07. des. 2016Dómsmálaráðuneytið, Almannaöryggi, Aðgerðir gegn mansali, Rit og skýrslur
Staða Íslands í mansalsmálum samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins
Út er komin árleg skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal. Í henni er fjallað um ástand mála í ríkjum heimsins og aðgerðir stjórnvalda til að takast á við mansal. Ríki eru flokkuð í fjóra flokka, eftir því hver staðan er. Ísland er flokkað í besta flokk í skýrslunni, svo sem verið hefur á undanförnum árum.