Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 651–700 af 775
    Raða eftir:
    13. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Starfshópur vinnur frumvarp um afnám undanþágu frá fasteignamatsskyldu rafveitna

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem ætlað er að semja lagafrumvarp og eftir atvikum reglugerðir sem miða að því að afnema undanþágu frá fasteignamatsskyldu rafveitna.

    06. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Upplýsingar um fjárhagsleg afdrif fólks sem bjó eða starfaði í Grindavík

    Fjármála og efnahagsráðuneytið safnar mánaðarlegum upplýsingum um fjárhagsleg afdrif fólks sem hafði búsetu eða starf í Grindavík í október 2023 og veltu fyrirtækja í Grindavík. Upplýsingunum er safnað í þeim tilgangi að fylgjast með hvernig fólki sem orðið hefur fyrir beinum áhrifum af jarðhræringum og eldgosum við bæinn reiðir af í kjölfarið.

    05. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Umræðuskýrsla um fjármálareglur

    Í tengslum við birtingu fjármálaáætlunar áranna 2025-2029 hefur fjármála- og efnahagsráðherra lagt fyrir Alþingi umræðuskýrslu um fjármálareglur, eins og tiltekið var í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn verðbólgu 5. júní á sl. ári.

    03. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Aukinn skýrleiki og bætt samkeppnishæfni með breytingum á lögum um virðisaukaskatt

    Aukinn skýrleiki og bætt samkeppnishæfni með breytingum á lögum um virðisaukaskatt Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur lagt í samráðsgátt drög að frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Þar er m.a. lagt til að einfalda og skýra fyrirkomulag álagningar virðisaukaskatts vegna sölu á þjónustu milli landa í viðskiptum milli fyrirtækja (B2B). Lagt er til að tekið verði upp samskonar fyrirkomulag og er í virðisaukaskattstilskipun Evrópusambandsins.

    31. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Ferðakostnaður

    Dagpeningar innanlands – auglýsing nr. 1/2024 (gildir frá 1. júní 2024)

    Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins.

    31. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Sendiráð Íslands í London

    Fjármálaráðherra opnaði fyrir viðskipti dagsins í Kauphöllinni í London

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, opnaði í morgun fyrir viðskipti dagsins í Kauphöllinni í London, London Stock Exchange. Opnun ráðherra kemur í kjölfar farsællar skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs í mars sl. Þá gaf ríkissjóður út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra til 10 ára, sem samsvarar um 111 milljörðum króna, en þau voru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

    24. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Íslandsbanki, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Arctica Finance til ráðgjafar vegna sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Arctica Finance hf. sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.

    24. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áætlun um innleiðingu EES-gerða á fjármálamarkaði birt í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda áætlun um innleiðingu 24 EES-gerða á fjármálamarkaði.

    22. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Árlegum viðræðum sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við íslensk stjórnvöld og aðra hagaðila lokið

    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í dag álit sendinefndar sinnar (e. Concluding Statement) eftir viðræður við íslensk stjórnvöld og aðra hagaðila síðustu tvær vikur. Viðræðurnar voru hluti af árlegri úttekt sjóðsins á stöðu og horfum í íslensku atvinnulífi (e. Article IV Consultation). Hliðstæðar úttektir eru gerðar á hverju ári í öllum aðildarlöndum sjóðsins. Formaður sendinefndar sjóðsins að þessu sinni var Magnus Saxegaard.

    17. maí 2024Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Frekari stuðningsaðgerðir fyrir Grindavík kynntar

    Ríkisstjórnin kynnti í dag tillögur um frekari stuðning við heimili og fyrirtæki í Grindavík. Tillögurnar felast í stuðningslánum með ríkisábyrgð til grindvískra fyrirtækja, viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta.

    17. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Heilbrigðismál, Löggæsla

    Fjölgun starfa í heilbrigðisþjónustu helsta ástæða fleiri starfa hjá ríkinu

    Fjölgun stöðugilda í heilbrigðisþjónustu er helsta ástæða fjölgunar starfa hjá ríkinu undanfarin ár. Næst mest hefur aukningin orðið í löggæslu.

    15. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Þórkatla hefur undirritað 471 kaupsamning vegna íbúðarhúsnæðis í Grindavík

    Fasteignafélagið Þórkatla hefur yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík eða um 85% allra umsókna sem borist hafa. Alls hefur félagið fengið 781 umsókn um kaup á íbúðarhúsnæði í bænum, en heildarfjöldi þeirra eigna sem geta fallið undir úrræðið er um 900.

    15. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun

    Flestar stofnanir hafa innleitt nýskapandi verkefni síðastliðin tvö ár

    79% stofnana ríkisins hafa innleitt að minnsta kosti eitt nýskapandi verkefni á síðastliðnum tveimur árum, samkvæmt Nýsköpunarvoginni. Stærstur hluti hlutfall verkefna hafa skilað aukinni skilvirkni og auknum gæðum en tækni er áfram helsti drifkraftur nýsköpunar hjá ríkinu.

    14. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Óskar Jósefsson skipaður forstjóri FSRE

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað Óskar Jósefsson, forstjóra FSRE.

    07. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Íslandsbanki

    Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans til ráðgjafar vegna sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.

    07. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Viljayfirlýsing um uppbyggingu Sementsreits á Akranesi undirrituð

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í gær ásamt Haraldi Benediktssyni, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu Sementsreits á Akranesi fyrir starfsemi ríkis og sveitarfélagsins.

    06. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Sigurður Ingi sótti fund norrænna fjármálaráðherra

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra sótti dagana 3.-4. júní fund norrænna fjármálaráðherra í Stokkhólmi. Á fundinum ræddu ráðherrarnir þær áskoranir sem blasa við á Norðurlöndum varðandi framleiðni.

    04. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Opinn fundur um þátttöku íslenskra aðila í tilraunaverkefni um stafrænt auðkennaveski

    Þann 16. apríl verður haldinn opinn fundur um þátttöku íslenskra aðila í tilraunaverkefni um EU Digital Identity Wallet, eða stafrænt auðkennaveski.

    04. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Þjóðlendur

    Málsmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12 frestað

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur óskað eftir því að málsmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12 (eyjar og sker) verði frestað svo unnt sé að endurskoða kröfur ríkisins með hliðsjón af betri gögnum. Þann 2. febrúar sl. voru settar fram kröfur fyrir hönd ríkisins um þjóðlendur á svæði 12 sem varða eyjar og sker.

    30. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Flutningur ráðuneytisstjóra milli fjármála- og efnahagsráðuneytis og innviðaráðuneytis

    Fjármála- og efnahagsráðherra , innviðaráðherra og Hermann Sæmundsson hafa gert með sér samkomulag um flutning Hermanns í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Hermann tekur við frá og með 1. maí 2024.

    29. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Stafrænt Ísland

    Upptaka frá kynningarfundi um stafrænt auðkennaveski

    Þann 16. apríl síðastliðinn var haldinn kynningarfundur um þátttöku íslenskra aðila í einu tilraunaverkefna Evrópusambandsins um stafrænt auðkennavesti (EU Digital Identity Wallet). Fundurinn var haldinn í húsakynnum Landsbankans og sóttu um 200 manns fundinn.

    24. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Afkomuspá AGS ekki eins fjarri fjármálaáætlun og virðist við fyrstu sýn

    Nýleg spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) gerir ráð fyrir umtalsvert lakari afkomu hins opinbera en nýframlögð fjármálaáætlun áranna 2025-2029 stefnir að. Skýringuna má m.a. finna í því að AGS tekur ekki tillit til óútfærðra aðhaldsráðstafana.

    18. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Opinber innkaup

    Öflug þekkingarstofnun með sameiningu verkefna Ríkiskaupa við Fjársýsluna

    Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra mælti í gær á Alþingi fyrir frumvarpi sem felur í sér sameiningu verkefna Ríkiskaupa við Fjársýsluna í öfluga þekkingarstofnun með það að meginhlutverki að ná fram bættum ríkisrekstri og hagræðingu.

    16. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sterk staða varin og stuðlað að lækkun verðbólgu

    Á tímabili nýrrar fjármálaáætlunar fyrir árin 2025-2029 sem Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti í dag verður áhersla á að verja sterka stöðu með hóflegum vexti útgjalda til að stuðla að lækkun verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta. Þannig skila þær launahækkanir sem samið var um í kjarasamningum auknum kaupmætti til almennings.

    15. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Stafrænt Ísland

    Þétt setinn fundur um bætta þjónustu hins opinbera

    Fundur með helstu þjónustustofnunum ríkisins sem haldinn var fyrir helgi var vel sóttur en þar var rætt um stöðu og framþróun þjónustunnar, auk þess að fjalla um tækifæri gervigreindar fyrir þjónustu hins opinbera. Markmið fundarins voru umræða og aðgerðir um hvernig megi bæta þjónustu hins opinbera meðal annars út frá stefnu um opinbera þjónustu sem nú er í vinnslu.

    10. apr. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Opnað að nýju fyrir umsóknir um hlutdeildarlán

    Opnað hefur verið að nýju fyrir umsóknir um hlutdeildarlán hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).

    07. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Álagning opinberra gjalda einstaklinga árið 2024

    Í kjölfar álagningar ríkisskattstjóra vegna opinberra gjalda á einstaklinga árið 2024 tók ráðuneytið saman helstu niðurstöður, þar sem tekið er mið af tekjum einstaklinga árið 2023 og eignastöðu þeirra 31. desember 2023.

    07. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál

    Hvatt til enn frekari notkunar rafmagns-, vetnis- og metanbíla með breyttum reglum um bifreiðahlunnindi

    Í júlí taka gildi breytingar á reglum um bifreiðahlunnindi sem hafa það að markmiði að hvetja enn frekar til notkunar rafmagns-, vetnis- og metanbíla umfram bensín- og díselbíla.

    25. mar. 2024Moody‘s, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rit og skýrslur, Annað, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla Moody's í mars 2024

    mars 2024 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla Moody's í mars 2024 Skýrsla Moody's í mars 2024 Moody‘s Efnahagsmál og opinber fjármál Til baka

    21. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík

    Örn Viðar Skúlason ráðinn framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu

    Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra félagsins. Örn Viðar lauk meistaraprófi í hagverkfræði frá Tækniháskólanum í Berlín og meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.  Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri fyrirtækja og hefur undanfarin ár starfað sem fjárfestingarstjóri hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins ásamt því að sitja í stjórnum fjölmargra sprotafyrirtækja.

    21. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Jafnrétti

    Fjármála- og efnahagsráðherra á þingi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa metnað til að vera áfram í farabroddi til þess að hraða jafnrétti kynjanna. Ísland er ekki framarlega í jafnrétti kynjanna því hér sé sterkt samfélag, heldur er samfélagið sterkt vegna þess að það búi við jafnrétti kynjanna.

    21. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland

    Möguleikar til afhendingar gagna með öðrum hætti en í stafrænu pósthólfi útfærðir í reglugerð

    Reglugerð um framkvæmd laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda tók nýlega gildi. Í henni eru nánar útfærð ýmis atriði sem snúa að pósthólfinu og notkun þess, meðal annars um hvaða gögn er heimilt að birta í pósthólfinu, hverjir hafa aðgang að því og hvernig er staðið að því að tryggja öryggi í rekstri þess.

    14. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Farsæl útgáfa ríkissjóðs á grænu skuldabréfi í evrum

    Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

    13. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Aukið valfrelsi í séreignarsparnaði í samráðsgátt

    Í drögum að frumvarpi sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt er lagt til að frelsi fólks til ávöxtunar á séreignarsparnaði verði aukið. Lagt er til að vörsluaðilum séreignarsparnaðar verði heimilað að verða við beiðni einstaklings um að iðgjöldum hans til séreignar verði varið til fjárfestingar í tilteknum sjóði eða sjóðum um sameiginlega fjárfestingu. Það hefur í för með sér, verði frumvarpið að lögum, að einstaklingur mun sjálfur geta valið um í hvaða sjóði eða sjóðum fjárfest er til ávöxtunar sparnaðarins, en þó innan þeirra marka sem frumvarpið felur í sér.

    12. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Félags- og fjölskyldumál

    Barnabætur fyrirframgreiddar á fæðingarári barns

    Barnabætur verða frá og með næsta ári einnig fyrirframgreiddar á fæðingarári barns í samræmi við nýja reglugerð fjármála- og efnahagsráðherra sem tekur gildi 1. janúar 2025.

    12. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Heimild til skattfrjálsrar nýtingar séreignarsparnaðar framlengd um eitt ár

    Alþingi samþykkti á dögunum að heimild til skattfrjálsrar nýtingar séreignarsparnaðar inn á höfuðstól fasteignaláns vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota sem og heimild til skattfrjálsrar nýtingar á uppsöfnuðum séreignarsparnaði við öflun íbúðarhúsnæðis til eigin nota verði framlengdar til og með 31. desember 2025. Um er að ræða úrræði sem sótt er um á leidretting.is.

    07. mar. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fatlað fólk, Stafrænt Ísland, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Áfram unnið að þróun lausna á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk

    Tillögur starfshóps um þróun lausna á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk voru kynntar í ríkisstjórn á dögunum. Vinnan byggir á viljayfirlýsingu sem fjórir ráðherrar undirrituðu vorið 2023 og var hópnum falið að útfæra tillögur og tryggja aukið samstarf á milli aðila innan og utan stjórnkerfisins.

    23. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, ÍL-sjóður

    Viðræður hefjast við lífeyrissjóði um uppgjör skuldabréfa ÍL-sjóðs

    Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ÍL-sjóðs og íslenska ríkisins, og fulltrúar 18 lífeyrissjóða, sem saman fara með stærstan hluta skuldabréfa sem ÍL-sjóður er útgefandi að, hafa ákveðið að hefja viðræður um uppgjör á skuldabréfum sjóðsins.

    23. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Lög um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík samþykkt – upplýsingar og umsókn fyrir íbúa á Ísland.is

    Frumvarp um kaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík var samþykkt á Alþingi í gær. Upplýsingasíða fyrir Grindvíkinga er komin í loftið á Ísland.is þar sem m.a. er að finna svör við algengum spurningum. Enn er unnið að útfærslu á einhverjum atriðum en um leið og þau skýrast verða upplýsingar uppfærðar.

    22. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki

    Drög að frumvarpi um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

    Í eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki kemur fram að ætlunin sé að selja eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka hf. þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur efnt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda um drög að frumvarpi um ráðstöfun eftirstandandi eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka.

    21. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland

    Stafrænt Ísland hlýtur alþjóðleg verðlaun

    Stafrænt Ísland, sem vinnur að því að bæta stafræna opinbera þjónustu í gegnum Ísland.is, hlýtur verðlaun WSA ((World Summit Awards) í ár.

    19. feb. 2024Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Greining á aðkomu einkaaðila að uppbyggingu innviða við Jökulsárlón

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og fjármála-og efnahagsráðuneytið hafa í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð látið framkvæma greiningu á mögulegri aðkomu einkaaðila að uppbyggingu á nauðsynlegum innviðum í þágu náttúruverndar og ferðamennsku við Jökulsárlón.

    19. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða í leigufélögum í samráðsgátt

    Ráðuneytið hefur birt í samráðgátt stjórnvalda áform um breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þar eru kynnt fyrirhuguð áform stjórnvalda um að leggja fram á vormánuðum þessa árs tillögu um breytingar á lögbundnum fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða. Tilgangurinn er að rýmka heimildir lífeyrissjóða til þess að fjárfesta í leiguhúsnæði til einstaklinga.

    09. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Viljayfirlýsing um uppbyggingu Laugardalsvallar og nýjan frjálsíþróttaleikvang

    Forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Reykjavíkurborg, Knattspyrnusamband Íslands og Frjálsíþróttasamband Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðaruppbyggingu þjóðarleikvanga fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir í Laugardal.

    09. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland

    Ný innskráningarþjónusta Ísland.is eykur öryggi og gagnsæi

    Stafrænt Ísland kom á laggirnar nýrri innskráningarþjónustu fyrir opinbera aðila árið 2021. Henni var ætlað að leysa í áföngum af hólmi eldri innskráningarþjónustu, sem komin var til ára sinna. Markmiðið með endurnýjun innskráningarþjónustunnar er fyrst og fremst að tryggja gagnaöryggi, gagnsæi í þjónustu við viðkvæma hópa og þann skalanleika tækniþjónustu sem þarf í nútíma umhverfi, en á næstunni tekur nýja innskráningarþjónustan alfarið við þeirri eldri.

    07. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Þenslan í rénun – aukið jafnvægi í þjóðarbúinu

    Markmið stjórnvalda um aukið efnahagslegt jafnvægi, minni verðbólgu og að skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta ganga hratt eftir. Efnahagsumsvif standa nú nokkurn veginn í stað eftir alls 13% hagvöxt undanfarin tvö ár. Kólnun umsvifa á sér stað nokkuð þvert á atvinnugreinar að undanskildum byggingariðnaði.

    07. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Búið að semja við um þriðjung af starfsfólki ríkisins

    Samninganefnd ríkisins hefur gert kjarasamninga við þriðjung af starfsfólki ríkisins. Sameyki, stærsta stéttarfélagið innan BSRB, undirritaði fyrst allra kjarasamninga snemma í júní og í kjölfarið undirrituðu fleiri BSRB félög og Starfsgreinasambandið.

    03. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fitch

    Fitch staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru stöðugar.

    11. jan. 2024Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Forsætisráðherrar Norðurlanda vilja auka vægi stafrænnar þjónustu þvert á landamæri

    Aukin stafræn þjónusta þvert á landamæri gegnir lykilhlutverki í að auðvelda frjálsa för borgara, fyrirtækja, fjármagns, gagna, vara og þjónustu á Norðurlöndum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlandanna sem funduðu í vikunni í tengslum við fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík. Í yfirlýsingunni kemur fram að flýta eigi fyrir framgangi stefnu frá 2019 um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030.

    15. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Ársfjórðungsuppgjör

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2023

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2023 liggur nú fyrir. Uppgjörið í heild sinni er aðgengilegt á vef Fjársýslu ríkisins.

    • First
    • Prev
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband