Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 251–300 af 574
    Raða eftir:
    12. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Auðlesið efni: Miðstöð um auðlesið mál fær styrk

    Inga Sæland er félags- og húsnæðismála·ráðherra. Inga Sæland hefur ákveðið að styrkja Miðstöð um auðlesið mál. Styrkurinn er 15.000.000 krónur. Styrkurinn er hluti af Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks. Miðstöð um auðlesið mál býr til texta á auðlesnu máli. Auðlesið mál er einföld íslenska.

    12. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Stuðningur við auðlesið mál

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt Miðstöð um auðlesið mál styrk að upphæð 15 milljónum króna. Styrkurinn er hluti af Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks en ein af aðgerðunum í henni fjallar um auðlesið efni. Auðlesið mál er íslenska sem hefur verið einfölduð á skipulegan hátt og var miðstöðinni komið á laggirnar árið 2022 með stuðningi ráðuneytisins.

    12. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur

    28 verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála

    28 verkefni hafa hlotið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2025. Styrkirnir voru veittir á viðburðinum Innflytjendur og samfélagið sem fram fór fyrir fullu húsi nú í morgun í tilefni af alþjóðlega mannréttindadeginum. „Hvert verkefni er skref í átt að samheldnara, opnara og réttlátara samfélagi - samfélagi þar sem allir fá tækifæri til að blómstra,“ sagði Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs við afhendingu styrkjanna.

    12. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur

    Bein útsending: Innflytjendur og samfélagið

    Innflytjendaráð stendur fyrir morgunverðarfundi á alþjóðlega mannréttindadeginum í dag, 10. desember, kl. 9:00-11:00. Flutt verða margvísleg erindi sem öll tengjast málefnum innflytjenda, auk þess sem Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Fundurinn er sendur út í beinu streymi.

    11. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Lög samþykkt sem auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bæta upplýsingar um leigumarkaðinn

    Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingu á húsaleigulögum. Lögunum er ætlað að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Þeim er einnig ætlað að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningu leigusamninga og auknu gagnsæi um upplýsingar í leigusamningum. Samkvæmt lögunum verður óheimilt að semja um að leigufjárhæð í tímabundnum samningum taki breytingum á fyrstu 12 mánuðum samningsins.

    11. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Burður – nýr samstarfsvettvangur í mannvirkjarannsóknum og prófunum

    Burður, nýr samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og prófanir, var opnaður í dag af Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra og Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, í húsnæði HMS í Borgartúni. Hlutverk Burðar er að efla og samræma rannsóknir og prófanir í húsnæðis- og mannvirkjagerð á Íslandi. Að vettvanginum koma stjórnvöld, menntastofnanir og atvinnulíf.

    11. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og -prófanir stofnaður í dag

    Samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og prófanir verður formlega stofnaður á viðburði sem haldinn verður hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, í hádeginu í dag, mánudaginn 10. nóvember kl. 12:00-13:00. Hlutverk samstarfsvettvangsins er að efla slagkraft, sýnileika og samhæfingu rannsókna og prófana í  húsnæðis- og mannvirkjagerð á Íslandi. Að samstarfinu koma stjórnvöld, menntastofnanir og atvinnulíf.

    10. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Útboð farið af stað fyrir nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík

    Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir hefur fyrir hönd félags- og húsnæðismálaráðuneytisins óskað eftir leigutilboðum fyrir húsnæði undir hjúkrunarheimili á Húsavík. Verkefnið snýr að því byggja og fullgera hjúkrunarheimili við Auðbrekku 2 sem ríkið mun síðan leigja með langtímaleigusamningi.

    07. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Uppfærðar leiðbeiningar um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur uppfært leiðbeiningar ráðherra til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda. Fjárhæðirnar hækka um 5,03% frá síðustu útgáfu sem birt var í ágúst 2024. Annars vegar er um árlega uppfærslu að ræða og hins vegar uppfærslu sem gerð er í tengslum við innleiðingu á nýju örorkulífeyriskerfi sem tekur gildi 1. september.

    06. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    „Stolt, fötluð og þakklát“ – áhrifaríkt ávarp félags- og húsnæðismálaráðherra á aðildarríkjaþingi í New York

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarpaði í kvöld þing aðildarríkja um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem nú er hafið í New York. Ávarp ráðherra var óvenjulegt og áhrifamikið en þar deildi hún lífshlaupi sínu sem lögblindur, fatlaður einstaklingur. „Ég ólst upp í litlu sjávarplássi og skammaðist mín fyrir að vera blind. Ég var öðruvísi – og var lögð í einelti. Ég gat ekki varið mig, sá hvorki snjóboltana né steinana sem var kastað í mig. Mig dreymdi um menntun en ég sá ekki stafina í kennslubókunum og flosnaði upp úr skóla,“ sagði hún.

    04. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Hagir og líðan eldra fólks á Íslandi

    Félagsvísindastofnun hefur að beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins unnið greiningu á högum og líðan eldra fólks hér á landi. Niðurstöður greiningarinnar voru kynntar í dag. Spurt var um almennt heilbrigði, viðhorf til heilbrigðisþjónustu á Íslandi, aðstoð í daglega lífinu, heimaþjónustu, búsetuhagi, atvinnuhag, fjárhag, félagslega virkni, tölvuvirkni og fleira.

    02. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Málþing um stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi gegn konum

    Málþing um stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi sem Ísland stóð fyrir í samstarfi við Finnland fór fram í Helsinki, dagana 6.-7. febrúar 2025.

    29. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Samráðsgátt: Ný lög um réttindavernd fatlaðs fólks

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um réttindavernd fatlaðs fólk. Um ný heildarlög er að ræða og gert ráð fyrir að þau leysi af hólmi gildandi lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi stuðning við vernd hvers konar réttinda og stuðla að bættu jafnrétti og aðgengi í þjónustu við fatlað fólk. Jafnframt er áhersla lögð á að tryggja að sjálfsákvörðunarréttur fatlaðs fólks sé virtur og fyllsta réttaröryggis gætt þegar brýna nauðsyn ber til að grípa inn í líf þess.

    24. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Skipulagsmál, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Ein öflug stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála – lagafrumvarp í samráðsgátt

    Inga Sæland, félags og húsnæðismálaráðherra, hefur birt drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem lagt er til að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði sameinuð. Með sameiningunni verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar. Lagt er til að starfsemin verði sameinuð þannig að verkefni Skipulagsstofnunar renni inn í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og að heiti stofnunarinnar verði breytt í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

    23. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Mælti fyrir þremur frumvörpum á Alþingi

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í gær fyrir samtals þremur frumvörpum á Alþingi. „Við í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu förum af fullum krafti inn í þingveturinn. Við erum með fjölmörg frumvörp á þingmálaskránni og málin okkar hafa þýðingu fyrir fólk um land allt,“ segir ráðherra. Frumvörpin þrjú sem ráðherra mælti fyrir eru frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús (dýrahald), frumvarp til laga um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá).

    22. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samráðsgátt: Ný stofnun sem sér um framkvæmd öryggisráðstafana

    Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur birt frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda sem fjallar um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Í frumvarpinu er lagt til að nýrri stofnun verði komið á fót sem sjái um framkvæmdina. Heiti hennar verði Miðstöð um öryggisráðstafanir. Ekki hafa áður verið til heildstæð lög um framkvæmd öryggisráðstafana hér á landi. Frumvarpið er hluti af afar umfangsmikilli vinnu stjórnvalda í málaflokknum.

    22. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur

    Auglýst eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Við val verkefna sem hljóta styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála árið 2025 verður áhersla lögð á verkefni sem ná til virkrar notkunar tungumáls í gegnum félagslega viðburði til stuðnings við hefðbundið tungumálanám; þátttöku innflytjenda og innlendra á jafningjagrunni, m.a. með því að stuðla að lýðheilsu innflytjenda og virkri þátttöku þeirra í félagasamtökum og félagsstarfi; og verkefna sem ætlað er að auka skilning og samkennd milli innlendra og innflytjenda á vinnustöðum eða í framhalds- og háskólum, svo sem með félagsvinaverkefnum og menningar- og tungumálabrúarsmíði.

    18. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Rúmir 1,3 milljarðar króna til uppbyggingar öldrunarþjónustu

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra hefur úthlutað rúmum 1,3 milljörðum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna ársins 2025. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Alls voru veittir styrkir til 44 verkefna til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á hjúkrunarheimilum um allt land. Úthlutanirnar eru í samræmi við tillögur stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra sem leggur mat á umsóknir í samræmi við reglugerð um sjóðinn og gerir tillögur til ráðherra um úthlutanir úr honum.

    11. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið

    Allir með: Áframhaldandi stuðningur við verkefni sem eykur þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ætla að veita 60 milljónum króna til að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna. Verkefnið er liður í að ná markmiðum 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fjallar meðal annars um þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum.

    09. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Vinnumál, Fatlað fólk, Innflytjendur, Málefni eldra fólks, Almannatryggingar og lífeyrir

    16 frumvörp sem hafa þýðingu fyrir fólk um land allt

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, er með sextán frumvörp á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi haustþing. Frumvörpin hafa þýðingu fyrir fjölda fólks um land allt. Má þar nefna ellilífeyrisþega, örorkulífeyrisþega, fólk á leigumarkaði, fatlað fólk, fólk sem tekur hlutdeildarlán, einstaklinga sem hefur verið gert að sæta öryggisráðstöfunum, innflytjendur, atvinnuleitendur og foreldra í fæðingarorlofi.

    09. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Ríkisstjórn

    Formenn kynntu verkefnalista ríkisstjórnarinnar

    Á blaðamannafundi í morgun fóru formennirnir yfir þingmálaskrá, ýmis frumvörp og aðgerðir sem ríkisstjórnin mun ráðast í á 157. löggjafarþingi.

    07. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Almannatryggingar og lífeyrir

    Viðamikill undirbúningur vegna samþætts sérfræðimats: Skýrsla ráðherra til Alþingis

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram skýrslu á Alþingi um innleiðingu og undirbúning samþætts sérfræðimats. Núgildandi læknisfræðilegt örorkumat var innleitt hér á landi árið 1999 og hefur staðið óbreytt síðan en með nýju örorku- og endurhæfingarkerfi verður því hætt og í staðinn tekið upp samþætt sérfræðimat. Breytingarnar eiga sér stað þann 1. september nk. þegar nýja kerfið tekur gildi.

    05. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Ný reglugerð um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni birt í samráðsgátt

    Drög að nýrri reglugerð um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Reglugerðin gildir um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni, samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

    04. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Landsskipulagsstefna 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun gefin út

    Skipulagsstofnun hefur síðustu misseri unnið að útgáfu gildandi landsskipulagsstefnu og var hún í dag gefin út. Landsskipulagsstefna 2024-2038 var samþykkt á Alþingi þann 16. maí 2024 en útgáfu hennar nú er ætlað að gera efni stefnunnar aðgengilegra þeim sem vinna að framfylgd hennar, sveitarfélögum, ráðgjöfum og öðrum þeim sem hafa áhuga á eða koma að skipulagsgerð.

    04. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Starfshópur um eflingu og þróun dagdvala á landsvísu skilar tillögum

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur tekið á móti skýrslu starfshóps um eflingu og þróun dagdvala á landsvísu. Verkefni hópsins var að koma með tillögur um endurskilgreiningu á hlutverki og markmiðum þjónustu dagdvala þannig að úrræðið styddi betur við þarfir fólks sem býr heima. Þá skyldi hópurinn greina og leggja fram gögn um það hver þörfin væri fyrir dagdvalarrými, bæði almenn og sérhæfð – og hver þörfin væri fyrir lengdan og/eða sveigjanlegan opnunartíma dagdvala.

    04. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármálaáætlun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Mikilvægur áfangi um úrbætur í öryggisráðstöfunum

    Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur tekið afgerandi skref um úrbætur í þjónustu og úrræðum fyrir einstaklinga sem sæta þurfa sérstökum öryggisráðstöfunum. Um er að ræða einstaklinga sem geta verið sjálfum sér og öðrum hættulegir en hafa fallið milli þjónustukerfa ríkis og sveitarfélaga. Þessir einstaklingar glíma gjarnan við alvarlegar þroska- og/eða geðraskanir og geta verið ósakhæfir, en einnig sakhæfir sem lokið hafa afplánun og þurfa mikinn stuðning í samfélaginu utan réttarvörslukerfis.

    02. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Áframhaldandi samningur við Heimilisfrið

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur endurnýjað samning við Heimilisfrið, meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum. Heimilisfriður er sérhæft meðferðarúrræði fyrir þau sem beita eða hafa beitt ofbeldi í nánum samböndum. Lögð er áhersla á að viðkomandi taki ábyrgð á eigin ofbeldishegðun og læri að þróa leiðir til að takast uppbyggilega á við það sem kemur upp í samskiptum við maka.

    31. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Fimm reglugerðir sem tengjast umfangsmiklum breytingum á örorku- og endurhæfingarkerfinu

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað fimm reglugerðir sem allar tengjast nýju örorku- og endurhæfingarkerfi sem tekur gildi á morgun, 1. september. Nýja kerfið er einfaldara, greiðslur hækka, dregið er úr tekjutengingum og fólki gert auðveldara að taka þátt á vinnumarkaði kjósi það svo. Stuðningur er aukinn við fólk í endurhæfingu og áhersla lögð á að koma í veg fyrir að fólk falli milli kerfa og endi með ótímabært örorkumat. Unnið hefur verið að reglugerðunum síðastliðna mánuði þvert á stofnanir og fagaðila.

    30. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi: Fylgst með áhrifum kerfisbreytinganna

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að greina áhrif kerfisbreytinga innan örorku- og endurhæfingarkerfis almannatrygginga, sem taka gildi 1. september næstkomandi, sem og að meta hvort markmið breytinganna hafi náð fram að ganga.

    28. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi – bein útsending 1. september kl. 11:00

    Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi 1. september og markar tímamót. Breytingarnar eru umfangsmiklar og fela í sér nýja nálgun. Nýja kerfið er einfaldara, greiðslur hækka, dregið er úr tekjutengingum og fólki gert auðveldara að taka þátt á vinnumarkaði kjósi það svo. Stuðningur er aukinn við fólk í endurhæfingu og áhersla lögð á að hindra að fólk falli milli kerfa og endi með ótímabært örorkumat. Í tilefni dagsins verður streymi úr Grósku mánudaginn 1. september kl. 11:00 þar sem farið verður yfir þær umbætur sem nýja kerfið hefur í för með sér.

    27. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Niðurstöður rannsóknar á stöðu kvenna með örorkulífeyri

    Tryggingastofnun hélt á dögunum málþing um rannsókn á bakgrunni og stöðu kvenna 50-66 ára með örorkulífeyri. Á málþinginu voru kynntar niðurstöður skýrslu Félagsvísindastofnunar sem unnin var að beiðni Tryggingastofnunar (TR) í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, velferðarvaktina og Vinnueftirlitið.

    25. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Almannatryggingar og lífeyrir

    Hækkun frítekjumarka húsnæðisbóta 1. september 2025 vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem felur í sér að frítekjumörk húsnæðisbóta hækka frá og með 1. september nk. Hækkunin er gerð vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu sem taka gildi sama dag. „Örorkulífeyrisgreiðslur munu almennt hækka þegar nýja kerfið tekur gildi. Til að koma í veg fyrir að lífeyrisþegar lendi í því að húsnæðisbætur þeirra skerðist vegna hækkunarinnar var nauðsynlegt að hækka frítekjumörk húsnæðisbótanna. Það hef ég nú gert og reglugerðin tekur gildi strax um mánaðarmótin,“ segir ráðherra.

    11. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Málefni eldra fólks, Félags- og fjölskyldumál, Hagsýn í rekstri

    Ríki og sveitarfélög taka höndum saman um gagnaöflun og stafræna þróun í velferðarþjónustu

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga landsins, munu ráðast í samstarf um öflun og nýtingu gagna í velferðarþjónustu og stafræna þróun hins opinbera. Markmiðið er að taka saman upplýsingar frá ólíkum þjónustuaðilum og stofnunum þannig að yfirsýn fáist yfir aðstæður þeirra sem þurfa á þjónustu að halda og stuðlað sé að samfellu í þjónustunni. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafa undirritað samkomulag þess efnis.

    05. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Stjórn TR skipuð

    Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað stjórn Tryggingarstofnunar. Á Alþingi er nú til meðferðar frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra til breytingar á lögum um almannatryggingar þar sem meðal annars er áformað að leggja niður stjórn TR. Umboð stjórnarinnar fellur niður þegar ákvæði frumvarpsins um niðurlagningu stjórnarinnar öðlast lagagildi. Hafi ákvæðið ekki öðlast gildi þann 1. nóvember 2025 fellur skipanin niður.

    04. ágú. 2025Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Málefni eldra fólks, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Uppbygging ríflega 600 hjúkrunarrýma 2026-2028

    Ráðgert er að afla ríflega 600 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2026-2028, til viðbótar við þau 120 rými sem tekin verða í notkun á þessu ári.

    04. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Breyttu fyrirkomulagi vegna atvinnuleysistrygginga ætlað að hvetja fólk til virkni

    Breytingar eru fyrirhugaðar á atvinnuleysistryggingakerfinu og er markmið þeirra að grípa fólk fyrr en áður og stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi sem er útsettur fyrir langtímaatvinnuleysi. Hvergi á Norðurlöndum er bótatímabil atvinnuleysistrygginga jafn langt og á Íslandi eða 30 mánuðir.

    08. júl. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Umboðsmanni Alþingis svarað vegna máls sem tengist strandsvæðisskipulagi Austfjarða

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur svarað áliti umboðsmanns Alþingis vegna máls sem tengist strandsvæðisskipulagi Austfjarða. Umboðsmaður taldi að aðkoma starfsmanns innviðaráðuneytisins að staðfestingu strandsvæðisskipulagsins hefði verið andstæð óskráðri meginreglu stjórnsýsluréttar um sérstakt hæfi.

    04. júl. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti

    Utanríkisráðherra kynnir fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi

    Utanríkisráðherra hefur nú lagt fram fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi sem markar stefnu stjórnvalda um framkvæmd samnefndrar ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 og síðari ályktana ráðsins þar að lútandi.

    03. júl. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Mikil eftirspurn eftir hlutdeildarlánum

    Mikil eftirspurn er eftir hlutdeildarlánum en frá því í gær þegar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, opnaði fyrir umsóknir fyrir marsmánuð hafa borist umsóknir að fjárhæð 416,7 millj.kr. Til úthlutunar eru 350 millj.kr. Um er að ræða fyrstu úthlutun ársins og verður aftur opnað fyrir umsóknir í apríl. Nú þegar hafa borist 28 umsóknir og af þeim eru 24 umsóknir á höfuðborgarsvæðinu og fjórar á landsbyggðinni.

    02. júl. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Vitundarvakningin Meinlaust komin í loftið

    Norrænni vitundarvakningu undir yfirskriftinni Meinlaust hefur verið hleypt af stokkunum. Markmið vitundarvakningarinnar er að auka vitund almennings gagnvart öráreiti í garð jaðarhópa eins og kvenna, fólks með fötlun og fólks af erlendum uppruna. Öráreiti er hugtak yfir hversdagslegar athafnir, athugasemdir eða umhverfisþætti sem eru til þess fallin að niðurlægja fólk í jaðarsettum hópum. Hvert áreiti fyrir sig er ef til vill ekki stórvægilegt en þegar fólk í jaðarsettum hópum finnur fyrir slíku reglulega, getur áreitið valdið vanlíðan hjá viðkomandi manneskju og stuðlað að áþreifanlegri tilfinningu hennar fyrir jaðarsetningu í samfélaginu.

    30. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ný lög: Lengra fæðingarorlof fyrir fjölburaforeldra og vegna veikinda á meðgöngu

    Alþingi samþykkti í dag frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem felur í sér að fæðingarorlof lengist verulega fyrir foreldra með fjölbura og vegna veikinda á meðgöngu. Foreldrar eiga samkvæmt lögunum sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn sem fæðist umfram eitt.

    20. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur

    Tomasz Chrapek nýr formaður innflytjendaráðs

    Tomasz Chrapek er nýr formaður innflytjendaráðs. Tomasz fæddist í Częstochowa í Póllandi árið 1981 og hefur búið í Reykjavík frá árinu 2007.

    18. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Uppbygging hjúkrunarheimila: Sátt milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga sem markaði tímamót og var undirritað þann 19. mars síðastliðinn hefur því nú verið fest í lög. „Verkstjórn er tekin við sem hefur svo sannarlega spýtt í lófana og sett uppbyggingu hjúkrunarrýma í forgang. Við meinum það þegar við segjum að við tökum málefni eldra fólks alvarlega. Markmiðið er að tryggja landsmönnum áhyggjulaust ævikvöld,“ segir Inga Sæland.

    18. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Uppbygging hjúkrunarheimila: Sátt milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga sem markaði tímamót og var undirritað þann 19. mars síðastliðinn hefur því nú verið fest í lög. „Verkstjórn er tekin við sem hefur svo sannarlega spýtt í lófana og sett uppbyggingu hjúkrunarrýma í forgang. Við meinum það þegar við segjum að við tökum málefni eldra fólks alvarlega. Markmiðið er að tryggja landsmönnum áhyggjulaust ævikvöld,“ segir Inga Sæland.

    18. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samkomulag við Noreg um samstarf um tengilið við Evrópsku vinnumálastofnunina

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur gert samkomulag við vinnumálaráðuneyti Noregs um samstarf um aðgang að þjónustu norsks tengiliðar við Evrópsku vinnumálastofnunina (ELA) sem starfar í Bratislava, Slóvakíu. Samkomulagið tryggir Íslandi aðgang að sérfræðiþekkingu og upplýsingamiðlun á vettvangi ELA.

    12. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Mælti fyrir frumvarpi sem aðstoðar fyrstu kaupendur við að eignast íbúð

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur mælt fyrir fyrir frumvarpi sem aðstoðar fyrstu kaupendur við að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Þetta verður gert í gegnum breytingar á hlutdeildarlánum. Frumvarpið er hluti af fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og felur í sér fjölmargar breytingar á hlutdeildarlánakerfinu sem allar miða að því að búa til kerfi sem virkar.

    11. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Ræddi húsnæðismál við norræna ráðherra

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sótti í gær norrænan ráðherrafund um húsnæðismál sem fram fór í Helsinki í Finnlandi. Ráðherrarnir ræddu meðal annars um þau áhrif sem skortur á húsnæði á viðráðanlegu verði hefði og um væntanlega samevrópska húsnæðisstefnu, hvaða skref væri vænlegt að stíga á samevrópskum vettvangi og hvað leystist best í einstaka ríkjum.

    06. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Lög samþykkt á Alþingi sem auka rétt foreldra til sorgarleyfis

    Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingar á lögum um sorgarleyfi. Lögin fela í sér aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis og styrkja enn frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum. „Gríðarlegt álag fylgir því að missa maka og vera á sama tíma til staðar fyrir syrgjandi barn. Ákall hafði verið um að við stæðum með foreldrum í þessari stöðu – og það höfum við nú gert. Með nýju lögunum veitum við fólki svigrúm til að syrgja og tíma til að vera til staðar fyrir börnin sín á erfiðustu stundum lífsins,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

    06. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Félags- og húsnæðismálaráðherra heimsótti Kvennaathvarfið

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, heimsótti á dögunum Kvennaathvarfið og kynnti sér starfsemina. Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, tók á móti ráðherra og kynnti bæði húsnæðið og þjónustuna sem þar fer fram. Ráðherra hitti jafnframt ráðgjafa og fékk innsýn í dagleg störf þeirra.

    06. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Ráðherra í leikfimi með eldra fólki – vekur athygli á mikilvægi hreyfingar alla ævi

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, skellti sér í íþróttafötin og mætti í leikfimitíma í tengslum við átakið Hreyfing alla ævi. Markmið þess er að hvetja eldra fólk um land allt til að stunda reglulega hreyfingu. Eftir kröftugan leikfimitíma með eldra fólki hjá Fylki hafði Inga þetta að segja: „Það er orðið alltof langt síðan ég fór síðast í leikfimi – en nú er ég mætt! Ég er sjálf 65 ára og veit hvaða máli þetta skiptir.“

    • First
    • Prev
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband