26. feb. 2013Innviðaráðuneytið, Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur
Kynningarrit um tólf ára samgönguáætlun komið út
Komið er út ritið Samgönguáætlun 2011-2022 sem er kynning á gildandi tólf ára samgönguáætlun sem samþykkt var á Alþingi í fyrra. Gerð er grein fyrir stefnumótun áætlunarinnar og markmiðum hennar og er texti ritsins að miklu leyti óbreyttur úr þingsályktunartillögunni.