Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Alþjóðamál
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 151–200 af 271
    Raða eftir:
    01. júl. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra í vinnuheimsókn í Úkraínu

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er nú stödd í vinnuheimsókn í Úkraínu þar sem hún fundar með ráðamönnum, áréttar stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu og kynnir sér stöðu mála. Þorgerður Katrín hefur í dag meðal annars átt fundi með Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu og Denys Shmyhal forsætisráðherra.

    30. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Lilongwe, Utanríkisráðuneytið

    Ísland styður við fæðuöryggi skólabarna í Malaví

    Nýju skólamáltíðarverkefni á vegum Íslands og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) var nýverið hleypt af stokkunum í Malaví. Fulltrúar sendiráðs Íslands í Lilongwe sóttu sérstakan setningarviðburð af þessu tilefni, ásamt menntamálaráðherra Malaví og yfirmanns WFP. Viðburðurinn fór fram í Dzikondilose grunnskólanum sem er einn af skólunum sem hlotið hefur stuðning frá Íslandi.

    26. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Ísland veitir viðbótarframlag til starfsemi UNRWA

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 150 milljóna króna viðbótarkjarnaframlag til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, tilkynnti um framlagið á ársfundi ráðgjafaráðs UNRWA (Advisory Commission) sem haldinn var á fjarfundarformi í gær, 25. júní. Þá hefur einnig verið ákveðið að veita 30 milljóna króna viðbótarframlag til svæðissjóðs Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) fyrir Palestínu (OCHA oPt).

    25. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið

    Íslensk stjórnvöld aðstoða dvalarleyfishafa á Gaza til Íslands

    Fulltrúar á vegum utanríkisráðuneytisins aðstoðuðu í dag sextán einstaklinga á Gaza, þar af sjö börn, með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, að komast til Amman í Jórdaníu. Hópurinn heldur svo til Íslands í kjölfarið.

    19. jún. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland og Alþjóðabankinn styðja Síerra Leóne við mótun framtíðarsýnar og stefnu fyrir sjávarútveg í landinu

    Sendiráð Íslands í Freetown og tveir íslenskir sérfræðingar á sviði fiskimála hafa undanfarna mánuði unnið í nánu samstarfi við sjávarútvegsráðuneytið í Síerra Leóne og Alþjóðabankann að mótun heildrænnar stefnu og aðgerðaáætlunar fyrir framþróun sjávarútvegs í landinu. Víðtækt samráð var haft við fiskimannasamfélög, smábátaveiðimenn, iðnaðinn og aðra haghafa í ferlinu. Stjórnvöld í Síerra Leóne kynntu stefnuna við hátíðlega athöfn í byrjun mánaðar.

    11. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindaráð SÞ, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Ísland meðal ríkja sem kalla eftir sérstökum aukafundi um Súdan í mannréttindaráðinu

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman á sérstökum aukafundi 14. nóvember til að fjalla um alvarlega stöðu mannréttinda í El Fasher og nágrenni í tengslum við innanlandsátökin í Súdan.

    11. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Stutt við stoðtækjaverkefni í Úkraínu sem gagnast þúsund einstaklingum

    Um er að ræða samstarf stjórnvalda við samtökin Future for Ukraine, Emblu Medical, móðurfélag Össurar og stoðtækjamiðstöð á vegum Emblu Medical sem var opnuð formlega í Kænugarði í dag.

    11. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Varnarmálaráðherrafundur sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) í Bodø

    Varnarmálaráðherrar og aðrir fulltrúar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) funduðu í Bodø, Noregi dagana 4.-5. nóvember. Bretar leiða starf sveitarinnar, sem Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Holland eiga einnig aðild að.

    10. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið

    Samþykkt að stofna rannsóknarnefnd um mannréttindabrot í Afganistan

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag ályktun um að stofna óháða rannsóknarnefnd um stöðu mannréttinda í Afganistan. Aðeins Kína sagði sig frá ákvörðun ráðsins. Ísland hefur lengi kallað eftir því að rannsóknarnefnd verði stofnuð og leiddi sameiginlega yfirlýsingu þess efnis í ráðinu í mars, í samstarfi við Suður-Afríku og Chile.

    06. jún. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Efling varnargetu og stuðningur við Úkraínu

    Aukin útgjöld til varnarmála í þágu sameiginlegra varna, stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Haag voru meginefni fundar varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem lauk ´´i gær í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel.

    05. jún. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Alþjóðamál

    Árlegum viðræðum sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir árið 2025 við íslensk stjórnvöld og aðra hagaðila lokið

    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í dag álit sendinefndar sinnar (e. Concluding Statement) eftir viðræður við íslensk stjórnvöld og aðra hagaðila síðustu tvær vikur.

    05. jún. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland styður jafnréttissjóð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að nær tvöfalda stuðning sinn við jafnréttissjóð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) en sjóðurinn heldur úti verkefnum í þróunarríkjum sem miða að því að auka jafnrétti og valdeflingu stúlkna, með sérstaka áherslu á menntun stúlkna og aukið aðgengi þeirra að tækni- og raungreinum. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn við UNICEF í síðustu viku.

    01. jún. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Utanríkismál

    Þorgerður Katrín ræddi við utanríkisráðherra Noregs

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag símafund með Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs. Tilgangur fundarins var að koma á samtali ráðherranna og ræða áframhaldandi gott samstarf ríkjanna á alþjóðasviðinu.

    25. maí 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra sótti fund á Spáni um tveggja ríkja lausnina

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti í dag utanríkisráðherrafund í Madríd á Spáni um tveggja ríkja lausnina svokölluðu í Mið-Austurlöndum. Um var að ræða undirbúningsfund vegna ráðstefnu sem Frakkar og Sádi-Arabar hafa veg og vanda af í Sameinuðu þjóðunum í New York 18. júní nk.

    24. maí 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Samráðsfundur bandalagsríkja á norðurslóðum

    Samráðsfundur bandalagsríkja á norðurslóðum um viðbúnað og eftirlit á svæðinu var haldinn á Íslandi 21.-22. maí. Fundinn sóttu háttsettir embættismenn varnarmálaráðuneyta Bandaríkjanna, Kanada og Norðurlandanna fimm, þar á meðal fulltrúar Færeyja og Grænlands.

    16. maí 2025Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Palestína, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Yfirlýsing sjö þjóðarleiðtoga vegna Gasa

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, ásamt leiðtogum sex líktþenkjandi ríkja í málefnum Palestínu, undirritaði í dag sameiginlega yfirlýsingu þar sem leiðtogarnir lýsa því yfir að tafarlausra aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir frekari hörmungar á Gasa.

    15. maí 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Alþjóðamál

    Daði Már tók þátt í að stýra aðalfundi Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu

    Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í dag þátt í að stýra 34. aðalfundi Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) sem haldinn var í London dagana 13.-15. maí. Fjármálaráðherra hefur verið varaformaður eigendanefndar bankans undanfarið ár og tók Daði Már við því hlutverki þegar hann tók við embætti ráðherra.

    11. maí 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Skrifað undir samkomulag við Tékkland vegna Uppbyggingarsjóðs EES

    Með undirritun samkomulagsins hefst nú undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Tékklandi fyrir nýja tímabilið.

    29. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við Úkraínu efst á baugi á utanríkisráðherrafundi á Borgundarhólmi

    Nýjar áskoranir á sviði öryggismála, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu og viðbrögð við fjölþáttaógnum voru í brennidepli á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna, Frakklands, Þýskalands og Póllands sem fram fór á Borgundarhólmi í Danmörku dagana 28. og 29. apríl.

    29. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Kafbátaeftirlitsæfing Atlantshafsbandalagsins hafin

    Árleg kafbátaeftirlitsæfing Atlantshafsbandalagsins „Dynamic Mongoose 2025“ fer fram dagana 28. apríl til 9. maí á hafsvæðinu á milli Íslands og Noregs. Meginmarkmið æfingarinnar er að efla getu og samhæfingu þátttökuríkjanna við kafbátaeftirlit, yfirborðsvarnir og sameiginleg viðbrögð við aðsteðjandi ógnum.

    23. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Þorri Íslendinga telur hagsæld landsins byggja á alþjóðaviðskiptum

    Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga, eða 80 prósent, telur hagsæld Íslands byggja á alþjóðlegum viðskiptum. Þá segja 81 prósent skipta miklu máli að Ísland hafi gott orðspor í alþjóðasamfélaginu og 70 prósent segja að þátttaka Íslands í alþjóðasamvinnu styrki fullveldi landsins. Íslendingar eru sem fyrr afar jákvæðir gagnvart norrænu samstarfi en alls segjast 87 prósent landsmanna jákvæðir gagnvart því að Ísland taki virkan þátt í því.

    23. apr. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál, Úkraína, Alþjóðamál

    Daði Már sækir vorfundi AGS og Alþjóðabankans

    Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, tekur næstu daga þátt í vorfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington. Staða og þróun efnahagsmála á heimsvísu er helsta umræðuefni fundanna.

    07. apr. 2025Alþjóðamál, Barnaréttur, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Barnvænt Ísland – innleiðing barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

    Barnvænt Ísland er stefna um framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2021–2024. Megintilgangur stefnunnar var að innleiða samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, þannig að mannréttindi barna yrðu efld og innleidd með markvissum hætti. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur nú birt greinargerð um innleiðinguna og stöðu aðgerða.

    06. apr. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Alþjóðamál

    Daði Már sótti ráðherraráðsfund OECD

    Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat í vikunni ráðherraráðsfund Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, í París. Meginefni fundarins voru horfur og áskoranir í efnahagsmálum, en rík áhersla var lögð á frjáls alþjóðaviðskipti og fjárfestingu, bæði opinbera og af hálfu einkaaðila, sem drifkrafta verðmætasköpunar.

    04. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Alþjóðamál, Utanríkismál, Mannréttindaráð SÞ

    Ályktun Íslands um Íran samþykkt í atkvæðagreiðslu í mannréttindaráðinu

    Vetrarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna lýkur í dag en þetta er fyrsta fundalotan sem Ísland tekur þátt í sem aðildarríki ráðsins tímabilið 2025 til 2027.

    02. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Aðalsteinn Leifsson ráðinn aðstoðarmaður utanríkisráðherra

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Aðalstein Leifsson sem aðstoðarmann sinn. Aðalsteinn er með mikla reynslu af alþjóðamálum og hefur meðal annars starfað áður fyrir utanríkisráðuneytið, unnið hjá utanríkisþjónustu ESB, verið sérfræðingur hjá EFTA í Brussel og auk þess að vera í yfirstjórn samtakanna í höfuðstöðvum EFTA í Genf.

    26. mar. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    SOS Barnaþorp styðja börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu í Malaví

    Verkefni SOS Barnaþorpa í Ngabu í Chikawawa héraði í suðurhluta Malaví hefur skilað góðum árangri samkvæmt nýlegri óháðri úttekt sem alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið VIG framkvæmdi fyrir utanríkisráðuneytið. Úttektin sýnir ennfremur fram á að heimili í viðkvæmri stöðu hafa orðið sjálfbjarga í meira mæli en væntingar stóðu til um. SOS Barnaþorp hafa um árabil verið einn af lykilsamstarfsaðilum ráðuneytisins úr röðum frjálsra félagasamtaka í þróunarsamvinnu.

    19. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Evrópusamvinna, Landamæraeftirlit, Alþjóðamál

    Dómsmálaráðherra fundaði með Frontex um landamærin

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra átti fund með Hans Leijtens framkvæmdastjóra Frontex, Landamæra- og strandgæslustofnunar Evrópu. Hann mætti til Reykjavíkur til að eiga samtal við dómsmálaráðherra og starfsfólk Ríkislögreglustjóra.

    17. mar. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Farsæl niðurstaða landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna um landgrunn Íslands á Reykjaneshrygg

    Niðurstöður landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna vegna endurskoðaðrar greinargerðar Íslands um landgrunn á Reykjaneshrygg bárust íslenskum stjórnvöldum síðastliðinn föstudag. Landgrunnssvæðið sem samþykkt var af nefndinni er töluvert víðfeðmt og nær rúmar 570 sjómílur frá grunnlínum. Niðurstaða landgrunnsnefndarinnar er því Íslandi mjög hagfelld og um að ræða farsæla niðurstöðu í mikilvægu ferli sem staðið hefur yfir í tvo og hálfan áratug.

    11. mar. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Flóttafólk, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Framkvæmdastjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í vinnuheimsókn

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Filippo Grandi, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), en hann er í vinnuheimsókn á Íslandi.

    09. mar. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Fjölþjóðlega sprengjueyðingaræfingin Northern Challenge hefst í næstu viku

    Sprengjusérfræðingar frá 18 löndum hafa í vikunni komið til landsins vegna árlegu sprengjueyðingaræfingarinnar Northern Challenge, sem hefst formlega á mánudaginn og er nú haldin í tuttugasta og fjórða sinn hérlendis.

    28. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Ísland beitir rödd sinni í þágu mannúðar og alþjóðalaga fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag

    Íslensk stjórnvöld undirstrika ófrávíkjanlegar skyldur Ísraels sem hernámsaðila að mannúðarrétti í greinargerð sem skilað var í dag til Alþjóðadómstólsins í Haag í ráðgefandi álitsmáli sem dómstóllinn hefur til umfjöllunar. Þá árétta stjórnvöld sömuleiðis ábyrgð Ísraels á að tryggja að þær stofnanir sem Sameinuðu þjóðirnar hafa falið sérstök hlutverk gagnvart íbúum á hernumdum svæðum Palestínu geti sinnt hlutverki sínu, þar á meðal Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

    28. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Ísland beitir rödd sinni í þágu mannúðar og alþjóðalaga fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag

    Íslensk stjórnvöld undirstrika ófrávíkjanlegar skyldur Ísraels sem hernámsaðila að mannúðarrétti í greinargerð sem skilað var í dag til Alþjóðadómstólsins í Haag í ráðgefandi álitsmáli sem dómstóllinn hefur til umfjöllunar. Þá árétta stjórnvöld sömuleiðis ábyrgð Ísraels á að tryggja að þær stofnanir sem Sameinuðu þjóðirnar hafa falið sérstök hlutverk gagnvart íbúum á hernumdum svæðum Palestínu geti sinnt hlutverki sínu, þar á meðal Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

    24. feb. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Ráðherra boðaði varðstöðu um alþjóðakerfið, mannréttindi og frelsið í stefnuræðu Íslands í mannréttindaráðinu

    Ráðherravika 58. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hófst í dag í Genf og flutti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um hádegisbilið ávarp sitt í ráðinu.

    24. feb. 2025Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ísland sýnir stuðning við Úkraínu í verki

    Kristún Frostadóttir forsætisráðherra sækir í dag leiðtogafund í Kænugarði í Úkraínu í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá ólögmætri allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu. Forsætisráðherra tók í morgun þátt í minningarathöfn um úkraínska hermenn sem hafa fallið í varnarbaráttu þjóðarinnar á undanförnum árum.

    14. feb. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Öryggismál í Evrópu í brennidepli í München

    Vaxandi spenna í alþjóðamálum, öryggismál í Evrópu, stríðið í Úkraínu og horfur í alþjóðahagkerfinu eru á meðal þeirra mála sem rædd verða á hinni árlegu Öryggismálaráðstefnu í München sem sett var í dag og stendur fram á sunnudag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur þátt í ráðstefnunni og átti í dag fjölda tvíhliða funda með öðrum evrópskum leiðtogum þar sem þau alþjóðamál sem hæst ber um þessar mundir voru rædd.

    14. feb. 2025Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ítreka stuðning við Úkraínu

    Leiðtogar Norðurlandanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu til stuðnings Úkraínu og segja þar að gera verði Úkraínumönnum kleift að verjast og standa af sér árásarstríð Rússa til að tryggja réttlátan og langvarandi frið.

    13. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarbúnað og stuðning við Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarviðbúnað og fælingarmátt bandalagsins og stuðning bandalagsríkja við Úkraínu á ráðherrafundi sem lauk í Brussel í dag. Á fundinum var farið yfir helstu aðgerðir og áætlanir sem miða að því að styrkja fælingar- og varnargetu bandalagsins, meðal annars aukin framlög til varnarmála, eflingu herstjórnarkerfisins, ítarlegri áætlanagerð og samstarf ríkjanna á sviði hergagnaframleiðslu og tækniþróunar.

    09. feb. 2025Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Ísland styður við mannréttindaverndara

    Samningur um 20 milljóna króna framlag íslenskra stjórnvalda til starfsemi frjálsu félagasamtakanna International Service for Human Rights (ISHR) var undirritaður í Genf í dag. Einar Gunnarsson sendiherra skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands.

    01. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál, Mannréttindaráð SÞ

    Ísland tekur sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna

    Ísland tók formlega sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna nú um áramótin og mun sitja í ráðinu í samtals þrjú ár, eða til loka árs 2027.

    28. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með ráðamönnum í Póllandi

    Staða alþjóðamála, aukið Evrópusamstarf á sviði öryggis- og varnarmála, mikilvægi innri markaðarins, og góð tvíhliða samskipti voru helstu umræðuefnin á fundum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, og Ignacy Niemczycki, aðstoðarráðherra Evrópumála í forsætisráðuneyti Póllands, sem fram fóru í Varsjá í dag.

    27. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra tók þátt í minningarathöfn í Auschwitz

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var fulltrúi ríkisstjórnar Íslands á minningarathöfn sem haldin var í Auschwitz í dag. Þar var minnst þeirra sex milljóna gyðinga sem myrtar voru í helförinni og annarra fórnarlamba grimmilegra ofsókna nasista. Í dag er þess minnst að 80 ár eru liðin frá því að hersveitir bandamanna lögðu undir sig útrýmingarbúðirnar í Auschwitz í Póllandi og frelsuðu þá sjö þúsund fanga sem þar voru enn þá.

    24. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningar undirritaðir við Taíland og Kósovó

    Undirritun fríverslunarsamninga EFTA-ríkjanna við Taíland og Kósovó fór fram í Davos í Sviss, dagana 22. og 23. janúar. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samningana fyrir Íslands hönd.

    21. jan. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðamál, Fiskeldi, Lagareldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Viðburðaríkt ár í matvælaráðuneyti

    Árið 2024 var viðburðaríkt í matvælaráðuneytinu og einkenndist af mikilsverðum áföngum á málefnasviðum ráðuneytisins ásamt tíðum ráðherraskiptum. Af þeim 127 fréttum sem birtar voru á árinu er hér að finna yfirlit yfir þær helstu auk myndrænnar samantektar.

    17. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Reglulegur samráðsfundur um tvíhliða samskipti Íslands og Grænlands

    Fundur háttsettra embættismanna Íslands og Grænlands fór fram í Reykjavík á miðvikudag þar sem farið var yfir tvíhliða samstarf landanna. Fundurinn er liður í reglulegu samráði landanna á grundvelli samstarfsyfirlýsingar sem forsætisráðherra Íslands og formaður landsstjórnar Grænlands undirrituðu í Reykjavík 13. október 2022 um aukið samstarf. Gagnkvæmur vilji er til að efla og útvíkka tvíhliða samvinnu landanna sem er þegar töluverð.

    16. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

    Stuðningur við Úkraínu og varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í höfuðstöðvum bandalagsins í dag.

    15. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með ráðamönnum í Brussel

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með Maros Šefčovič, framkvæmdastjóra hjá Evrópusambandinu sem er ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland, og Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins.

    07. jan. 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Alþjóðamál, Menningarmál

    Ísland gengið í DARIAH

    Ísland er nú fullgildur meðlimur í DARIAH.

    27. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Nýir tollfrjálsir kvótar Evrópusambandsins á íslenskum sjávar- og eldisafurðum taka gildi 1. janúar 2025

    Þann 1. janúar 2025 taka gildi átta nýir tollfrjálsir innflutningskvótar til Evrópusambandsins (ESB). Kvótarnir veita aukna útflutningsmöguleika fyrir íslenskar afurðir bæði úr sjávarútvegi og fiskeldi.

    20. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning við mannréttindasamtök í Úganda

    Framlög Íslands til samtakanna DefendDefenders hafa verið aukin en samtökin eru bakhjarl fólks sem berst fyrir mannréttindum í Austur-Afríku, þar á meðal réttindum hinsegin fólks. Þá hefur Ísland aukið stuðning við loftslags- og skólamáltíðarverkefni Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) í Úganda og fjármagnar viðgerð og endurbætur á stórri vatnsveitu í flóttamannabyggð í norðurhluta Úganda.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband