07. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið
Viljayfirlýsing um uppbyggingu Sementsreits á Akranesi undirrituð
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í gær ásamt Haraldi Benediktssyni, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu Sementsreits á Akranesi fyrir starfsemi ríkis og sveitarfélagsins.