Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Öryggis- og varnarmál
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 101–150 af 171
    Raða eftir:
    11. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Varnarmálaráðherrafundur sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) í Bodø

    Varnarmálaráðherrar og aðrir fulltrúar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) funduðu í Bodø, Noregi dagana 4.-5. nóvember. Bretar leiða starf sveitarinnar, sem Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Holland eiga einnig aðild að.

    06. jún. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Efling varnargetu og stuðningur við Úkraínu

    Aukin útgjöld til varnarmála í þágu sameiginlegra varna, stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Haag voru meginefni fundar varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem lauk ´´i gær í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel.

    29. maí 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra Bretlands í heimsókn á Íslandi

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og David Lammy, utanríkisráðherra Bretlands, áttu tvíhliða fund á öryggissvæðinu í Keflavík í dag. Breski ráðherrann kom í stutta vinnuheimsókn til Íslands ásamt sendinefnd og yfirgaf landið samdægurs. Um var að ræða fyrstu heimsókn utanríkisráðherra Bretlands til landsins síðan Jack Straw, þáverandi utanríkisráðherra, heimsótti Ísland heim í tengslum við vorfund Atlantshafsbandalagsins sem fram fór hérlendis árið 2002.

    28. maí 2025Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Samhent eru Evrópa og Norður Ameríka sterkust

    Árásarstríð Rússlands í Úkraínu, öryggismál á norðurslóðum og framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins (NATO) voru meðal umræðuefna á tvíhliða fundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, sem fram fór í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Mikilvægi Atlantshafstengslanna voru einnig til umræðu, sem og mótun nýrrar öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland.

    24. maí 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Samráðsfundur bandalagsríkja á norðurslóðum

    Samráðsfundur bandalagsríkja á norðurslóðum um viðbúnað og eftirlit á svæðinu var haldinn á Íslandi 21.-22. maí. Fundinn sóttu háttsettir embættismenn varnarmálaráðuneyta Bandaríkjanna, Kanada og Norðurlandanna fimm, þar á meðal fulltrúar Færeyja og Grænlands.

    21. maí 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    EES-ríkin efla samstarf á sviði utanríkis- og öryggismála

    EFTA-ríkin innan EES, Ísland, Noregur og Liechtenstein, og Evrópusambandið (ESB) ætla að efla samstarf sitt á sviði utanríkis- og öryggismála. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra undirritaði sameiginlega yfirlýsingu þess efnis í tengslum við fund EES-ráðsins sem fram fór í Brussel í dag. Þar er kveðið á um aukið pólitískt samráð, að ríkin samræmi afstöðu til alþjóðamála, efli samstarf sitt á sviði öryggis- og varnarmála og vinni saman að því að standa vörð um mannréttindi, þ.m.t. jafnrétti.

    21. maí 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Tékkland sinnir loftrýmisgæslu við Ísland í fjórða sinn

    Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst á morgun með komu flugsveitar tékkneska flughersins til Íslands. Alls munu um 80 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur til landsins með fimm JAS-39C Gripen orrustuþotur.

    20. maí 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við Úkraínu og skuggaflotinn í brennidepli á utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins

    Áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, fjölþáttaógnir og vaxandi áskoranir tengdar hinum svokallaða skuggaflota Rússlands voru efst á baugi á fundi utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsins sem lauk í Vihula í Eistlandi á föstudag.

    15. maí 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Leiðin til Haag og friðarumleitanir í Úkraínu

    Aukin framlög til varnarmála, undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins, friðarumleitanir og áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu voru í brennidepli á óformlegum fundi utanríkisráðherra bandalagsins, sem lauk í Tyrklandi fyrr í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    15. maí 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins í heimsókn á Íslandi

    Christopher G. Cavoli, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins (SACEUR) sem jafnframt er yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, heimsótti Ísland í vikunni. Cavoli fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem gerði grein fyrir aukinni áherslu íslenskra stjórnvalda á öryggis- og varnarmál og yfirstandandi stefnumótunarvinnu. Þá voru horfur í öryggismálum og varnarviðbúnaður bandalagsins sömuleiðis til umræðu.

    14. maí 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ísland tók þátt í stærstu netöryggisæfingu heims

    Hópur íslenskra netöryggissérfræðinga tók þátt í stærstu netöryggisæfingu í heiminum, Skjaldborg 2025 (Locked Shields 2025), dagana 28. apríl til 9. maí. Rúmlega 4.000 þátttakendur frá 41 landi tóku þátt í æfingunni, sem skiptust í 17 fjölþjóðleg lið sem kepptust sín á milli. Ísland myndaði sameiginlegt lið með Svíþjóð og Bandaríkjunum.

    13. maí 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Efling norræns varnarsamstarfs

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna undirrituðu á fundi sínum í Rovaniemi í Finnlandi 6.-7. maí sl. uppfært stofnsamkomulag norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO).

    12. maí 2025Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Sendiráð Íslands í Berlín, Utanríkismál

    Náið samstarf Íslands og Þýskalands

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með Dr. Johan Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, í Berlín í dag. Á fundinum ræddu ráðherrarnir stöðu alþjóða- og öryggismála, öryggi á Norður Atlantshafi, málefni norðurslóða, einarðan stuðning ríkjanna við Úkraínu og stöðu yfirstandandi friðarumleitana.

    05. maí 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Tvíhliða samráð Íslands og Bretlands

    Staða alþjóðamála og aukið samstarf á sviði varnarmála voru meðal umræðuefna í reglulegu tvíhliða pólitísku samráði Íslands og Bretlands sem fram fór í London í síðustu viku. Árlegu samráði ríkjanna var hleypt af stokkunum árið 2019, en Bretland er eitt af nánustu samstarfsríkjum Íslands bæði á hinu pólitíska sviði og í varnarmálum.

    29. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Kafbátaeftirlitsæfing Atlantshafsbandalagsins hafin

    Árleg kafbátaeftirlitsæfing Atlantshafsbandalagsins „Dynamic Mongoose 2025“ fer fram dagana 28. apríl til 9. maí á hafsvæðinu á milli Íslands og Noregs. Meginmarkmið æfingarinnar er að efla getu og samhæfingu þátttökuríkjanna við kafbátaeftirlit, yfirborðsvarnir og sameiginleg viðbrögð við aðsteðjandi ógnum.

    13. apr. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Vel heppnað námskeið um öryggis- og varnarmál

    Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins stendur fyrir reglubundnum námskeiðum um öryggis- og varnarmál, í samstarfi við skrifstofu almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu, tvisvar á ári. Fyrra námskeiði ársins lauk á föstudaginn.

    04. apr. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Samstaða á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins

    Aukin framlög til varnarmála, innrásarstríðið í Úkraínu og samstarf við Indó-Kyrrahafsríkin og Evrópusambandið voru meðal helstu umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í höfuðstöðvum þess í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn sem var fyrsti fundur utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, með utanríkisráðherrum bandalagsins.

    13. mar. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra Tékklands í heimsókn á Íslandi

    Málefni Úkraínu, staða öryggis- og varnarmála í Evrópu, náið vinsamband Íslands og Tékklands og fyrirhuguð loftrýmisgæsla tékkneska flughersins á Íslandi, var efst á baugi fundar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherar og Jan Lipavský utanríkisráðherra Tékklands sem fram fór í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í Reykjavík í dag.

    12. mar. 2025Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu vaxandi ógn frá Rússlandi og stuðning við Úkraínu

    Ógnin frá Rússlandi og áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu voru meðal helstu umræðuefna á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem fram fór í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    11. mar. 2025Almannaöryggi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Um hundrað lokið námskeiði í öryggis- og varnarmálum

    Nú hafa hátt í hundrað sótt reglubundið námskeið varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins um öryggis og varnarmál, en fimmti hópurinn lauk því í síðustu viku. Um er að ræða námskeið sem haldið er tvisvar á ári í samstarfi við skrifstofu almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu.

    09. mar. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Fjölþjóðlega sprengjueyðingaræfingin Northern Challenge hefst í næstu viku

    Sprengjusérfræðingar frá 18 löndum hafa í vikunni komið til landsins vegna árlegu sprengjueyðingaræfingarinnar Northern Challenge, sem hefst formlega á mánudaginn og er nú haldin í tuttugasta og fjórða sinn hérlendis.

    28. feb. 2025Fjarskipti, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Netöryggissveitin CERT-IS flytur í utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðuneytið og Fjarskiptastofa undirrituðu í dag samkomulag um flutning á starfsemi netöryggissveitarinnar CERT-IS í starfstöð ráðuneytisins. Á næstu vikum flyst því starfsemi netöryggissveitarinnar frá starfstöð Fjarskiptastofu við Suðurlandsbraut og í húsnæði utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í Reykjavík. Með flutningnum er netöryggissveitinni tryggð fyrsta flokks starfsaðstaða sem og öflugra samstarf við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

    27. feb. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Brýnt að efla eigin getu og varnarsamvinnu

    Mikilvægi þess að Ísland efli enn frekar samstarf sitt við bandalagsríki og styrki eigin getu til að tryggja stöðuvitund, öryggi, varnir og áfallaþol voru leiðarstef opnunarávarps Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á málþingi um öryggismál á viðsjárverðum tímum sem haldið var í Norræna húsinu í gær. Að málþinginu stóð Varðberg - samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál í samstarfi við utanríkisráðuneytið.

    25. feb. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Bandarískur kafbátur í þjónustuheimsókn á Íslandi

    Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur, USS Delaware, verður í stuttri þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag. Varðskipið Freyja fylgir kafbátnum um landhelgina og í utanverðan Eyjafjörð, þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn. USS Delaware er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn.

    16. feb. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Úkraína í brennidepli á öryggisráðstefnunni í München

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti öryggisráðstefnuna í München sem lauk í dag, ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.

    14. feb. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Öryggismál í Evrópu í brennidepli í München

    Vaxandi spenna í alþjóðamálum, öryggismál í Evrópu, stríðið í Úkraínu og horfur í alþjóðahagkerfinu eru á meðal þeirra mála sem rædd verða á hinni árlegu Öryggismálaráðstefnu í München sem sett var í dag og stendur fram á sunnudag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur þátt í ráðstefnunni og átti í dag fjölda tvíhliða funda með öðrum evrópskum leiðtogum þar sem þau alþjóðamál sem hæst ber um þessar mundir voru rædd.

    13. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarbúnað og stuðning við Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarviðbúnað og fælingarmátt bandalagsins og stuðning bandalagsríkja við Úkraínu á ráðherrafundi sem lauk í Brussel í dag. Á fundinum var farið yfir helstu aðgerðir og áætlanir sem miða að því að styrkja fælingar- og varnargetu bandalagsins, meðal annars aukin framlög til varnarmála, eflingu herstjórnarkerfisins, ítarlegri áætlanagerð og samstarf ríkjanna á sviði hergagnaframleiðslu og tækniþróunar.

    06. feb. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu áréttaður á leiðtogafundi B9-ríkjanna og Norðurlandanna

    Leiðtogafundi níu Atlantshafsbandalagsríkja á austurvæng bandalagsins lauk í Vilnius, höfuðborg Litáen, í dag. Um er að ræða samráðshóp hinna svokölluðu B9-ríkja, þ.e. Búlgaríu, Tékkland, Eistland, Ungverjaland, Lettland, Litáen, Pólland, Rúmeníu og Slóvakíu.

    30. jan. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Norrænt varnarsamstarf stendur styrkari fótum en nokkru sinni fyrr

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu í dag í Helsinki þar sem Finnland gegnir formennsku í norræna varnarsamstarfinu (NORDEFCO) í ár.

    20. jan. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Aukið samstarf til að efla öryggi neðansjávarinnviða

    Ísland, Bandaríkin, Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin hafa ákveðið að hrinda í framkvæmd fjórum tillögum til að auka öryggi neðansjávarinnviða. Í sameiginlegri niðurstöðu ríkjanna eru eftirfarandi atriði dregin fram:

    16. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

    Stuðningur við Úkraínu og varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í höfuðstöðvum bandalagsins í dag.

    15. jan. 2025Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Jens Stoltenberg falið að gera tillögur um að efla öryggis- og varnarsamstarf NB8-ríkjanna

    Ríkisstjórnaroddvitar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) fólu fyrr í dag Jens Stoltenberg, fyrrum framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, að vinna að sjálfstæðri skýrslu og tillögum sem miða að því að efla samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála.

    10. jan. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Leiðtogar framtíðarinnar tókust á við ímyndaða áskorun á vettvangi Atlantshafsbandalagsins

    Hátt í hundrað ungmenni, á aldrinum 18 til 35 ára, tóku þátt í svokallaðri Módel-NATO ráðstefnu, sem fram fór í Smiðju Alþingis í gær. Þar var starfsemi Atlantshafsbandalagsins, þ.e. fundur í Norður-Atlantshafsráðinu, endursköpuð þar sem þátttakendur tókust sameiginlega á við ímyndaða öryggisáskorun.

    19. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Dómsmálaráðuneytið

    Eftirsótt námskeið um öryggis- og varnarmál

    Um 50 manns hafa nú útskrifast af ítarlegu námskeiði um öryggis- og varnarmál, sem varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins og skrifstofa almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu halda sameiginlega. Haldin hafa verið þrjú námskeið sem hafa verið vel sótt.

    17. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Leiðtogafundur JEF undirstrikar stuðning við varnarbaráttu Úkraínu

    Þróun öryggismála í Evrópu, varnarstuðningur við Úkraínu og aukið samstarf JEF ríkjanna var meðal þess sem leiðtogar Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) ræddu á fundi sínum í Tallinn í Eistlandi sem lauk í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn fyrir hönd forsætisráðherra.

    04. des. 2024Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Netöryggisráðstefna Atlantshafsbandalagsins haldin á Íslandi

    Um 200 sérfræðingar í netöryggismálum frá bandalagsríkjum Atlantshafsbandalagsins tóku þátt í ráðstefnu sem fram fór í Reykjavík dagana 9.-11. apríl. Þar voru til umræðu helstu áskoranir og ógnir sem stafa að netöryggi ríkjanna, en viðburðurinn var haldinn á vegum Atlantshafsbandalagsins í samstarfi við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS.

    28. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál

    Samantekt um aðgerðir í varnarmálum

    Utanríkisráðuneytið hefur unnið stutta samantekt um helstu áfanga í vinnu að öryggis- og varnarmálum síðustu ár. Þar kemur fram að búið er efla þátttöku í starfi og verkefnum Atlantshafsbandalagsins, stórauka norrænt varnarsamstarf og aðra svæðisbundna samvinnu og efla samstarf við helstu grannríki í Norður-Evrópu.

    22. nóv. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Norðurlöndin einróma um öflugri stuðning við Úkraínu

    Áframhaldandi og öflugri stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og aukið samstarf Norðurlandanna á sviði öryggis- og varnarmála voru helstu umræðuefni fundar varnarmálaráðherra norrænu ríkjanna sem fram fór í gær.

    12. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginleg vinnustofa Íslands og Írlands um öryggi sæstrengja

    Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins og varnarmálaráðuneyti Írlands stóðu sameiginlega að tveggja daga vinnustofu sérfræðinga um öryggi sæstrengja dagana 3.-5. desember. Vinnustofan, sem fór fram á Írlandi, var haldin með stuðningi sjóðs Atlantshafsbandalagsins, Vísindi í þágu friðar og öryggis.

    10. nóv. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Traust varnarsamstarf áréttað á fundi með yfirherforingja Bandaríkjahers

    Áskoranir í öryggismálum, samstarf á norðurslóðum og tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna voru meðal málefna sem rædd voru á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Charles Q. Brown, formanni bandaríska herráðsins. Um var að ræða fyrstu heimsókn formanns bandaríska herráðsins til Íslands í áraraðir.

    10. nóv. 2024Utanríkismál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Yfirmenn hermála norðurskautsríkja funduðu á Íslandi

    Yfirmenn hermála á Íslandi, Bandaríkjunum, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Kanada og Svíþjóð héldu fund á öryggissvæðinu í Keflavík á miðvikudag þar sem öryggismál á norðurslóðum voru til umræðu.

    07. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Samstaða innan Atlantshafsbandalagsins um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu

    Áframhaldandi og einarður stuðningur Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu var áréttaður á þriggja daga leiðtogafundi bandalagsins, sem lauk í Washington D.C. í Bandaríkjunum í dag. Bandalagsríkin ítrekuðu jafnframt mikilvægi þess að halda áfram að styrkja fælingar- og varnarstöðu sína samhliða því að efla samvinnu við helstu samstarfsríki til mæta nýjum áskorunum.

    22. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu sameiginlegar varnir og Úkraínu

    Sameiginlegar varnir, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu og aukið samstarf við Indó-Kyrrahafsríkin voru meðal helstu umræðuefna á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem lauk á föstudag í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel.

    14. okt. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Styrkur og samlegð í norrænu varnarsamstarfi til umræðu

    Yfirmenn hermála Norðurlandanna funduðu í síðustu viku um frekari útfærslu á varnasamstarfi ríkjanna og hvernig hægt er að auka sameiginlega getu og viðbragð innan ramma NORDEFCO. Fundurinn fór fram í Keflavík og var haldinn í samstarfi Íslands og Danmerkur, sem fer með formennsku í norræna varnarsamstarfinu í ár.

    04. okt. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við Úkraínu efst á baugi á utanríkisráðherrafundi NB8-ríkjanna

    Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, Úkraína og mögulegar leiðir til að efla stuðning við varnarstríð landsins á alþjóðavísu, og málefni Belarús voru í brennidepli á nýafstöðnum utanríkisráðherrafundi NB8-ríkjanna sem fram fór í Visby í Svíþjóð að þessu sinni. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin skipa NB8-ríkjahópinn.

    20. sep. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Stefnurammi fyrir norrænt varnarsamstarf

    Norðurlöndin tilkynntu í dag um undirritun tillagna að frekari útfærslu varnarsamstarfs ríkjanna (Nordic Defence Concept), sem markar mikilvægan áfanga í norrænni varnarsamvinnu sem heild.

    13. sep. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Varautanríkisráðherra Bandaríkjanna á Íslandi

    Aukið samstarf Bandaríkjanna og Íslands, m.a. á sviðum tækni og nýsköpunar, og tvíhliða samskipti þjóðanna voru á meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Kurt M. Campbell, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu í morgun.

    17. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsótti öryggissvæðið í Keflavík í tengslum við loftrýmisgæslu Bretlands

    Flugsveit frá breska flughernum sinnir nú reglubundinni loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35 orrustuþotum og 180 liðmönnum.

    07. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Washington

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington D.C. á morgun og stendur fram á fimmtudag. Þar verður þess minnst að 75 ár eru liðin frá stofnun bandalagsins.

    19. júl. 2024Utanríkismál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ísland og Kanada horfa til aukins samstarfs um öryggis- og varnarmál

    Aukið samstarf Íslands og Kanada um öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum var til umfjöllunar á ráðstefnu (e. Canada-Iceland Seminar: Maritime Defence and Security in the North) sem haldin var nýverið í Ottawa, höfuðborg Kanada.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband