Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 640
    Raða eftir:
    14. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti

    Sex verkefni á sviði jafnréttismála hljóta styrk

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til sex verkefna á sviði jafnréttismála en heildarfjárhæð styrkjanna er níu milljónir króna.

    14. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Norrænir ráðherrar ræddu mikilvægi almannavarna og löggæslu

    Í gær funduðu norrænir ráðherrar almannavarna á árlegum fundi Haga-samstarfsins sem haldinn var í Helsinki. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra almannavarna sat fundinn. Á fundinum ræddu ráðherrarnir meðal annars um mikilvægi þess að efla almannavarnir og löggæslu m.a. vegna fjölþáttaógna.

    14. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Sjö sækja um embætti dómara við Landsrétt

    Hinn 24. október 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar. Sjö sækja um embættin.

    11. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Alþjóðamál, Löggæsla, Almannaöryggi

    Dómsmálaráðherra fundaði með framkvæmdastjóra Europol

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra fundaði í dag með Catherine De Bolle, framkvæmdastjóra Europol. Á fundinum ræddu þær meðal annars um mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi og aukna þátttöku Íslands í samstarfi aðildarríkja Schengen á sviði sakamálasamvinnu.

    09. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Almannaöryggi

    Dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra heimsóttu Northern Challenge

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra heimsóttu í dag fjölþjóðlegu sprengjueyðingaæfinguna Northern Challenge, sem fram fer hér á landi. Northern Challenge er ein umfangsmesta fjölþjóðlega æfing sprengjusérfræðinga í Evrópu og sú stærsta innan NATO sem sérhæfir sig í sprengjueyðingu. Æfingin fer fram ár hvert á Íslandi og í henni taka þátt um 400 fulltrúar frá sextán ríkjum, þar á meðal frá Íslandi, Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Þá taka fulltrúar frá bandarísku alríkislögreglunni þátt í æfingunni og deila reynslu sinni í meðhöndlun sönnunargagna.

    07. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar, Stafrænt Ísland, Lög og réttur

    Áform um stafræna málsmeðferð í samráðsgátt

    Dómsmálaráðherra hefur lagt fram áform í Samráðsgátt stjórnvalda um lögfestingu stafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumönnum og dómstólum, í málum sem varða erfðalög, lög um aðför og lög um nauðungarsölu. Markmiðið með breytingunum er að einfalda og bæta þjónustu, tryggja skilvirkari afgreiðslu mála og styðja við stefnu stjórnvalda um stafræna þjónustu.

    06. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Norræn samstaða í baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, sótti árlegan fund norrænna dómsmálaráðherra sem haldinn var í Helsinki dagana 3.–4. júní 2025.

    04. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Aðgerðir gegn mansali, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Dómsmálaráðherra býður til Jafnréttisþings 2025

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála býður til Jafnréttisþings 2025 sem haldið verður í Hörpu, 22. maí næstkomandi. Þingið ber yfirskriftina Mansal; íslenskur veruleiki – áskoranir og leiðir í baráttunni.

    04. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Samráðshópur þingmanna vegna mótunar öryggis- og varnarstefnu hefur störf

    Í tengslum við mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands hefur utanríkisráðherra skipað samráðshóp þingmanna sem tilnefndir eru af þingflokkum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Hlutverk samráðshópsins er að fjalla um inntak og áherslur öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland.

    03. nóv. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Dómsmálaráðuneytið

    Utanríkisráðherra boðar stefnumótun og aðgerðir í varnarmálum

    Utanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í dag tillögu að mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024 kemur fram að mótuð verði öryggis- og varnarmálastefna. Stefnunni er ætlað að lýsa helstu öryggisáskorunum til lengri og skemmri tíma með áherslu á ytri ógnir og draga fram markmið Íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi, fjalla um nauðsynlegan varnarviðbúnað, og skipulag og getu sem þurfi að vera til staðar á Íslandi, auk þess að benda á hugsanlegar umbætur á laga- og stofnanaumgjörð varnarmála.

    03. nóv. 2025Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Árlegur fundur Kvennanefndar SÞ hafinn

    Árlegur fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (csw69) hófst í New York á mánudag. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra sem jafnframt er ráðherra jafnréttis- og mannréttindamála, tekur þátt í fundinum fyrir Íslands hönd. Ráðherra lagði áherslu á mikilvægi samstöðu Norðurlandaþjóðanna í viðbrögðum við bakslag í kynja- og hinseginbaráttunni á fundi sínu með Simu Bahous, framkvæmdastjóra UN Women, og öðrum jafnréttisráðherrum Norðurlandanna við upphaf fundarins. Yfirskrift þátttöku Norðurlandaþjóðanna á Kvennanefndarfundinum í ár er Þrýst á framfarir.

    03. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti

    Auglýst eftir umsóknum í Jafnréttissjóð Íslands

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jafnréttissjóð Íslands á vefsvæði Rannís, umsóknarfrestur er til 10. apríl 2025, kl. 15:00.

    31. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Úttekt vegna fjárhagsstöðu embættis ríkislögreglustjóra

    Á árinu 2025 hefur dómsmálaráðuneytið haft fjármál embættis ríkislögreglustjóra til athugunar í samræmi við yfirstjórnunar- og eftirlitshlutverk sitt. Ráðuneytið hefur verið í markvissri vinnu frá því að rekstrarniðurstaða embættis ríkislögreglustjóra vegna ársins 2024 lá fyrir. Í þeim tilgangi hefur ráðuneytið óskað eftir upplýsingum, haldið fundi með embættinu og farið yfir tillögur og aðgerðir til að bregðast við rekstrarvandanum.

    29. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Hert skilyrði námsmannaleyfa kynnt í samráðsgátt

    Dómsmálaráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingar á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Með frumvarpinu er lagt til að afnema íslenskar sérreglur í flokki námsleyfa, herða á skilyrðum þeirra og samræma framkvæmd á við önnur Norðurlönd í tengslum við útgáfu atvinnu- og námsleyfa.

    27. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Kristmundur Stefán Einarsson skipaður lögreglustjóri á Austurlandi

    Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að skipa Kristmund Stefán Einarsson í embætti lögreglustjóra á Austurlandi frá 1. nóvember næstkomandi.

    26. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Ólafur Þ. Harðarson leiðir starfshóp um jöfnun atkvæðavægis

    Dómsmálaráðherra hefur sett á fót starfshóp sem falið er að undirbúa frumvarp til breytinga á kosningalögum til að auka jafnræði í atkvæðavægi og þingsætadreifingu.

    24. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Kröfum kvennaárs svarað

    Stjórnvöld hafa þegar framkvæmt eða hafið undirbúning fjölmargra aðgerða sem tengjast þeim málaflokkum sem settir voru fram í kröfum kvennaárs 2024. Áhersla hefur verið lögð á endurmat á virði kvennastarfa, baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og að auka vernd brotaþola.

    22. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Hafsteinn Dan Kristjánsson nýr formaður refsiréttarnefndar

    Dómsmálaráðherra hefur skipað nýja refsiréttarnefnd. Refsiréttarnefnd hefur það hlutverk að vera ráðuneytinu til ráðgjafar á sviði refsiréttar og annast endurskoðun refsilaga.

    21. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar

    Eyvindur G. Gunnarsson skipaður dómari við Landsrétt

    Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Eyvindur G. Gunnarsson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 24. október 2025.

    20. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ný stöðutaka undirstrikar þörf á bættri þjónustu og vernd fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis

    Ný stöðutaka aðgerðahóps stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum sýnir að á undanförnum árum hefur orðið veruleg vitundarvakning í íslensku samfélagi um ofbeldi gegn börnum. Í þessari stöðutöku er sjónum beint að börnum sem eru þolendur ofbeldis, en síðasta stöðutaka aðgerðahópsins fjallaði um börn sem sýna áhættuhegðun eða beita ofbeldi.

    18. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland í forystu í jafnréttismálum – dómsmálaráðherra á alþjóðlegri kvennaráðstefnu í Peking

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu UN Women og kínverskra stjórnvalda í Peking, Beijing +30. Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar ríkja heims til að ræða stöðu kvenna og framgang jafnréttismála þrjátíu árum eftir að Peking-yfirlýsingin var samþykkt árið 1995. Ráðherra fylgdi Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands í opinbera heimsókn til Kína og var forseti heiðursgestur á ráðstefnunni og flutti þar ávarp.

    16. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Ráðherra ávarpaði ráðstefnu almannavarna: „Borgaralegir innviðir eru fyrsta lína varna“

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra flutti opnunarávarp á ráðstefnu Almannavarna í dag þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi öflugra borgaralegra innviða og áfallaþols íslensks samfélags.

    14. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Frá orðum til aðgerða – saman tryggjum við öryggi barna

    Starfsfólk víðs vegar að úr forvörnum og þjónustu við börn kom saman á vinnufundi um samræmd viðbrögð við ofbeldi meðal barna í gær á Reykjavík Natura. Fundurinn var fjölsóttur með um 320 þátttakendum og markaði hann mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum.

    13. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Landamæraeftirlit, Alþjóðamál

    Nýtt komu- og brottfararkerfi tryggir öryggi á landamærum

    Í gær hófst innleiðing á nýju komu- og brottfararkerfi Schengen-svæðisins (Entry/Exit System – EES). Innleiðing kerfisins fer fram samtímis í öllum Schengen-ríkjum, að Kýpur undanskildu, og er gert ráð fyrir að það verði að fullu tekið í notkun á öllum ytri landamærum Schengen-ríkjanna í lok mars 2026.

    12. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Auglýsing um breytingu á áfrýjunarfjárhæð

    desember 2025 / Dómsmálaráðuneytið Auglýsing um breytingu á áfrýjunarfjárhæð Samkvæmt 152. gr

    12. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi, Mannréttindasáttmáli Evrópu, Evrópuráðið

    Mikilvægi mannréttinda og áskoranir í útlendingamálum til umræðu í Strassborg

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sótti í dag óformlegan ráðherrafund Evrópuráðsins í Strassborg þar sem ráðherrarnir ræddu fólksflutninga í ljósi Mannréttindasáttmála Evrópu. Tildrög fundarins voru meðal annars áhyggjur tiltekinna aðildarríkja af framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu.

    11. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla

    Sigríður Björk lætur af embætti ríkislögreglustjóra

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur orðið við beiðni Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra um að hún láti af embætti. Þetta var niðurstaða fundar þeirra beggja í gær.

    10. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Dómsmálaráðherra fylgir forseta Íslands til Peking

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála mun fylgja Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í heimsókn til Kína dagana 12.–15. október. Venju samkvæmt fylgir ráðherra alltaf forseta á ferðalögum erlendis.

    09. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar, Hagsýn í rekstri

    Fimm frumvörp til að herða tökin í útlendingamálum

    Dómsmálaráðherra mun mæla fyrir fimm frumvörpum á 157. löggjafarþingi til að ná stjórn í útlendingamálum. Í þingmálaskrá 2025-2026 er áhersla lögð á tiltekt í útlendingamálum sem felur m.a. í sér að afnema séríslenskar reglur og samræma íslenska löggjöf við löggjöf Norðurlanda í útlendingamálum. Þá hyggst ráðherra herða skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfa og uppfylla skyldur Íslands samkvæmt Schengen-samkomulaginu.

    03. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Stígamót fagna 35 ára afmæli

    Í tilefni 35 ára afmælis Stígamóta var haldið málþing undir yfirskriftinni Útrýmum kynferðisofbeldi. Málþingið fór fram í Veröld-húsi Vigdísar 6. mars. sl og tók Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála, þátt í samtali í forföllum ráðherra dómsmála, jafnréttis og mannréttindamála og þakkaði Stígamótum fyrir þeirra ómetanlega starf og lagði áherslu á að samtökin hefðu haft mikil áhrif í baráttunni gegn kynferðisofbeldi. Hún lagði áherslu á mikilvægi grasrótarsamtaka eins og Stígamóta og nefndi að samstarf milli slíkra samtaka og stjórnvalda væri lykillinn að árangri á sviði jafnréttis og mannréttinda.

    03. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla

    Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu skipuð

    Skipað hefur verið í nefnd um eftirlit með störfum lögreglu en hún hefur það hlutverk að taka við tilkynningum frá borgurum sem varða ætlaða refsiverða háttsemi starfsmanns lögreglu, starfsaðferðir lögreglu eða framkomu starfsmanns lögreglu. Nefndin tekur við kærum á hendur starfsmönnum lögreglu fyrir ætlað refsivert brot við framkvæmd starfa hans og tekur til meðferðar kvartanir vegna starfsaðferða lögreglu eða framkomu starfsmanns lögreglu. Þá hefur nefndin heimild til að taka atvik og verklag lögreglu til skoðunar að eigin frumkvæði þegar hún telur tilefni til.

    02. okt. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Málþing um stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi gegn konum

    Málþing um stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi sem Ísland stóð fyrir í samstarfi við Finnland fór fram í Helsinki, dagana 6.-7. febrúar 2025.

    24. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið, Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, Almannaöryggi

    Endurskoðuð stefna stjórnvalda gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

    Dómsmálaráðherra birti í dag endurskoðaða stefnu stjórnvalda ásamt áætlun um frekari aðgerðir í baráttunni gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun og útbreiðslu gereyðingarvopna. Með þessu leitast stjórnvöld við að styrkja varnir samfélagsins gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. Aðgerðirnar tíu stuðla að auknu trausti á íslenskt efnahagslíf, verja hagsmuni neytenda og tryggja að Ísland sé áfram í fararbroddi í alþjóðlegu samstarfi gegn þessum alvarlegu ógnum.

    23. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið, Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, Byggðamál, Sýslumenn, Mannréttindi og jafnrétti, Útlendingar

    Dómsmálaráðherra mælir fyrir fimm mikilvægum málum á Alþingi

    Dómsmálaráðherra mælti í dag fyrir fimm málum á Alþingi. Um er að ræða fjögur frumvörp ásamt einni þingsályktunartillögu sem hafa þegar hlotið umræðu á þingi en eru nú lögð fram að nýju til afgreiðslu.

    23. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum laust til umsóknar

    Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem er umbótadrifinn og hefur kraft til þess að móta og efla innri og ytri starfsemi embættisins.

    22. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um embætti dómara við Landsrétt

    Þann 13. júní 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt. Þrjár umsóknir bárust um embættið. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra.

    18. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Nýsköpun, Atvinnuvegaráðuneytið

    Samkomulag um stuðning við frumkvöðlastarf kvenna endurnýjað

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur, undirrituðu samkomulag um áframhaldandi starfsemi Svanna – lánatryggingasjóðs kvenna í dag.

    14. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið, Almannaöryggi, Fjárlög

    Stærsti hluti fjárveitinga dómsmálaráðuneytisins í öryggismál

    Dómsmálaráðherra leggur skýra áherslu á öryggi og einföldun með fjárlögum ársins 2026. Heildarfjárframlög sem heyra undir ráðuneytið nema rúmum 73 milljörðum króna, eða um 4,5% af áætluðum útgjöldum ríkissjóðs. Stærsti hluti fjárveitinganna fer í öryggismál. Þar undir falla lögregla, Landhelgisgæsla, ákæruvald og fangelsismál, þar sem útgjöld nema rúmum 50 milljörðum króna. Það er 12,7% hækkun frá fjárlögum ársins 2025.

    10. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Norrænir ráðherrar ræða stöðu drengja og bakslag í jafnréttismálum

    Norrænir ráðherrar jafnréttismála funduðu í Tavastehus í Finnlandi 7. október þar sem meðal annars var rætt um stöðu jafnréttismála á tímum fjölþátta ógna og breytt viðhorf drengja og ungra karla til jafnréttis. Ráðherrarnir sammæltust um að efla enn frekar stuðning og og samvinnu á sviði jafnréttismála. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála sat fundinn fyrir hönd Íslands.

    09. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Aðgerðir í jafnréttismálum: Nefnd um jafnrétti karla

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag þingsályktunartillögu dómsmálaráðherra um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026 til 2029. Henni er ætlað að skilgreina stefnu stjórnvalda og lýsa verkefnum innan Stjórnarráðsins sem ýmist er ætlað að varpa ljósi á stöðu kynjanna eða fela í sér beinar aðgerðir í þágu kynjajafnréttis.

    05. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Evrópuráðið

    Lokaval til Jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur

    Jafnréttisverðlaun Vigdísar Finnbogadóttur eru sameiginlegt framtak íslenskra stjórnvalda og þings Evrópuráðsins en þeim er ætlað að verðlauna einstakling eða samtök sem stuðla að eða styðja með framúrskarandi hætti við valdeflingu kvenna.

    05. sep. 2025Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur

    Nýtt öryggisfangelsi rís að Stóra Hrauni

    Í síðustu viku samþykkti ríkisstjórnin tillögu dómsmálaráðherra um að ráðast í byggingu öryggisfangelsis að Stóra Hrauni. Þetta verður fyrsta fangelsið sem er sérstaklega hannað og byggt sem öryggisfangelsi á Íslandi.

    04. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármálaáætlun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Mikilvægur áfangi um úrbætur í öryggisráðstöfunum

    Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur tekið afgerandi skref um úrbætur í þjónustu og úrræðum fyrir einstaklinga sem sæta þurfa sérstökum öryggisráðstöfunum. Um er að ræða einstaklinga sem geta verið sjálfum sér og öðrum hættulegir en hafa fallið milli þjónustukerfa ríkis og sveitarfélaga. Þessir einstaklingar glíma gjarnan við alvarlegar þroska- og/eða geðraskanir og geta verið ósakhæfir, en einnig sakhæfir sem lokið hafa afplánun og þurfa mikinn stuðning í samfélaginu utan réttarvörslukerfis.

    26. ágú. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti

    Mikilvægar aðgerðir til verndar brotaþolum

    Mannréttindadómstóll Evrópu kvað í dag upp tvo dóma í málum gegn íslenska ríkinu og hafa þeir verið birtir á vef dómstólsins. Í öðru málinu var Ísland talið hafa brotið gegn Mannréttindasáttmála Evrópu þar sem málið fyrndist í meðförum lögreglu. Dómsmálaráðherra tekur niðurstöðum dómsins alvarlega og segir mikilvægt að rýna niðurstöðuna og vinna áfram í því að bæta réttarstöðu brotaþola.

    25. ágú. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Vel heppnað samstarf félagsmiðstöðva og lögreglu á Menningarnótt

    Ein helsta forsenda aðgerða stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum er þverfaglegt samstarf aðila sem koma að þessum málum. Viðvera og samtal samfélagslögreglu, starfsfólks félagsmiðstöðva þar með talið Flotans, flakkandi félagsmiðstöðvar og fleiri á Menningarnótt eru dæmi um slíkt samstarf. Þar fylgdi einn félagsráðgjafi og einn starfsmaður félagsmiðstöðvar hverjum lögregluhópi og var Flotinn – flakkandi félagsmiðstöð á vakt og samfélagslögreglan á ferðinni.

    21. ágú. 2025Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla, Lög og réttur

    Starfshópur skilar tillögum til verndar brotaþolum

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók í gær við tillögum starfshóps að breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Tillögurnar og aðgerðir tengdar þeim verða kynntar á næstu vikum.

    18. ágú. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Jafnvægisvoginni veittur áframhaldandi styrkur

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, veitti í dag Félagi kvenna í atvinnulífinu styrk til áframhaldandi þróunar og kynningar á hreyfiaflsverkefninu Jafnvægisvoginni, sem hefur það að markmiði að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi.

    10. ágú. 2025Dómsmálaráðuneytið, Grindavík, Almannaöryggi

    Ráðherra samþykkir hækkun varnargarða við Grindavík

    Dómsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu ríkislögreglustjóra um viðbætur við varnargarða norðan Grindavíkur. Með ákvörðuninni verður varnargarðurinn hækkaður um tvo til þrjá metra á um 450 metra kafla til að tryggja virkni hans og auka vernd bæjarins gagnvart mögulegu hraunflæði.

    09. ágú. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Dómsmálaráðuneytið flytur starfsemi í Skúlagötu 4

    Dómsmálaráðuneytið mun flytja starfsemi sína úr Borgartúni 26 í endurnýjað húsnæði ráðuneyta við Skúlagötu 4. Flutningar fara fram dagana 9. og 10. september og verða skrifstofur ráðuneytisins lokaðar á meðan. Símsvörun verður með óbreyttum hætti í síma 545-9000. Frá og með fimmtudeginum 11. september tekur ráðuneytið formlega til starfa á nýjum stað.

    09. ágú. 2025Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar

    Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

    Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið haustið 2025. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband