Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 301–350 af 574
    Raða eftir:
    05. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Nýr stjórnarmaður í HMS

    Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað nýjan fulltrúa í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) til að uppfylla lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

    03. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir veittir til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna á sviði félags- og velferðarmála

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, veitti í dag styrki til verkefna á sviði félags- og velferðarmála. Veittir voru 17 styrkir til reksturs og fjölbreyttra verkefna sem varða meðal annars málefni eldri borgara, málefni fatlaðs fólks, fátækt og félagslega einangrun. Auglýst var eftir umsóknum um styrki og var bæði hægt að sækja um verkefnastyrki og rekstrarstyrki.

    03. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir veittir til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna á sviði félags- og velferðarmála

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, veitti í dag styrki til verkefna á sviði félags- og velferðarmála. Veittir voru 17 styrkir til reksturs og fjölbreyttra verkefna sem varða meðal annars málefni eldri borgara, málefni fatlaðs fólks, fátækt og félagslega einangrun. Auglýst var eftir umsóknum um styrki og var bæði hægt að sækja um verkefnastyrki og rekstrarstyrki.

    02. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Öllum nýjum erindum til réttindagæslumanna fyrir fatlað fólk verið komið í ferli

    Frá því að starfandi réttindagæslumenn fyrir fatlað fólk tóku til starfa í kringum áramót hafa þeir móttekið 68 erindi sem öll hafa verið sett í viðeigandi ferli. Áhersla er lögð á að svara samdægurs eða við fyrsta tækifæri. Öllum þeim málum sem fyrrum réttindagæslumenn hafa sinnt samkvæmt málaskrá hefur auk þess verið úthlutað til nýrra réttindagæslumanna. Sumum erindum til réttindagæslu fyrir fatlað fólk lýkur með leiðbeiningaskyldu eða fræðslu en þau mál þar sem þjónustu er ábótavant eða grunur leikur á að verið sé að brjóta á réttindum fatlaðs fólks fá stöðu réttindagæslumáls. Slík mál eru í dag 46 talsins og eru öll í vinnslu hjá réttindagæslumönnum.

    01. jún. 2025Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Flutningur ráðuneytisstjóra

    Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra. Ásdís Halla Bragadóttir flyst í embætti ráðuneytisstjóra félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Sigrún Brynja Einarsdóttir flyst í embætti ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.

    01. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Kynningarfundur um tækifæri á styrkjum vegna vinnumarkaðsmála og félagslegrar nýsköpunar

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Rannís boða til opins kynningarfundar um félags- og vinnumálaáætlun Evrópusambandsins. Áætlunin styrkir fjölbreytt verkefni á sviði vinnumarkaðsmála og félagslegrar nýsköpunar. Kynningarfundurinn fer fram á morgun, þriðjudaginn 7. janúar kl. 15:00-16:30, í sal Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, 6. hæð.

    28. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkjum úthlutað til atvinnumála kvenna

    Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað á dögunum og veitti Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, þá við hátíðlega athöfn.

    23. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Kyrrstaða rofin um hjúkrunarheimili á Húsavík: Fjögurra ára gömul hola heyrir brátt sögunni til

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, undirrituðu í dag samning sem ætlað er að tryggja framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili í Norðurþingi. Árið 2021 var skóflustunga tekin að nýju hjúkrunarheimili við Auðbrekku 2 og í kjölfarið grafið fyrir grunni hússins. Ekkert varð hins vegar af sjálfri byggingu hjúkrunarheimilisins. Ráðherra segir að nú verði breyting á. „Nú spýtum við í lófana og tryggjum íbúum Norðurþings hjúkrunarheimilið sem þeir hafa beðið eftir svo árum skiptir. Það er táknrænt að við rjúfum kyrrstöðuna með því að undirrita samninginn ofan í holunni sem safnað hefur vatni síðustu ár. Áfram gakk!“ segir Inga Sæland

    23. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Kyrrstaða rofin um hjúkrunarheimili á Húsavík: Fjögurra ára gömul hola heyrir brátt sögunni til

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, undirrituðu í dag samning sem ætlað er að tryggja framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili í Norðurþingi. Árið 2021 var skóflustunga tekin að nýju hjúkrunarheimili við Auðbrekku 2 og í kjölfarið grafið fyrir grunni hússins. Ekkert varð hins vegar af sjálfri byggingu hjúkrunarheimilisins. Ráðherra segir að nú verði breyting á. „Nú spýtum við í lófana og tryggjum íbúum Norðurþings hjúkrunarheimilið sem þeir hafa beðið eftir svo árum skiptir. Það er táknrænt að við rjúfum kyrrstöðuna með því að undirrita samninginn ofan í holunni sem safnað hefur vatni síðustu ár. Áfram gakk!“ segir Inga Sæland

    23. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili mun rísa við Þursaholt 2 á Akureyri. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu samkomulag þess efnis í dag og skoðuðu byggingarstaðinn ásamt fulltrúum úr bæjarstjórn, öldungaráði og stjórn félags eldri borgara á Akureyri. „Ég er afar ánægð með að nýtt hjúkrunarheimili rísi á Akureyri og óska Akureyringum hjartanlega til hamingju. Gríðarleg þörf hefur verið fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila á Íslandi og nú er verkstjórn tekin við sem setur málið á dagskrá. Uppbygging hjúkrunarheimila er nú hafin fyrir alvöru,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

    23. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili mun rísa við Þursaholt 2 á Akureyri. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu samkomulag þess efnis í dag og skoðuðu byggingarstaðinn ásamt fulltrúum úr bæjarstjórn, öldungaráði og stjórn félags eldri borgara á Akureyri. „Ég er afar ánægð með að nýtt hjúkrunarheimili rísi á Akureyri og óska Akureyringum hjartanlega til hamingju. Gríðarleg þörf hefur verið fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila á Íslandi og nú er verkstjórn tekin við sem setur málið á dagskrá. Uppbygging hjúkrunarheimila er nú hafin fyrir alvöru,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

    22. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkur á 20 ára afmælisráðstefnu Afstöðu

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti í dag Afstöðu, félagi fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, 7 milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Ráðherra afhenti styrkinn á afmælisráðstefnu Afstöðu sem fram fór á Reykjavík Natura í dag.

    22. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Líf og heilsa

    Þrjú ráðuneyti styrkja Hjálparsíma Rauða krossins 1717

    Heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í dag samning við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ) sem felur í sér 25 milljóna króna styrk til reksturs Hjálparsímans 1717. Framkvæmdastjóri RKÍ segir þetta ómetanlegt. Þannig verði unnt að halda þjónustunni opinni allan sólarhringinn og sinna sálfélagslegum stuðningi fyrir stóran hóp fólks sem þarf á slíkri hjálp að halda.

    16. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Nýtt hjúkrunarheimili verður opnað við Nauthólsveg

    Nýtt og glæsilegt 87 rýma hjúkrunarheimili verður opnað við Nauthólsveg í Reykjavík. Hjúkrunarheimilið verður í byggingu sem áður hýsti skrifstofur Icelandair við Nauthólsveg 50 og verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæðinu og því umbreytt til þess að sinna nýju hlutverki. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita fasteignafélags, hófu framkvæmdirnar í dag með því að brjóta niður vegg sem þurfti að víkja við endurbæturnar.

    16. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Nýtt hjúkrunarheimili verður opnað við Nauthólsveg

    Nýtt og glæsilegt 87 rýma hjúkrunarheimili verður opnað við Nauthólsveg í Reykjavík. Hjúkrunarheimilið verður í byggingu sem áður hýsti skrifstofur Icelandair við Nauthólsveg 50 og verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæðinu og því umbreytt til þess að sinna nýju hlutverki. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita fasteignafélags, hófu framkvæmdirnar í dag með því að brjóta niður vegg sem þurfti að víkja við endurbæturnar.

    06. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Nýr búsetukjarni og skammtímavistun fyrir fötluð börn opnar

    Félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar opnuðu í dag nýjan búsetukjarna og skammtímavistun fyrir fötluð börn að viðstöddu fjölmenni. „Með þessu er mikilvægt skref stigið til að bæta stuðning við fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Ég óska íbúum Fjarðabyggðar hjartanlega til hamingju,“ segir Inga Sæland.

    05. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Samþætt heimaþjónusta fyrir eldra fólk í Árborg

    Unnið er að því að koma upp samþættri heimaþjónustu fyrir eldra fólk í Árborg og sjá til þess að rétt þjónusta sé veitt af réttum aðila og á réttum tíma. Samkomulag þessa efnis var staðfest í Árborg í dag. Viðstödd voru Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, og Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, auk fjölda gesta. Liður í samþættingu heimaþjónustunnar í Árborg er að koma upp sérstöku móttöku- og matsteymi og munu allar beiðnir um heimaþjónustu berast til teymisins. Þverfaglegu heimaendurhæfingarteymi verður einnig komið á fót og gert ráð fyrir að flestir sem sæki um heimaþjónustu fari í þjónustu teymisins til að byrja með.

    05. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Fyrsti fundur samstarfsnefndar um aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað samstarfsnefnd um aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Um er að ræða samstarfsnefnd stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins og hélt nefndin sinn fyrsta fund í dag. Auk félags- og húsnæðismálaráðherra eiga þrír ráðherrar fast sæti í nefndinni: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

    01. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Sigurjón Arnórsson og Hreiðar Ingi Eðvarðsson aðstoða Ingu Sæland

    Sig­ur­jón Arn­órs­son og Hreiðar Ingi Eðvarðsson hafa verið ráðnir aðstoðar­menn Ingu Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra.

    30. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Vinnustofur haldnar um öryggisráðstafanir

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið stóð í dag fyrir vinnustofu um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn. Markmið hennar var að fá sýn fag- og hagaðila á tillögur starfshóps um úrbætur í málaflokknum. Boðað hefur verið til samskonar vinnustofu þann 22. maí næstkomandi þar sem fleiri hagaðilar munu taka þátt.

    09. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Hagsýni í ríkisrekstri: Mikill sparnaður vegna aðgerða sem unnið er að í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu

    Áætlað er að hagræðingaraðgerðir sem félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst ráðast í skili meira en 13 milljarða króna sparnaði á ársgrundvelli árið 2030. Strax á næsta ári er áætlaður sparnaður ríflega 5 milljarðar króna. Aðgerðirnar eru hluti af hagræðingar- og umbótaverkefnum sem unnið er að innan Stjórnarráðsins.

    09. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Hagsýn í rekstri

    Breyttu fyrirkomulagi vegna atvinnuleysistrygginga ætlað að hvetja fólk til virkni

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, fyrirhugar að gera breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu með það að markmiði að grípa fólk fyrr en áður og stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi sem er útsettur fyrir langtímaatvinnuleysi. Hvergi á Norðurlöndum er bótatímabil atvinnuleysistrygginga jafn langt og á Íslandi eða 30 mánuðir. Áformaskjal hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem fyrirhugað er að stytta tímabilið niður í 18 mánuði.

    07. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni: 67 ný rými bætast við á árinu 2027

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, tók í dag fyrstu skóflustunguna að stækkun hjúkrunarheimilisins við Sóltún í Reykjavík. Með henni voru Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns og þær Aníta Eir Vilmarsdóttir og Jóný Helgadóttir, dætur starfsmanna á Sóltúni. Um er að ræða enn eitt skrefið í áætlun ríkisstjórnarinnar um stóraukna uppbyggingu hjúkrunarheimila til að mæta brýnni þörf. Stækkunin gerir ráð fyrir 67 nýjum hjúkrunarrýmum og eru verklok áætluð árið 2027. Hjúkrunarrými í Sóltúni verða þá alls orðin 159.

    07. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni: 67 ný rými bætast við á árinu 2027

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, tók í dag fyrstu skóflustunguna að stækkun hjúkrunarheimilisins við Sóltún í Reykjavík. Með henni voru Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns og þær Aníta Eir Vilmarsdóttir og Jóný Helgadóttir, dætur starfsmanna á Sóltúni. Um er að ræða enn eitt skrefið í áætlun ríkisstjórnarinnar um stóraukna uppbyggingu hjúkrunarheimila til að mæta brýnni þörf. Stækkunin gerir ráð fyrir 67 nýjum hjúkrunarrýmum og eru verklok áætluð árið 2027. Hjúkrunarrými í Sóltúni verða þá alls orðin 159.

    06. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Breytir byggingarreglugerð og setur inn nýtt ákvæði um 25 metra hámarksfjarlægð frá bílastæði hreyfihamlaðra

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur breytt byggingarreglugerð nr. 112/2012 og sett inn nýtt ákvæði um 25 metra fjarlægðarreglu vegna bílastæða hreyfihamlaðra. Slík bílastæði skulu nú vera sem næst aðalinngangi bygginga og ekki fjær þeim en 25 metrar. „Áður leyfði reglugerðin framkvæmdaaðilum að staðsetja bílastæði fyrir hreyfihamlaða yst á bílastæðum og sem lengst frá inngangi. En ekki lengur,“ segir ráðherra.

    04. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Kynningarfundur um niðurstöður rannsóknar á högum og líðan eldra fólks

    Félagsvísindastofnun hefur að beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins unnið greiningu á högum og líðan eldra fólks hér á landi. Helgi Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun, kynnir niðurstöður greiningarinnar á rafrænum fundi fimmtudaginn 10. apríl kl. 12:00-13:00.

    04. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Rætt um bætta þjónustu við eldra fólk á vordegi Gott að eldast

    Vordagur Gott að eldast var haldinn á Nauthóli í Reykjavík á miðvikudag. Þátttakendur voru starfsfólk frá öllum sveitarfélögum og heilbrigðisstofnunum sem taka þátt í þróunarverkefnum um samþætta heimaþjónustu á vegum Gott að eldast. Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög vítt og breitt um landið taka þátt í verkefnunum. Félags- og heilbrigðisþjónusta fyrir eldra fólk í heimahúsum er þá samþætt og öll þjónusta á hendi eins aðila.

    02. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Fatlað fólk, Almannatryggingar og lífeyrir

    Frumvörp sem snerta fjölda fólks

    Ellefu frumvörp á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar koma frá Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. Frumvörpin spanna vítt svið og snerta fjölda fólks. Má þar nefna fatlað fólk, örorkulífeyrisþega, ellilífeyrisþega, fólk á leigumarkaði, fólk sem eignast fjölbura, fólk sem tekur hlutdeildarlán til fyrstu íbúðarkaupa og börn sem missa foreldri.

    31. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Mælti fyrir frumvarpi um hunda- og kattahald í fjölbýli

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús. Frumvarpið felur í sér að samþykki annarra eigenda verður ekki lengur skilyrði fyrir því að einstaklingur megi halda hund eða kött í fjölbýli, jafnvel þótt íbúðir deili sameiginlegum stigagangi. Frumvarpinu er þannig ætlað að liðka fyrir hunda- og kattahaldi fólks, óháð efnahag og búsetu, en gildandi reglur fjöleignarhúsalaganna hafa leitt til þess að íbúar fjöleignarhúsa hafa átt minni möguleika á slíku dýrahaldi en fólk sem býr í sérbýli.

    31. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Fatlað fólk, Málefni eldra fólks, Almannatryggingar og lífeyrir, Fjármálaáætlun

    Aðgerðir sem snerta 65.000 manns: Fjármálaáætlun frá sjónarhóli öryrkja og eldra fólks

    Í Fjármálaáætlun 2026-2030 eru stór tíðindi fyrir öryrkja og eldra fólk. Tvær umfangsmiklar breytingar verða fjármagnaðar með áætluninni, auk kerfisbreytingar sem nýtt örorkulífeyriskerfi felur í sér. ​„Áætlunin markar vatnaskil fyrir öryrkja og aldraða á Íslandi. Við sýnum hér að sú hugsjón að taka betur utan um fólkið okkar er sannarlega komin til framkvæmda,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

    27. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Mælti fyrir frumvarpi sem eykur réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bætir upplýsingar um leigumarkaðinn

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem hafa það að markmiði að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Þá er markmið frumvarpsins að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningu leigusamninga og auknu gagnsæi um upplýsingar í leigusamningum.

    27. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál

    Félagsleg einangrun er mun algengari en fólk grunar

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur ýtt úr vör vitundarvakningu um félagslega einangrun. Verkefnið ber heitið „Tölum saman“ og með því vill ráðuneytið vekja athygli almennings á því hve alvarleg félagsleg einangrun er og hvernig við getum öll verið hluti af lausninni. „Sem ráðherra félags- og öldrunarmála þá er það eitt af mínum hjartans málum að vinna gegn þeirri þöglu ógn sem einmanaleiki og félagsleg einangrun eru,“ segir Inga Sæland.

    26. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur

    Íslensk-pólsk veforðabók opnuð

    Íslensk-pólsk veforðabók hefur verið tekin í gagnið. Í henni eru 54 þúsund uppflettiorð ásamt fjölda dæma og orðasambanda sem öll eru þýdd á pólsku. Verkefnið er unnið fyrir fjárframlög frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og er veforðabókin gjaldfrjáls og öllum aðgengileg. Unnið hefur verið að veforðabókinni undanfarin ár á Árnastofnun og eru þetta því mikil tímamót.

    20. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Auðlesið efni: Handbók um auðlesið mál komin út

    Miðstöð um auðlesið mál hefur gefið út handbók. Handbókin fjallar um auðlesið mál. Inga Sæland fékk fyrsta eintakið af handbókinni.

    20. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Fatlað fólk

    Handbók um auðlesið mál komin út

    Handbók um auðlesið mál er komin út og hægt að nálgast hana endurgjaldslaust á vefnum. Bókin er gefin út á vegum Miðstöðvar um auðlesið mál. Miðstöðin er styrkt af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og fékk Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhent fyrsta eintakið. Með útgáfu handbókarinnar er öllum þeim sem birta efni opinberlega gert kleift að bjóða upp á auðlesna útgáfu.

    20. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Mælti fyrir frumvarpi um lögfestingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Markmið lögfestingarinnar er að auka réttaráhrif samningsins hér á landi, tryggja að fatlað fólk njóti til fulls allra mannréttinda og koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar. Lengi hefur verið kallað eftir lögfestingunni hér á landi.

    19. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkomulag í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu við börn með fjölþættan vanda

    Í dag var undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga; annars vegar um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og hins vegar um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingarnar eru liður í að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga og taka gildi um mitt þetta ár.

    19. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkomulag í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu við börn með fjölþættan vanda

    Í dag var undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga; annars vegar um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og hins vegar um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingarnar eru liður í að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga og taka gildi um mitt þetta ár.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga

    Á fundi ríkisstjórnar í dag var tekin ákvörðun um framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga og atvinnurekendur í bænum. Gerðar verða breytingar sem miða að því að færa stuðning úr formi sértækra neyðarúrræða og í almennari farveg. Einstaklingar og fjölskyldur í sérstaklega viðkvæmri stöðu munu áfram njóta nauðsynlegs stuðnings.

    17. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Stjórn Tryggingastofnunar aflögð

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar. Stjórnir stofnana sem heyra beint undir ráðherra þykja almennt hafa óljósa stöðu og hlutverk og bent hefur verið á að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanns. Í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar á stofnunum sem heyra undir yfirstjórn ráðherra hafa reglulega komið fram athugasemdir við skipan slíkra stjórna þar sem stjórnskipuleg staða þeirra sé oft ekki nógu skýr.

    15. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið tekur til starfa

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið tekur formlega til starfa í dag samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Undir ráðuneytið færast húsnæðis- og skipulagsmál, auk mannvirkjamála. Þá flytjast málefni aldraðra, að undanskilinni heilbrigðisþjónustu, til ráðuneytisins.

    14. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Breytt skipan öldrunarmála milli ráðuneyta tekur gildi 15. mars

    Forsetaúrskurður um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráðinu tekur gildi á morgun, líkt og greint er frá í frétt á vef forsætisráðuneytisins í dag. Ýmsar breytingar verða á skiptingu öldrunarmála milli heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis sem fær jafnframt nýtt heiti, þ.e. félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Hér er gerð nánari grein fyrir því hvað í breytingunum felst varðandi málefni aldraðra.

    09. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Einföldun á kröfum um lífsferilsgreiningar bygginga

    Þann 1. september sl. tók reglugerð nr. 383/2024 gildi en í henni er gerð krafa um skil á lífsferilsgreiningu fyrir nýbyggingar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að draga úr kolefnisspori mannvirkja. Með breytingunni verður unnt að styðja betur við fagaðila að tileinka sér aðferðafræðina og byggja upp færni. Nálgunin er í samræmi við áherslur á Norðurlöndum, þar sem lögð er sérstök áhersla á gæði gagna á hönnunarstigi og stigvaxandi innleiðingu losunarviðmiða. Með þessu er tryggð markviss og raunhæf innleiðing kröfu um lífsferilsgreiningar, án þess að draga úr gæðum greininganna eða markmiðum reglugerðarinnar.

    03. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Almannatryggingar og lífeyrir

    Samráðsgátt: Frumvarp sem ætlað er að bæta stöðu örorku- og ellilífeyrisþega

    Drög að frumvarpi sem ætlað er að bæta stöðu örorku- og ellilífeyrisþega er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir meðal annars að ríkisstjórnin ætli að stöðva strax kjaragliðnun launa og lífeyris og stíga stór skref til að uppræta fátækt, auk þess að binda í lög að aldursviðbót á lífeyri öryrkja haldist ævilangt.

    02. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Fyrstu verk nýrrar ríkisstjórnar

    Formenn stjórnarflokkanna, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, kynntu í dag fyrstu verk nýrrar ríkisstjórnar. Á fréttamannafundi í forsætisráðuneytinu sögðu þær frá þingmálaskrá fyrir vorþingið og ýmsum frumvörpum, reglugerðarbreytingum og öðrum aðgerðum sem stjórnin hyggst ráðast í á fyrstu 100 dögum stjórnarsamstarfsins.

    28. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Þau eru velviljuð, þó séu ófötluð …

    Átak, félag fólks með þroskahömlun, hefur birt tónlistarmyndband sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Um er að ræða endurgerð á laginu „Hjálpum þeim“. Myndbandið er hluti af vitundarvakningu sem nú stendur yfir um stöðu, framlag og réttindi fatlaðs fólks. Átak gerði nýjan texta við lagið og í honum segir meðal annars: „Menn, konur og kvár eru‘ að reyna, án hjálpar eiga enga von! Búum til betri heim, sameinust hjálpum þeim, þau eru velviljuð, þó séu ófötluð.“

    26. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Leitin að peningunum: Ráðherra fékk fyrsta eintakið afhent

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur fengið afhent fyrsta eintakið af bókinni Leitin að peningunum – leiðarvísir að fjárhagslegu sjálfstæði sem umboðsmaður skuldara gefur út. Höfundar bókarinnar eru Kolbeinn Marteinsson og Gunnar Dofri Ólafsson og myndskreyting er í höndum Ránar Flygenring.

    22. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    20 verkefni fengu styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála

    20 verkefni hafa hlotið styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2024. Óskað var eftir umsóknum um verkefni sem ná til: Vinnu gegn fordómum, haturstjáningu, ofbeldi og margþættri mismunun. Virkar notkunar tungumáls í gegnum félagslega viðburði til stuðnings við hefðbundið tungumálanám. Áhersla er lögð á verkefni fyrir ungmenni á framhaldsskólaaldri og fyrir fullorðið fólk. Þátttöku innflytjenda og innlendra á jafningjagrunni, m.a. með því að stuðla að virkri lýðræðisþátttöku jafnt í félagasamtökum sem og stjórnmálum.

    22. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Fyrir okkur öll: Vitundarvakning um stöðu, framlag og réttindi fatlaðs fólks

    Djamm fyrir okkur öll. Draumastarfið fyrir okkur öll. Húsnæði fyrir okkur öll. Prófstress fyrir okkur öll! Þetta er meðal slagorða í vitundarvakningu um stöðu, framlag og réttindi fatlaðs fólks sem er hafin og ber yfirskriftina Fyrir okkur öll. Vitundarvakningin er ein af aðgerðum í Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks sem samþykkt var á Alþingi í fyrra og inniheldur 60 aðgerðir sem snúa að mismunandi sviðum mannlífsins. Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem nú er fram undan.

    21. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ráðherranefnd um öldrunarþjónustu hefur störf

    Ráðherranefnd um öldrunarþjónustu kom í vikunni saman til síns fyrsta fundar. Hlutverk nefndarinnar er að efla samráð og samhæfingu meðal þeirra ráðuneyta sem vinna að málefnum eldra fólks.

    • First
    • Prev
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband