28. okt. 2024Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fatlað fólk, Gervigreind, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Sameinast um stórbætt aðgengi fatlaðs fólks að stafrænum lausnum
Menningar- og viðskiptaráðherra, Almannarómur – miðstöð máltækni, ÖBÍ réttindasamtök og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu þess efnis að vinna saman að því að stórbæta stafrænt aðgengi fatlaðs fólks, með hjálp íslenskra máltæknilausna. Á meðal þeirra verkefna sem unnið verður að er að koma á fót upplýsingagátt um helstu lausnir sem geta gagnast ýmsum hópum, styðja við stofnun raddbanka og setja aukinn kraft í þróun á talgervilslausnum sem styðja við íslensku.