19. nóv. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Styrkir Bjargráð sem þjónustar aðstandendur fanga
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt Bjargráði 12 milljóna króna styrk. Bjargráð er þjónusta fyrir fjölskyldur og aðstandendur sem eru í þeim sporum að einhver nákominn bíður eftir afplánun, er í afplánun eða er laus úr henni. Margs konar tilfinningar geta vaknað yfir því að ástvinur sé á leið í afplánun eða sitji í fangelsi, til að mynda sorg, skömm, sektarkennd, óöryggi, léttir, reiði og ótti um afdrif viðkomandi. Börn fanga eru líka hópur sem sinna þarf sérstaklega.
Bjargráð var sett á laggirnar fyrir þremur árum með stuðningi frá ráðuneytinu. Fjölskylduráðgjafar Bjargráðs hafa nú tekið um 1.100 viðtöl og fer fjöldi viðtala stöðugt vaxandi.