Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 101–150 af 539
    Raða eftir:
    30. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Stefna í fjarheilbrigðisþjónustu – skýrsla starfshóps

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta stefnu í fjarheilbrigðisþjónustu hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum.

    30. jún. 2026Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu

    júní 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu Til baka

    30. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áform um frumvarp til laga um Stafræna heilsu í Samráðsgátt

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar áform um frumvarp til laga um Stafræna heilsu í Samráðsgátt stjórnvalda, ásamt frummati á áhrifum lagasetningar. Frumvarpinu er ætlað að skapa heildstæða lagaumgjörð um starfsemi Stafrænnar heilsu og sameiginlega stafræna innviði heilbrigðiskerfisins. Frestur til að skila umsögnum er til 13. júlí.

    29. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðteymi fangelsa orðið hluti af réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala

    Rekstur geðteymi fangelsa færðist 1. maí síðastliðinn frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til Landspítala. Með breytingunni skapast aukin tækifæri til nánara samstarfs milli geðþjónustu Landspítala og geðteymis fangelsa með það að markmiði að bæta þjónustu við einstaklinga í viðkvæmri stöðu með flókinn geðrænan vanda og aukna áhættuhegðun.

    26. jún. 2026Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Almannaöryggi, Löggæsla, Umferð, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Undirbúningur vegna almyrkvans víða vel á veg kominn

    Undirbúningi í tengslum við almyrkvann þann 12. ágúst miðar almennt vel og er á mörgum stöðum á lokametrunum.

    26. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að reglugerð um heilsugæslu til umsagnar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um heilsugæslu. Með reglugerðinni er lögð áhersla á að skýra betur hvaða grunnþjónustu heilsugæslustöðvar skulu veita, óháð rekstrarformi, og stuðla þannig að bættu aðgengi almennings að heilsugæsluþjónustu. Umsagnarfrestur er til 24. júlí næstkomandi.

    25. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Fimm umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands

    Frestur til að sækja um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands rann út 22. júní sl. Umsækjendur um embættið eru fimm. Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins mun meta hæfni umsækjenda og skila ráðgefandi álitsgerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í stöðuna til 5 ára.

    24. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um fjarheilbrigðisþjónustu til umsagnar

    Fjarheilbrigðisþjónusta er orðin fastur hluti af íslensku heilbrigðiskerfi og fer ört vaxandi. Núgildandi umgjörð byggir á fyrirmælum landlæknis frá árinu 2019 sem endurspegla ekki lengur það tækni- og öryggisumhverfi sem þjónustan starfar í. Nýju reglugerðinni er ætlað að leysa þau fyrirmæli af hólmi og tryggja að öryggi, persónuvernd og gæði haldist í hendur við tækniþróun. Drög að reglugerðinni hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 22. júlí næstkomandi.

    23. jún. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum verður opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ

    Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og er undirbúningur framkvæmda þegar hafinn. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum. Fyrir skemmstu var annað hjúkrunarheimili opnað í Reykjanesbæ og stendur það við Nesvelli. Þegar bæði hjúkrunarheimilin verða komin í gagnið mun hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum hafa fjölgað um tæp 80% frá því í janúar sl.

    23. jún. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum verður opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ

    Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og er undirbúningur framkvæmda þegar hafinn. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum. Fyrir skemmstu var annað hjúkrunarheimili opnað í Reykjanesbæ og stendur það við Nesvelli. Þegar bæði hjúkrunarheimilin verða komin í gagnið mun hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum hafa fjölgað um tæp 80% frá því í janúar sl.

    23. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir meðferðarúrræðið Kúnstpásu við Landspítala

    Alma D. Möller hefur veitt 5 milljóna króna styrk til Kúnstpásu, sem er verkefni innan geðþjónustu Landspítala á sviði endurhæfingar. Byggt er á því að tengja endurhæfingu við skapandi greinar með þátttöku í list- og menningarstarfi og er markmiðið að efla virkni þátttakenda og styrkja færni þeirra og getu til þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.

    22. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta brautskráning úr meistaranámi í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

    Þann 19. júní sl. útskrifuðust 9 stúdentar frá hjúkrunardeild Háskólans á Akureyri (HA) með meistaragráðu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Þetta er fyrsti hópurinn sem útskrifast af þessari nýju námsbraut sem er samstarfsverkefni HA og Háskóla Íslands og var stofnuð að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins, í samræmi við stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda í þjónustu við fólk með heilabilun. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra, auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana.

    22. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Breytingar á lögum um sjúkratryggingar 1. ágúst

    Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp heilbrigðisráðherra um ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Markmið breytinganna er meðal annars að styrkja hlutverk Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem kaupanda heilbrigðisþjónustu, bæta eftirlit stofnunarinnar og stuðla að skilvirkari nýtingu fjármuna í heilbrigðiskerfinu. Einnig er vakin athygli á mikilvægum breytingum sem varða sjúkratryggða.

    19. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla ráðherra um framkvæmd lýðheilsustefnu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu sína um framkvæmd lýðheilsustefnu til næstu fimm ára. Lýðheilsustefna til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi árið 2021. Í skýrslu ráðherra eru sett fram forgangsverkefni næstu fimm ára og fjallað um stöðu verkefna sem er lokið eða komin á veg. Forgangsröðun aðgerða er endurmetin árlega í samræmi við fjárlög Alþingis.

    18. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Undirritun verksamnings og skóflustunga að nýrri legudeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

    Í dag undirrituðu Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Viðar Gunnarsson og Hjalti Steinþórsson frá GV- Gröfum verksamning við Nýjan Landspítala ohf. um jarðvinnu vegna byggingar nýrrar legudeildarbyggingar við Sjúkrahúsið á Akureyri. Viðbyggingin verður 13.600 fermetrar með aðstöðu fyrir skurðlækningadeild, lyflækningadeild og geðdeild, ásamt stoðrýmum og dag- og göngudeild geðdeildar.

    18. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reykjavík vettvangur stefnumótunar WHO um heilbrigðismál í Evrópu

    Fastanefnd Alþjóðaheilbrigðisnefndar Evrópu (WHO) fundaði í Reykjavík dagana 16. og 17. júní. Á fundinum komu saman fulltrúar aðildarríkja Evrópuskrifstofu WHO til að fjalla um helstu stefnumál sem verða til umfjöllunar á næsta fundi svæðisnefndar WHO í Evrópu. Það eru m.a. ný stefna til ársins 2030 um heilbrigða öldrun í Evrópu, vegvísir um ábyrga innleiðingu gervigreindar í heilbrigðisþjónustu og undirbúningur nýrrar áætlunar um heilsueflingu og forvarnir gegn langvinnum sjúkdómum.

    18. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sérnám eflt í heimilislækningum

    Heilbrigðisráðuneytið hefur tryggt aukið fjármagn sem gerir kleift að efla sérnám í heimilislækningum. Markvisst hefur verið unnið að því að efla heilsugæsluna síðustu ár og fjölga heimilislæknum. Liður í því hefur verið að fjölga sérnámsstöðum í heimilislækningum og styrkja umgjörð námsins á landsvísu. Árið 2017 voru 38 læknar skráðir í sérnám í heimilislækningum, þeir voru 95 árið 2022 og eru núna 120. Þetta kallar á aukna umsýslu við skipulagningu og stjórnun sérnámsins til að gera það sem best úr garði.

    16. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Dómi í plastbarkamáli áfrýjað

    Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að áfrýja dómi héraðsdóms í svokölluðu plastbarkamáli til Landsréttar.

    07. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar á komugjöldum 1. ágúst

    Þann 1. ágúst næstkomandi tekur gildi reglugerð um breytingar á komugjöldum í heilsugæslu. Þann 1. september verður tekið upp sérstakt komugjald vegna þjálfunar sem fellur utan afsláttarstofns greiðsluþátttökukerfis heilbrigðisþjónustu.

    05. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Veruleg fjölgun úrræða fyrir einstaklinga með heilabilun í samvinnu við Alzheimersamtökin

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Alzheimersamtökunum rekstrarfé til að opna 16 – 17 ný dagþjálfunarrými fyrir fólk með heilabilun strax á næsta ári og jafnframt vilyrði fyrir fjölgun rýma í 33 árið 2028. Alzheimersamtökin hófu rekstur sambærilegrar þjónustu með 33 rýmum á St. Jósefsspítala árið 2022 sem kallast Seiglan og verður nýja þjónustueiningin rekin undir sama nafni og á grundvelli sömu hugmyndafræði. Ráðherra sagði frá ákvörðun sinni þegar hún ávarpaði Lausnamót Alzheimersamtakanna sem fram fór í dag.

    29. maí 2026Innviðaráðuneytið, Samgöngur, Umferð, Heilbrigðisráðuneytið

    Reglugerð um ökuskírteini breytt: Læknisvottorðs ekki krafist fyrr en við 75 ára aldur

    Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini.

    28. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Ísland býður fram fulltrúa í framkvæmdastjórn WHO

    Ísland sækist eftir sæti í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fyrir tímabilið 2027–2030. Áherslur Íslands eru m.a. mikilvægi öflugs alþjóðlegs samstarfs og samvinnu, gagnsæi og jafnræði í stjórnsýslu stofnunarinnar, jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og áhersla á öfluga heilsugæslu. Þá er lögð áhersla á að heilsa og velferð barna og ungmenna sé ávallt í forgrunni. Fulltrúi Íslands í framboðinu er Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Ásta hefur víðtæka reynslu af alþjóðlegu samstarfi innan WHO, OECD, ESB og Sameinuðu þjóðanna og gegnir nú formennsku í fastanefnd Evrópuskrifstofu WHO (SCRC).

    26. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Þórarna Gró sett forstjóri HSA frá 1. júní

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Þórörnu Gró Friðjónsdóttur til að gegna embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá 1. júní næstkomandi, þegar Guðjón Hauksson lætur af embættinu og tekur við starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

    22. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Guðjón Hauksson skipaður forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðjón Hauksson í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri frá 1. júní næstkomandi til fimm ára. Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. febrúar síðastliðinn. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við álit ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Guðjón hæfastan umsækjenda til að gegna embættinu.

    21. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust

    Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Opnun Hlévangs mun létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum. Sama máli gegnir um Urðarhvarf sem opnað var í mars en þar eru 100 rými.

    21. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust

    Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Opnun Hlévangs mun létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum. Sama máli gegnir um Urðarhvarf sem opnað var í mars en þar eru 100 rými.

    21. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur samþykkt aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana til ársins 2030. Áætlunin miðar að því að efla gæði og öryggi bráðaþjónustu um allt land.

    15. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum

    Heilbrigðisráðuneytið áformar að setja reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Mælt er fyrir um að þegar óskað er eftir þátttöku einstaklings í vísindarannsókn, skuli einnig óskað eftir samþykki hans fyrir upplýsingum um mikilvæga þætti sem varða heilsu hans, þ.m.t. erfðamengi, sem kunna að koma fram við framkvæmd rannsóknar. Kveðið er á um skyldu til að fræða viðkomandi þátttakanda um þessa þætti og hvaða þýðingu þeir geta haft fyrir hann. Virða skal rétt þátttakanda sem ekki vill fá slíkar upplýsingar og enn fremur upplýsa þátttakanda hvernig hann getur afturkallað samþykki sitt. Reglugerðin gildir um vísindarannsóknir á mönnum og er ætlað að tryggja hagsmuni þátttakenda.…

    05. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mikilvægi brjóstagjafar fyrir heilsu barna og mæðra

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið embætti landlæknis að leiða vinnu við mótun stefnu um brjóstagjöf á Íslandi. „Það er mikilvægt að gefa þessu máli gaum, því brjóstagjöf er mikilvægt lýðheilsumál og fyrir liggja staðreyndir um jákvæð áhrif brjóstagjafar á heilsu barna og mæðra“ segir ráðherra. Brjóstagjöf hefur verið hröðu undanhaldi hér á landi síðustu ár og eru nú aðeins um 25% barna á brjósti eingöngu við 6 mánaða aldur sem er undir markmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Það er ekki tilviljun að Alma tilkynni ákvörðun sína um að ráðast í þessa stefnumótun í dag, 5. maí sem er alþjóðlegur dagur ljósmæðra.

    02. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjálfvirkum lyfjaskömmturum fjölgað til muna í heimahjúkrun

    Heilbrigðisráðherra hefur tryggt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborg varanlegt fjármagn til að fjölga sjálfvirkum lyfjaskömmturum í heimahjúkrun um rúmlega 100. Fjölgun þeirra er í samræmi við mat þessara þjónustuveitenda á fyrirliggjandi þörf. Í heilbrigðisumdæmum landsins utan höfuðborgarsvæðisins meta þjónustuveitendur þörf fyrir nærri tvöfalt fleiri lyfjaskammtara en nú eru í notkun og fjölgun sem því nemur er í undirbúningi.

    02. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stórfelldar húsnæðisendurbætur og viðbygging við HSU á Selfossi

    Ráðist verður í gagngerar endurbætur og stækkun húsnæðis fyrir sjúkrahússþjónustu og heilsugæslu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Reist verður rúmlega 5.200 fermetra viðbygging til að mæta aukinni húsnæðisþörf og farið í gagngerar endurbætur og endurskipulagningu á meiri hluta eldra húsnæðis stofnunarinnar. Verkið verður unnið í þremur áföngum. Fyrsti áfanginn felst í endurnýjun og stækkun húsnæðis heilsugæslu, geðteymis og heimahjúkrunar. Sá áfangi er fullfjármagnaður, heimild Samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir liggur fyrir og því unnt að hefja vinnu við hann strax. Áætlað að ljúka framkvæmdum við fyrsta áfangann um mitt ár 2027.

    01. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Meðferð við kæfisvefni – biðtími styttist úr sjö mánuðum í einn

    Með markvissri aðgerðaáætlun og innleiðingu á nýju verklagi tókst Svefnmiðstöð Landspítala á liðnu ári að stytta bið einstaklinga eftir meðferð við kæfisvefni úr sjö mánuðum í einn. Biðtíminn er nú innan þjónustumarkmiða. Tölur benda einnig til þess að meðferðarheldni þeirra sem hefja meðferð hafi aukist umtalsvert, eða um 20% á milli ára.

    22. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heildarendurskoðun laga um tæknifrjóvgun í undirbúningi

    Heilbrigðisráðherra áformar að ráðast í heildarendurskoðun á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996. Áform um breytingarnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 22. maí.

    21. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný heildstæð sóttvarnalöggjöf orðin að veruleika

    Alþingi samþykkti í dag frumvarp heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi árið 2022 að undangenginni vinnu starfshóps sem skipaður var í júní 2021 til að skrifa drög að frumvarpi til heildarlaga um sóttvarnir. Frumvarpið hefur verið lagt fimm sinnum fyrir þingið og í meðförum þess hafa ýmsar breytingar verið gerðar á efni þess: „Vönduð og vel ígrunduð löggjöf um sóttvarnir er gríðarlega mikilvæg fyrir heilsu og velferð landsmanna ef vá steðjar að vegna farsótta. Hér hefur verið vandað til verka og öllum steinum velt við til að gera löggjöfina sem best úr garði. Ég fagna þessum stóra áfanga innilega,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. ​

    08. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Stafræn heilsa, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi um Stafræna heilsu til umsagnar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt drög að frumvarpi um Stafræna heilsu. Með frumvarpinu er lagður grundvöllur að uppbyggingu og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins sem Stafræn heilsa mun leiða.

    05. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Áformað að reisa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslu í Vík í Mýrdal

    Samkomulag var í dag undirritað um nýbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöðí Vík í Mýrdal. Ráðgert er að byggingin rísi á lóð við Sléttuveg 11 sem sveitarfélagið úthlutar til ríkisins. Húsnæðið verður hannað og byggt af þriðja aðila gegn langtímaleigusamningi við ríkið. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Vík í dag og undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.

    05. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Áformað að reisa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslu í Vík í Mýrdal

    Samkomulag var í dag undirritað um nýbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöðí Vík í Mýrdal. Ráðgert er að byggingin rísi á lóð við Sléttuveg 11 sem sveitarfélagið úthlutar til ríkisins. Húsnæðið verður hannað og byggt af þriðja aðila gegn langtímaleigusamningi við ríkið. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Vík í dag og undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.

    31. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    100 rýma samningur við Heilsuvernd mun létta verulega á Landspítala

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Teitur Guðmundsson forstjóri Heilsuverndar undirrituðu fyrr í dag samning um rekstur og þjónustu í hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16.

    31. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    8. Líf- og heilbrigðistækni sem mikilvæg stoð í útflutningi heilbrigðisráðuneytið Markmið aðgerðarinnar er að auka verðmætasköpun og útflutning í líf- og heilbrigðistækni með markvissri uppbyggingu á grunni sérstöðu Íslands í lífvísindum, erfðagögnum og heilbrigðisþjónustu. Aðgerðin beinist að því að efla samstarf háskóla og atvinnulífs um rannsóknir, framhaldsnám og frumkvöðlastarf á sviði lífvísinda og heilbrigðistækni

    26. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Umsækjendur um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsti starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsókna þann 26. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 23. mars.

    17. mar. 2026Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Tillögur um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda kynntar í ríkisstjórn

    Tillögugerð starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Í skýrslu starfshópsins eru lagðar fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við börn með vímuefnavanda.

    07. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um mönnun heilbrigðisþjónustu

    Birt hefur verið aðgerðaáætlun til tveggja ára, um framkvæmd Mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Mönnunarstefnan tekur mið af dreifingu og nýtingu mannafla heilbrigðisþjónustunnar og mannaflaþörf til framtíðar. Í aðgerðaáætluninni er fjallað um áherslur og verkefni sem unnið verður að árin 2026 og 2027 í samræmi við markmið stefnunnar.

    02. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland aðili að erindi frá framkvæmdastjórnarfundi WHO í Genf um langvinna sjúkdóma

    Framkvæmdastjórnarfundur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fer nú fram í Genf, þar sem aðildarríki WHO fjalla um lykilmálefni í alþjóðlegu heilbrigðissamstarfi. Á fundinum tók Ísland undir sameiginlega yfirlýsingu um forvarnir og viðbrögð til að sporna gegn langvinnum sjúkdómum. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi á vef WHO.

    27. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Skipulagning nýrrar bráðamatsdeildar Landspítala í Fossvogi

    Nú standa yfir framkvæmdir við Landspítala í Fossvogi, þar sem innan skamms verður opnuð bráðamatsdeild í nýrri viðbyggingu við bráðamóttöku spítalans. Deildin er viðbót við bráðaþjónustu Landspítala og er ætlað að dreifa álagi þannig að betur verði hægt að ráða við vaxandi verkefni. Skipulag deildarinnar verður að breskri fyrirmynd og hafa sérfræðingar þaðan verið Landspítala innan handar við undirbúning.

    27. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. júní 2026. Umsóknarfrestur er til 23. mars næstkomandi.

    26. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heyrnar- og talmeinastöðin lögð niður 1. maí og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tekur við verkefnum hennar

    Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lögð niður 1. maí næstkomandi og tekur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins við verkefnum hennar og þjónustuþegum. Frumvarp heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur verið samþykkt á Alþingi. Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar verða starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með sömu ráðningarkjörum og áður.

    23. feb. 2026Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Minna um vopnaburð og börnum líður betur

    Árið 2024 vöktu alvarleg ofbeldismál þar sem börn komu við sögu mikla athygli og áhyggjur almennings. Ný stöðuskýrsla aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum sýnir jákvæða þróun á ýmsum sviðum og um leið nýjar áskoranir.

    23. feb. 2026Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Minna um vopnaburð og börnum líður betur

    Árið 2024 vöktu alvarleg ofbeldismál þar sem börn komu við sögu mikla athygli og áhyggjur almennings. Ný stöðuskýrsla aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum sýnir jákvæða þróun á ýmsum sviðum og um leið nýjar áskoranir.

    23. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    Flestir hafa heyrt um berkla sem alvarlegan lungnasjúkdóm, en færri vita að margir sem komast í snertingu við bakteríuna veikjast aldrei. Þessir einstaklingar eru með berklasmit og það er ekki smitandi. Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á upplýsingum sem sóttvarnalæknir hefur tekið saman um berkla, hvernig þeir smitast, einkenni, greiningu, meðferð og forvarnir.

    23. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Styrking lágþrepageðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og foreldra

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt 53 milljónir króna til næstu þriggja ára til að innleiða á landsvísu stafræna heilbrigðistæknilausn sem valdeflir foreldra barna á aldrinum 5 – 12 ára með kvíðavanda, með gagnreyndum aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Lausnin er fullþróuð og hefur verið ákveðið að fela Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins tímabundna ábyrgð á stjórnun verkefnisins og faglegri umgjörð þess á landsvísu. Verkefnið hefur fengið heitið FLIKK – Netmeðferð fyrir foreldra barna með kvíða.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband