05. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Freetown, Utanríkismál
Sendiskrifstofa Íslands í Síerra Leóne formlega opnuð
Ný sendiskrifstofa Íslands í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, var formlega opnuð í gærkvöldi og var sérstök hátíðarmóttaka af því tilefni. Sendinefnd frá Íslandi er í Síerra Leóne um þessar mundir og sóttu Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Logi Einarsson þingmaður, opnunina. Timothy M. Kabba, utanríkisráðherra Síerra Leóne, flutti ávarp og þá tóku Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofunnar, og Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, einnig til máls.