig stuðlar ríkisfjármálastefnan að áframhaldandi hjöðnun verðbólgu og skapar betri skilyrði fyrir lækkun vaxta.

    07. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Traust til opinberrar stjórnsýslu og fjölmiðla almennt gott

    Traust mælist hátt til opinberrar stjórnsýslu og fjölmiðla á Íslandi í samanburði við önnur OECD-ríki. Félagslegt traust mælist jafnframt hátt hér á landi og fer vaxandi á milli mælinga.

    05. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Standard og Poor's

    S&P staðfestir A+ lánshæfiseinkunn Íslands með stöðugum horfum

    Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A+ lánshæfiseinkunn Íslands. Horfur fyrir einkunnina eru stöðugar.

    05. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun

    Þrjú verkefni hlutu nýsköpunarverðlaun hins opinbera – nýsköpunardagur haldinn í næstu viku

    Nýsköpunardagur hins opinbera verður haldinn 15. maí næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica, en í aðdraganda hans voru nýsköpunarverðlaun hins opinbera fyrir árið 2024 veitt.

    04. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Sigurður Ingi Jóhannsson nýr fjármála- og efnahagsráðherra

    Sigurður Ingi Jóhannsson tók í dag við lyklavöldum í fjármála- og efnahagsráðuneytinu úr hendi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, sem er nýr utanríkisráðherra.

    30. sep. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Ferðakostnaður, Mannauðsmál ríkisins

    Dagpeningar innanlands – auglýsing nr. 2/2024 (gildir frá 1. október 2024)

    Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins.

    20. sep. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Moody‘s

    Moody’s hækkar lánshæfiseinkunn Íslands í A1 með stöðugum horfum

    Lánshæfismatsfyrirtækið Moody's Ratings (Moody's) hækkaði í dag lánshæfiseinkunnir íslenska ríkisins í innlendum og erlendum gjaldmiðlum í A1 úr A2. Horfur fyrir einkunnina eru stöðugar.

    20. sep. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Viðlagaæfing Norðurlanda og Eystrasaltslanda 2024

    Undanfarna daga hafa stjórnvöld Norðurlanda og Eystrasaltslanda, sem bera ábyrgð á fjármálastöðugleika, æft viðbúnað við fjármálaáfalli á svæðinu þar sem þrír ímyndaðir bankar með starfsemi yfir landamæri áttu hlut að máli.

    20. sep. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Opinber innkaup

    Aðhald í innkaupum stofnana

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að setja á fót átakshóp um aðhald í innkaupum stofnana sem fylgi eftir aðgerðaáætlun úr stefnu um sjálfbær innkaup.

    16. sep. 2024Fitch, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rit og skýrslur

    Skýrsla Fitch í september 2024

    september 2024 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla Fitch í september 2024 Skýrsla Fitch í september 2024 Fitch Efnahagsmál og opinber fjármál Til baka

    04. sep. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Jón Viðar Pálmason skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu opinberra fjármála

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Jón Viðar Pálmason til að gegna embætti skrifstofustjóra á skrifstofu opinberra fjármála.

    30. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Fitch staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru stöðugar.

    27. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Mannauðsmál ríkisins

    Hlutur almenna markaðarins í fjölgun starfa er 71%

    Hlutur hins opinbera í fjölgun starfa síðastliðið ár er 29% en ekki 66% eins og haldið er fram í Innherja í dag. Það er í góðu samræmi við hlutdeild hins opinbera á vinnumarkaði almennt.

    23. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Defend Iceland og Stafrænt Ísland í samstarf um netöryggi

    Stafrænt Ísland og Defend Iceland hafa skrifað undir samning um samstarf á sviði netöryggis. Tilgangur samningsins er að nýta villuveiðigátt Defend Iceland til að finna öryggisveikleika í kerfum Stafræns Íslands og auka þannig og styrkja varnir gegn netárásum.

    21. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki

    Samið við þrjá aðila um umsjón útboðs á hlutum í Íslandsbanka

    Í júní sl. voru samþykkt á Alþingi lög um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf. Lögin fela í sér að hlutur ríkisins í bankanum verði seldur í markaðssettu útboði eða útboðum.

    21. ágú. 2024Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Samgöngusáttmálinn, Samgöngur

    Ríkið og sex sveitarfélög gera samkomulag um uppfærðan samgöngusáttmála

    Styttri ferðatími, minni tafir, aukið umferðaröryggi, áhersla á að draga úr kolefnisspori, stórbættar almenningssamgöngur, fjölgun hjóla- og göngustíga og uppbygging stofnvega eru kjarninn í uppfærðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem undirritaður var í dag.

    21. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Ferðaþjónusta

    Nýjar tölur um greiðslukortaveltu staðfesta þrótt í ferðaþjónustu og einkaneyslu

    Nýjar tölur um greiðslukortaveltu benda til þess að neysla ferðamanna á Íslandi sé nokkurn veginn óbreytt milli ára í stað þess að dragast saman. Endurskoðaðar kortaveltutölur sem Seðlabankinn birti í síðustu viku staðfesta meðal annars þrótt í ferðaþjónustu eins og nýverið var vakin athygli á.

    16. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármála- og efnahagsráðherra heimsækir Grindavík

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, heimsótti Grindavík síðastliðinn miðvikudag. Í heimsókn sinni naut hann leiðsagnar Fannars Jónassonar bæjarstjóra og Guðnýjar Sverrisdóttur og Gunnars Einarssonar sem bæði eiga sæti í framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur sem í daglegu tali nefnist Grindavíkurnefndin.

    10. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Könnun SÞ á stafrænni opinberri þjónustu: Ísland áfram í 5. sæti

    Ísland heldur fimmta sætinu í könnun aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna á stafrænni opinberri þjónustu og innviðum. Stigagjöf Íslands hefur þó hækkað frá síðustu könnun.

    08. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Samantekt um fjárhagsleg afdrif fólks sem bjó eða starfaði í Grindavík

    Fjármála og efnahagsráðuneytið safnar mánaðarlegum upplýsingum um fjárhagsleg afdrif fólks sem hafði búsetu eða starf í Grindavík í október 2023 og veltu fyrirtækja í Grindavík.

    03. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Opnað fyrir sölu á íbúðarhúsnæði í Grindavík

    Íbúar í Grindavík sem óska eftir því að selja ríkissjóði íbúðarhúsnæði sitt í gegnum Fasteignafélagið Þórkötlu, samkvæmt nýsamþykktum lögum Alþingis, geta nú fyllt út umsókn á Ísland.is.

    15. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bjartsýnn um stöðu og horfur í íslenskum efnahagsmálum

    Árleg skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslenskt efnahagslíf hefur verið birt. Sjóðurinn gerir reglubundnar úttektir á efnahagslífi aðildarlanda sinna á grundvelli 4.

    15. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Ríkisreikningar, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisreikningur 2023: Meira jafnvægi í þjóðarbúinu og lækkandi verðbólga ávinningur ábyrgrar stefnu í ríkisfjármálum

    Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2023 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Staða ríkissjóðs styrktist enn á árinu 2023.

    15. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík

    Lausn í málum búseturéttarhafa í Grindavík

    Í samræmi við heimild í lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að styrkja búseturéttarhafa um 95% af framreiknuðu búseturéttargjaldi þeirra.

    06. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík, Efnahagsmál og opinber fjármál, Úkraína, Loftslagsmál

    Aðalfundur Þróunarbanka Evrópuráðsins haldinn á Íslandi

    Í dag samþykkti Þróunarbankinn fyrstu lánsumsókn til bankans frá ríkissjóði Ísland, að fjárhæð 150 milljónir evra. Íslensk stjórnvöld sóttu um lánið sem varúðarráðstöfun vegna mögulegra útgjalda í tengslum við náttúruhamfarir í nágrenni Grindavíkur.

    06. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Uppbygging Nýs Landspítala stenst kostnaðaráætlanir - fyrsti áfangi uppbyggingarinnar fullfjármagnaður

    Stýrihópur um skipulag framkvæmda við Landspítala og annarra sérhæfðra sjúkrahúsa hefur kynnt heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra uppfærða heildaráætlun Nýs Landspítala ohf. (hér eftir nefnt NLSH). Heildaráætlun NLSH kom síðast út haustið 2022. Í nýrri heildaráætlun kemur fram að heildaráætlun NLSH standist kostnaðaráætlanir, með einungis 0,6% fráviki. Það er óveruleg hlutfallsleg breyting í ljósi heildarumfangs verkefna NLSH og í ljósi krefjandi aðstæðna á heimsmarkaði.

    03. júl. 2024Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vaxandi velsæld - Aðgerðir stjórnvalda til stuðnings fjögurra ára kjarasamningum

    Ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa sameiginlega lagt fram aðgerðir til að greiða fyrir kjarasamningum á vinnumarkaði til næstu fjögurra ára. Aðgerðirnar styðja við sameiginlegt markmið stjórnvalda og samningsaðila um að leggja grundvöll að vaxandi velsæld, með auknum kaupmætti og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta.

    03. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Samkeppni, þjóðaröryggi og verðmætasköpun lykilþættir í ákvarðanatöku um raforkumál

    Við alla ákvarðanatöku í raforkumálum er sérlega mikilvægt að huga að þjóðaröryggi, efnahagslegum tækifærum og verðmætasköpun, auk samkeppni. Gera þarf sérstakan viðauka við almenna eigendastefnu ríkisins um þessa þætti og er sú vinna væntanleg með vorinu. Þetta kom fram í máli Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra á ársfundi Landsvirkjunar sl. þriðjudag.

    28. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Íslandsbanki

    Framhald á ráðstöfun eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka

    Þann 23. júní sl. voru samþykkt á Alþingi lög um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf. Lögin fela í sér að hlutur ríkisins í bankanum verði seldur í markaðssettu útboði eða útboðum.

    27. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Nýr tækniskóli rís í Hafnarfirði

    Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029.

    25. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins

    Skýrsla starfshóps um breytingar á gildandi fyrirkomulagi launa æðstu embættismanna

    Starfshópur fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á gildandi fyrirkomulagi launaákvarðana æðstu embættismanna, sem skipaður var í nóvember 2023, hefur skilað áfangaskýrslu með tillögum sínum um breytt viðmið við launaákvarðanir æðstu embættismanna.

    24. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Kynjuð fjárlagagerð

    Ísland fyrst þjóðríkja til að gefa út kynjað skuldabréf

    Ríkissjóður Íslands hefur gefið út kynjað skuldabréf að fjárhæð 50 milljónir evra, jafnvirði um 7,5 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,4% fasta vexti og voru gefin út til 3 ára.

    21. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Ferðaþjónusta

    Ferðamönnum fjölgar milli ára og bókunarstaða áfram góð

    Árið 2023 var gott ár í ferðaþjónustu á Íslandi og sóttu um 2,2 milljónir manna landið heim. Aðeins einu sinni áður höfðu erlendir ferðamenn verið fleiri. Það var árið 2018 þegar 2,3 milljónir erlendra ferðamanna lögðu leið sína hingað til lands. Ferðamenn sem komu hingað í fyrra eyddu að jafnaði meira en árið 2018.

    20. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ný skýrsla kjaratölfræðinefndar

    Út er komin vorskýrsla kjaratölfræðinefndar 2024. Í skýrslunni er áhersla lögð á umfjöllun um launaþróun eftir mörkuðum og heildarsamtökum í nýliðinni kjaralotu sem náði til tímabilsins frá nóvember 2022 til janúar 2024 auk umfjöllunar um launastig á árinu 2023, kjarasamninga, efnahagsmál og sérkenni íslensks vinnumarkaðar.

    14. jún. 2024Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum - Ítarlegri kortlagning aðgerða og ávinnings en áður

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra kynntu uppfærða útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum í dag.

    14. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    80 milljarða stuðningur ríkissjóðs vegna Grindavíkur

    Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna fjölbreyttra stuðningsaðgerða við Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga árin 2023 og 2024 nemi um 80 milljörðum króna. Ráðuneytið hefur tekið saman kostnað ríkisins sem fellur til vegna ýmissa stuðningsaðgerða við Grindavík sem nýleg lög kveða á um, sem og vegna aukinna fjárveitinga til stofnana, einkum Almannavarna, vegna jarðhræringanna.

    • First
    • Prev
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband