19. maí 2026Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd
Starfshópi falið að vinna tillögur vegna loftslagsvendipunkta og AMOC
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað starfshóp um loftslagstengda vendipunkta með áherslu á AMOC veltihringrásina. Ráðherra tók málið upp á ríkisstjórnarfundi í morgun og upplýsti ríkisstjórn um framvindu mála frá því í haust þegar málið fór síðast fyrir ríkisstjórn.