Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 301–350 af 522
    Raða eftir:
    11. júl. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Viðskipti, Atvinnuvegir

    Íslensk útgáfa af viðmiðunarreglum OECD um ábyrga viðskiptahætti

    Á uppfærðri heimasíðu atvinnuvegaráðuneytisins um ábyrga viðskiptahætti má nú finna íslenska þýðingu á uppfærðum viðmiðunarreglum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti.

    04. júl. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Landbúnaður

    Fullt hús í Hornafirði og Flóanum

    Þéttsetið var á fyrstu tveimur fundum fundaraðar atvinnuvegaráðherra og bændasamtakanna sem ber heitið „Frá áskorunum til lausna“. Fundirnir voru haldnir 7. apríl sl. í félagsheimilunum Félagslundi í Flóahreppi og Holti á Mýrum í sveitarfélaginu Hornafirði.

    04. júl. 2025Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Bændur fá tjónastuðning eftir kuldakast í júní 2024

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að tillögu Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra að verja allt að 725 milljónum króna til stuðnings við bændur sem urðu fyrir tjóni vegna óvanalegs og erfiðs tíðarfars á landinu sumarið 2024. Sumarið var óvenju kalt samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands eða það kaldasta á landsvísu síðan árið 1998.

    02. júl. 2025Ferðaþjónusta, Atvinnuvegaráðuneytið

    Starfshópur um öryggi ferðamanna: Undirbúningur hafinn við skráningarkerfi slysa og óhappa

    Starfshópur um öryggi ferðamanna skilaði sinni fyrstu áfangaskýrslu til ráðherra í desember síðastliðnum. Starfsemi hans er liður í framkvæmd aðgerðaáætlunar með ferðamálastefnu til 2030. Samkvæmt aðgerð E.7. Bætt öryggi ferðamanna er markmið hennar að tryggja öryggi ferðamanna um land allt, eins og kostur er, hvort sem um er að ræða á fjölsóttum áfangastöðum eða á ferð um landið almennt.

    27. jún. 2025Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu - 2. útgáfa, júní 2025

    júní 2025 / Atvinnuvegaráðuneytið Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu - 2. útgáfa, júní 2025 Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu - 2

    27. jún. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Starfshópur vinnur tillögur að viðbrögðum vegna stöðu atvinnumála í Norðurþingi

    Starfshópur sem skipaður var af forsætisráðherra vinnur nú að kortlagningu á stöðu atvinnumála í Norðurþingi en tilkynnt hefur verið um tímabundna rekstrarstöðvun kísilvers PCC á Bakka frá miðjum júlí. Málið var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

    26. jún. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Ný skýrsla OECD um íslenskt efnahagslíf: Styrkar stoðir efnahagslífsins en aðhalds þörf

    Stoðir íslensks efnahagslífs eru sterkar og viðnámsþróttur mikill. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um Ísland, sem birt var í dag. Skýrslur af þessu tagi eru gefnar út á tveggja ára fresti. Mathias Cormann, framkvæmdastjóri OECD, kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar á blaðamannafundi ásamt Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra.

    23. jún. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða

    Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem taka gildi 1. júlí 2025

    Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. júlí nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í flestum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Um er að ræða tollkvóta sem veita heimild til innflutnings á kjöti, unnum kjötvörum, ostum og plöntum án tolla eða á lægri tollum en tollskrá segir til um. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan.

    16. jún. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Yfirlýsing vegna ásakana um að upplýsingum sé haldið frá Alþingi í tengslum við útreikninga veiðigjalds

    Við undirbúning og gerð frumvarps til laga um breytingu á lögum um veiðigjöld var haft samráð milli atvinnuvegaráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins og undirstofnana þeirra ráðuneyta, Fiskistofu og Skattsins, eins og rakið er í athugasemdum með frumvarpinu.

    13. jún. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Norrænt samstarf

    Íslenskt frumkvæði að baki norrænu verkefni um þátttöku ungs fólks í matvælakerfum

    Áhugi ungs fólks á því að starfa innan matvælageirans á Norðurlöndum hefur dregist saman – á sama tíma og þörfin fyrir þátttöku þeirra er brýnni en nokkru sinni fyrr.

    13. jún. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Ógnvekjandi þróun víða um heim

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hélt á dögunum erindi á mannréttindaráðstefnu World Pride í Washington DC sem fulltrúi íslenskra stjórnvalda. Þar lýsti hún djúpum áhyggjum af neikvæðri þróun í réttindabaráttu hinsegin fólks á heimsvísu og benti á vaxandi áhrif skipulagðra öfgahreyfinga sem ógna sjálfum grundvallargildum lýðræðisins: frelsi, jafnrétti og mannréttindum.

    10. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi – eftirlit með innleiðingu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra hafa staðfest áætlun um eftirlit með innleiðingu og framvindu verkefna aðgerðaáætlunar gegn sýklalyfjaónæmi.

    10. jún. 2025Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, LIFE

    Milljarður frá ESB í endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi

    Fimm ríkisstofnanir taka nú þátt í nýju Evrópuverkefni, Peatland LIFEline.is, sem er því eitt umfangsmesta verkefni sinnar tegundar sem ráðist hefur verið í hér á landi.

    05. jún. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Skýrsla starfshóps um hvalveiðar í samráðsgátt

    Starfshópur um stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða hefur nú lokið vinnu sinni og skilað skýrslu til atvinnuvegaráðherra. Hún verður lögð inn á samráðsgátt stjórnvalda í dag þar sem almenningi gefst kostur í tvær vikur á að koma inn athugasemdum og ábendingum um efni skýrslunnar.

    26. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Styrkir til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum

    Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði á árinu 2025. Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal jafnframt vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.

    23. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Mat á áhrifum frumvarps um veiðigjald

    Í ljósi umræðu um áætlaðar breytingar á innheimtu veiðigjalds sem settar eru fram í frumvarpi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra telur atvinnuvegaráðuneytið ástæðu til að birta skjal sem inniheldur mat á áhrifum frumvarpsins fyrir útgerðir landsins.

    21. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið

    Sunna Kristín ráðin í starf verkefnastjóra

    Sunna Kristín Hilmarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri stefnumála og samskipta hjá atvinnuvegaráðuneytinu til sex mánaða.

    21. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Gullkorn – Nýr leiðarvísir fyrir kornbændur

    Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) hefur gefið út nýjan leiðarvísi fyrir kornbændur sem ber heitið Gullkorn. Ritstjóri og höfundur meginhluta efnisins er Þóroddur Sveinsson, meðhöfundar að fjórum köflum eru þeir Haukur Þórðarson og Jóhannes Kristjánsson.

    19. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Rekstrar- og loftslagsráðgjöf til bænda efld

    Atvinnuvegaráðuneytið hefur gert samning við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins um afkomuvöktun og ráðgjöf í búrekstri fyrir árin 2025-2026. Markmið samningsins er að viðhalda rekstrargreiningum og bæta hagtölusöfnun auk þess að efla rekstrar- og loftslagsráðgjöf til bænda og tryggja afkomuvöktun sem nýtist stjórnvöldum og atvinnugreininni.

    14. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Bændur fá styrki vegna kuldakasts

    Atvinnuvegaráðuneytið hefur greitt styrki til bænda til að mæta að hluta þeim áföllum sem urðu í landbúnaði vegna óvenjulegs og erfiðs tíðarfars á landinu sumarið 2024. Um er að ræða sértæka einskiptisaðgerð sem samþykkt var af ríkisstjórninni 4. apríl 2025.

    09. maí 2025Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir fyrir almenna jarðræktarstyrki og landgreiðslur fyrir árið 2025

    Umsóknum skal skilað fyrir miðnætti, miðvikudaginn 1. október nk. Til að geta sent inn umsókn í Afurð þarf að liggja fyrir skýrsla um ræktun ársins 2025 í skýrsluhaldskerfinu Jörð.

    09. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Opið fyrir umsóknir vegna síðari úthlutunar þróunarverkefna búgreina árið 2025

    Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er til 15. október 2025. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári.

    06. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Úthlutun á þróunarfé búgreina fyrri hluta ársins 2025

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur úthlutað til 25 verkefna að upphæð 100,6 milljónum króna af þróunarfé búgreina.

    02. maí 2025Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Óskað eftir tilefningum til landbúnaðarverðlauna 2025

    Óskað er eftir tilnefningum til landbúnaðarverðlauna matvælaráðuneytisins sem atvinnuvegaráðherra veitir árlega í tengslum við Búnaðarþing.

    02. maí 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Bændur telja stuðningskerfi landbúnaðarins flókið

    Í nýlegri könnun sem unnin var fyrir matvælaráðuneytið kemur fram að meirihluti bænda telur stuðningskerfi landbúnaðarins flókið. Aðeins tæpum 14% aðspurðra finnst kerfið einfalt. Um 30% segja að kerfið þjóni hagsmunum þeirra vel en mat tæpra 23% er að kerfið þjóni þeim illa, 43% telja að kerfið þjóni þeim í meðallagi vel.

    30. apr. 2025Atvinnuvegir, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegaráðuneytið

    Atvinnuvegaráðherra úthlutar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í dag úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2025. Að þessu sinni hljóta 28 verkefni styrk úr sjóðnum. Heildarúthlutun er 553,2 milljónir króna og dreifast verkefnin um land allt.

    21. apr. 2025Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Gullkorn – Nýr leiðarvísir fyrir kornbændur

    Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) hefur gefið út nýjan leiðarvísi fyrir kornbændur sem ber heitið Gullkorn. Ritstjóri og höfundur meginhluta efnisins er Þóroddur Sveinsson, meðhöfundar að fjórum köflum eru þeir Haukur Þórðarson og Jóhannes Kristjánsson.

    15. apr. 2025Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fjárfestingastuðningur í kornrækt 2025

    Atvinnuvegaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í kornrækt. Stuðningur er veittur til fjárfestinga í kornþurrkunarstöðvum vegna nýframkvæmda, stækkunar og endurbóta á stöðvum sem þegar eru í rekstri. Einnig fyrir sérhæfðar korngeymslur og sérhæfð flutningatæki fyrir korn. Með umsókn þarf að fylgja:

    15. apr. 2025Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt og nautgriparækt.

    Atvinnuvegaráðuneytið hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt og sauðfjárrækt vegna framkvæmda á árinu 2025.

    11. apr. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Alþjóðasamningar, Sjávarútvegur, Viðskipti, Atvinnuvegir

    Samkomulag við kínversk yfirvöld í höfn

    Samkomulag hefur verið undirritað á milli íslenskra og kínverskra yfirvalda um heilbrigðis- og sóttvarnakröfur vegna útflutnings á íslenskum sjávar- og lagareldisafurðum til Kína.

    11. apr. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Opnað fyrir skil á haustskýrslum

    Atvinnuvegaráðuneytið hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2025 í Bústofni.

    09. apr. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Hækkun lágmarksverðs mjólkur

    Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

    07. apr. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Aflaheimildir til strandveiða auknar um rúm 1.000 tonn

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Breytingin heimilar auknar aflaheimildir til strandveiða sem nemur 1.032 tonnum á fiskveiðiárinu 2024-2025. Við aukninguna eykst heildarafli á strandveiðum úr 10.000 tonnum í 11.032 tonn.

    06. apr. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Matvælasjóður, Atvinnuvegir

    Rúmlega 474 milljónum úthlutað úr Matvælasjóði

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur úthlutað 474,4 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 40 verkefni styrk en 129 umsóknir upp á rúmlega tvo milljarða bárust til sjóðsins. Hæstu styrkir nema um 30 milljónum króna.

    04. apr. 2025Atvinnuvegir, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Yfirlýsing frá atvinnuvegaráðuneyti

    Í ljósi yfirlýsingar sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi sendu frá sér 3. apríl sl. vill atvinnuvegaráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.

    02. apr. 2025Viðskipti, Atvinnuvegaráðuneytið

    Atvinnuvegaráðherra á ráðherrafundi ESB og EFTA um samkeppnishæfni

    Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, tók í dag þátt í ráðherrafundi ESB og EFTA ríkjanna á sviði viðskipta og iðnaðar, í Varsjá. Á fundinum var fjallað um samkeppnishæfni og stöðu iðnaðar og viðskipta innan evrópska efnahagssvæðisins, m.a. með hliðsjón af vaxandi spennu á vettvangi alþjóðastjórnmála og utanríkisviðskipta. Á fundinum lagði ráðherra áherslu á samstöðu og samstilltar aðgerðir meðal Evrópuríkja, þróun innri markaðar EES og mikilvægi EES samningsins fyrir EFTA ríkin.

    31. mar. 2025Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Áfram unnið að stefnumótun um fæðuöryggi

    Fjallað hefur verið um lokun kornmyllu Kornax í fjölmiðlun síðustu daga og kallað eftir viðbrögðum atvinnuvegaráðherra.

    27. mar. 2025Atvinnuvegaráðuneytið

    Hanna Katrín heldur opna fundi með Bændasamtökunum á landsbyggðinni

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra mun ásamt Bændasamtökum Íslands halda fundaröð á landsbyggðinni 7.-9. apríl. Tilgangur fundaraðarinnar er að bjóða bændum til samtals um áskoranir og lausnir í landbúnaði.

    25. mar. 2025Fjármálaáætlun, Sjávarútvegur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Veiðigjöld í sjávarútvegi leiðrétt

    Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um breytingu á lögum um veiðigjald hefur verið lagt fram í samráðsgátt. Frumvarpið er unnið í samvinnu við fjármálaráðuneytið.

    20. mar. 2025Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Brúnastaðir í Fljótum hlutu landbúnaðarverðlaunin 2025

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra afhenti í dag landbúnaðarverðlaunin fyrir árið 2025 til bændanna á Brúnastöðum í Fljótum í Skagafirði, Stefaníu Hjördísar Leifsdóttir og Jóhannesar Ríkarðssonar.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga

    Á fundi ríkisstjórnar í dag var tekin ákvörðun um framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga og atvinnurekendur í bænum. Gerðar verða breytingar sem miða að því að færa stuðning úr formi sértækra neyðarúrræða og í almennari farveg. Einstaklingar og fjölskyldur í sérstaklega viðkvæmri stöðu munu áfram njóta nauðsynlegs stuðnings.

    17. mar. 2025Atvinnuvegir, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegaráðuneytið

    Frumvarp um hert skilyrði skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis sett í samráðsgátt

    Birt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Í frumvarpinu eru tillögur sem ætlað er að mæta áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um jafnvægi á húsnæðismarkaði til að fleiri íbúðir nýtist sem heimili. Frumvarpið er jafnframt hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar á húsnæðismarkaði.

    17. mar. 2025Umhverfi og náttúruvernd, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Atvinnuvegaráðuneytið hættir prentun þingskjala

    Frá 10 mars sl. hætti atvinnuvegaráðuneytið, sem þá hét matvælaráðuneyti, að prenta þingskjöl sem lögð eru fram á Alþingi.

    15. mar. 2025Atvinnuvegir, Dýravelferð, Fiskeldi, Lagareldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Verslun, Viðskipti, Auðlindir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Atvinnuvegaráðuneytið tekur til starfa

    Atvinnuvegaráðuneytið tók til starfa 15. mars árið 2025. Ráðuneytið byggir á grunni þeirra málefna sem heyrðu undir matvælaráðuneytið; sjávarútveg, landbúnað lagareldi, matvæli og matvælaöryggi. Að auki hafa málefni viðskipta, neytendamála og ferðamála hafa verið færð til ráðuneytisins frá fyrrum menningar- og viðskiptaráðuneyti ásamt málefnum iðnaðar sem voru færð frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Málefni skógræktar og landgræðslu sem heyrðu undir matvælaráðuneyti voru færð til umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytis.

    11. mar. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

    Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 3. nóvember. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 38 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 12.

    09. mar. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Styrkjum til tækjakaupa fyrir lífræna framleiðslu úthlutað í fyrsta sinn

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur úthlutað styrkjum til tækjakaupa fyrir lífræna framleiðslu. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkum styrkjum er úthlutað og er styrkveitingin ein aðgerða í aðgerðaáætlun til eflingar lífrænni framleiðslu sem kom út í ágúst 2024.

    07. mar. 2025Atvinnuvegaráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn við skimun í svínum hér á landi

    Í skimun Matvælastofnunar við slátrun svína í síðustu viku greindust Meticillín ónæmar bakteríur (MÓSA) í skimunarsýnum. MÓSA er ekki matarborið smit og því ekki talin hætta á neyslu á svínaafurðum.

    06. mar. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Verslun, Viðskipti, Atvinnuvegir

    Hagsmunir neytenda hafðir að leiðarljósi

    Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur komið á fót sérstöku Markaðs- og neytendateymi á vegum atvinnuvegaráðuneytisins.

    02. mar. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Lagareldi, Atvinnuvegir

    Fiskeldissjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2025

    Til úthlutunar á sjóðnum á árinu 2025 eru kr. 456.100.000. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 föstudaginn 7. mars 2025.

    01. mar. 2025Atvinnuvegaráðuneytið

    Matvælaráðuneytið hlýtur jafnlaunavottun

    Matvælaráðuneytið hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðli Staðlaráðs Íslands.

    • First
    • Prev
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband