Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 574
    Raða eftir:
    20. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Tryggjum úrræði fyrir börn

    Ráðherranefnd um málefni barna fundaði í gær um alvarlega stöðu mála vegna neyðarvistunar og úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda. Nefndin er einhuga um að leita lausna sem fyrst á þeim bráðavanda sem uppi er og að hefja skuli vinnu við að tryggja úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda.

    20. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Fullur salur á samráðsþingi um landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks

    Fjöldi fólks tók þátt í opnu samráðsþingi um landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fram fór í dag. Landsáætlunin inniheldur 60 aðgerðir og er liður í innleiðingu og lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Yfirskrift þingsins var „Eitt lífshlaup – ótal tengingar“ og markmiðið að kortleggja þjónustu við fatlað fólk í gegnum ævina og hvernig hægt sé að koma á og styrkja tengingar á milli aðila.

    19. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Lagt til að fæðingarorlof verði lengt fyrir foreldra með fjölbura og vegna veikinda á meðgöngu

    Frumvarp hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem lagt er til að fæðingarorlof verði lengt fyrir foreldra með fjölbura og vegna veikinda á meðgöngu. Frumvarpið er hluti af þeim 11 þingmálum sem Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, ætlar að leggja fram á vorþingi. Í dag eiga foreldrar sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs í þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt en lagt er til að það breytist í sex mánuði. Það sama á við um greiðslu svokallaðs fæðingarstyrks. Þannig er lagt til að tímabilið tvöfaldist þar sem foreldrar eiga sameiginlegan rétt á fleiri mánuðum vegna fjölbura.

    18. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    40 verkefni fengu styrki til rannsókna og nýsköpunar á sviði mannvirkjagerðar

    Fjörutíu nýsköpunar- og/eða rannsóknarverkefni fengu í dag styrkúthlutun úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í húsakynnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Um er að ræða úthlutun ársins 2024. Þetta er fjórða úthlutun sjóðsins sem stofnaður var árið 2021 og hefur það hlutverk að veita styrki til nýsköpunar- og mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar.

    17. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Aðgerðahópur skipaður um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað aðgerðahóp um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum og úrbætur til lengri tíma. Í hópnum sitja þrír þingmenn, einn úr hverjum stjórnarflokki, auk fulltrúa frá ráðuneytinu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hlutverk aðgerðahópsins er fyrst og fremst að kortleggja áskoranir í húsnæðismálum og leggja fram tillögur að aðgerðum. Markmiðið er að landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að skapa jafnvægi á húsnæðismarkaði.

    14. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Sækir ráðherrafund OECD á sviði félagsmála

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, situr í dag ráðherrafund OECD á sviði félagsmála. Fundinn sækja félagsmálaráðherrar OECD-ríkjanna. Yfirskrift fundarins hefur sterka tengingu við áherslumál félags- og húsnæðismálaráðherra og nýrrar ríkisstjórnar: New Frontier for Social Policy: Investing in the Future. „Ég mun á fundinum leggja ríka áherslu á baráttuna gegn fátækt, ekki síst baráttuna gegn því að börn alist upp við fátækt,“ segir Inga Sæland.

    13. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Hildur H. Dungal skipuð skrifstofustjóri á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað Hildi H. Dungal í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála. Hildur er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur starfað á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála sem lögfræðingur frá árinu 2022 og staðgengill skrifstofustjóra frá árinu 2023.

    10. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir til verkefna til stuðnings við þolendur og gerendur ofbeldis

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem miða að því að tryggja þolendum og gerendum ofbeldis um land allt aðgengi að stuðningi og ráðgjöf. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda árin 2023-2025 til þess að bregðast við afleiðingum Covid-19 faraldursins.

    09. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    64 ný hjúkrunarrými á Hrafnistu í Kópavogi

    Félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra, bæjarstjóri Kópavogs og forráðamenn Hrafnistu opnuðu í dag nýtt 64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi. Fyrir eru 44 rými í Boðaþingi og eru hjúkrunarrýmin þannig orðin 108 talsins. Óhætt er að segja að um mikilvægan áfanga sé að ræða í uppbyggingu hjúkrunarheimila hér á landi, enda eru biðlistar langir, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Eignarhald er sameiginlega á hendi ríkisins og Kópavogsbæjar en Hrafnista annast reksturinn.

    09. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    64 ný hjúkrunarrými á Hrafnistu í Kópavogi

    Félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra, bæjarstjóri Kópavogs og forráðamenn Hrafnistu opnuðu í dag nýtt 64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi. Fyrir eru 44 rými í Boðaþingi og eru hjúkrunarrýmin þannig orðin 108 talsins. Óhætt er að segja að um mikilvægan áfanga sé að ræða í uppbyggingu hjúkrunarheimila hér á landi, enda eru biðlistar langir, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Eignarhald er sameiginlega á hendi ríkisins og Kópavogsbæjar en Hrafnista annast reksturinn.

    07. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Fæðingarstyrkur og lágmarksgreiðsla fæðingarorlofs hækka um 30.000 krónur

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem felur í sér að fæðingarstyrkur námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar hækkar um 30.000 kr. næstu mánaðamót. Lágmarksgreiðsla fæðingarorlofs hækkar um sömu upphæð. Hækkanirnar koma í kjölfar frumvarps félags- og húsnæðismálaráðherra sem samþykkt var á Alþingi á mánudag og varðar fæðingar- og foreldraorlof.

    05. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði

    Fyrsta skóflustunga var í dag tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Birna Sif Atladóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási, og Grétar Aðalsteinsson, heimilismaður í Ási, tóku skóflustungu að nýja heimilinu sem mun rúma 44 manns. Í dag eru heimilismenn í Ási 111 talsins en verða 138 þegar nýja hjúkrunarheimilið verður tekið í notkun. Byggingin verður 2.680 fermetrar og heildarkostnaður um 2,8 milljarðar króna.

    05. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði

    Fyrsta skóflustunga var í dag tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Birna Sif Atladóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási, og Grétar Aðalsteinsson, heimilismaður í Ási, tóku skóflustungu að nýja heimilinu sem mun rúma 44 manns. Í dag eru heimilismenn í Ási 111 talsins en verða 138 þegar nýja hjúkrunarheimilið verður tekið í notkun. Byggingin verður 2.680 fermetrar og heildarkostnaður um 2,8 milljarðar króna.

    31. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Margrét Guðnadóttir ráðinn forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum

    Margrét Guðnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum. Miðstöðin er starfrækt undir heilbrigðisvísindastofnun Háskóla Íslands í samvinnu við Landspítala. Hún hefur það að markmiði að efla nýsköpun og þróun í þjónustu við eldra fólk, meðal annars með því að styrkja samstarf fræðimanna á sviði öldrunarfræða og safna saman á einn stað heildstæðum upplýsingum um stöðu eldra fólks á Íslandi.

    29. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Samráðsþing um landsáætlun: Eitt lífshlaup, ótal tengingar

    Eitt lífshlaup, ótal tengingar er yfirskrift opins samráðsþings um landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þingið verður haldið þann 20. febrúar 2025 kl. 13:00-16:00 á Hótel Natura í Reykjavík. Þetta er þriðja samráðsþingið sem fram fer í tengslum við landsáætlunina.

    10. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Skipulagsmál, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Nýtt og notendavænt umsóknarviðmót byggingarleyfa

    14 sveitarfélög með samtals 45% íbúða á landinu hafa tekið í notkun nýtt og notendavænt umsóknarviðmót byggingarleyfa. Reykjavíkurborg bættist nýverið í hópinn og af því tilefni bauð Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, til opins fundar í dag undir merkjunum Loksins eitt umsóknarkerfi byggingarleyfa fyrir öll sveitarfélög. Fundurinn markaði tímamót við innleiðingu verkefnisins „Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað“. Markmið þess er að stuðla að styttri afgreiðslufresti, einfaldari samskiptum og aukinni sjálfvirkni.

    10. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Starfshópur um málefni fullorðinna einhverfra skilar tillögum til ráðherra

    Starfshópur um málefni fullorðinna einhverfra hefur skilað tillögum til Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hópurinn var skipaður í júlí 2024 og var ætlað að greina umfang og samsetningu fullorðinna einhverfra á Íslandi, kortleggja þá þjónustu sem stendur þeim til boða, greina þörf fyrir aðkomu hins opinbera að þjónustu við hópinn og leggja fram tillögur að aðgerðum til úrbóta.

    09. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Tímamót: Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi – breytingarnar snerta hátt í 30.000 manns

    Í dag tóku gildi stærstu breytingar sem gerðar hafa verið á örorku- og endurhæfingarkerfinu undanfarna áratugi. Breytingarnar snerta hátt í 30.000 manns. Í nýju kerfi er litið til þess hvað fólk getur í stað þess að einblína á hvað það getur ekki. Nýja kerfið er einfaldara, greiðslur hækka, dregið er úr tekjutengingum og fólki gert auðveldara að taka þátt á vinnumarkaði kjósi það svo. Stuðningur er aukinn við fólk í endurhæfingu og áhersla lögð á að koma í veg fyrir að fólk falli milli kerfa og endi með ótímabært örorkumat. Um 95% þeirra sem hafa verið með örorkulífeyri fá hærri greiðslur í nýja kerfinu. Vegna breytinganna greiddi Tryggingastofnun í dag 1.200 milljónum kr. meira til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega en um síðustu mánaðarmót.

    09. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Bein útsending: Tímamót með nýju örorku- og endurhæfingarkerfi

    Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi í dag, 1. september, og á fundi kl. 11:00 verður farið yfir umbæturnar sem nýja kerfið hefur í för með sér. Kynningin verður send út í beinu streymi. Um er að ræða stærstu breytingar sem gerðar hafa verið á örorku- og endurhæfingarkerfinu undanfarna áratugi. Breytingarnar snerta hátt í 30.000 manns.

    07. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Nýtt samkomulag felur í sér þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ

    Samkomulag sem undirritað var í dag felur í sér þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ. Reist verður nýtt hjúkrunarheimili í bænum með 66 hjúkrunarrýmum en þar eru í dag 33 rými. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu samkomulagið í sól og blíðu utan við hjúkrunarheimilið Hamra við Langatanga. Áætlað er að nýja heimilið verði reist sem tengibygging við Hamra.

    07. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Nýtt samkomulag felur í sér þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ

    Samkomulag sem undirritað var í dag felur í sér þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ. Reist verður nýtt hjúkrunarheimili í bænum með 66 hjúkrunarrýmum en þar eru í dag 33 rými. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu samkomulagið í sól og blíðu utan við hjúkrunarheimilið Hamra við Langatanga. Áætlað er að nýja heimilið verði reist sem tengibygging við Hamra.

    07. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um hlutdeildarlán út árið 2025

    HMS hefur opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán fyrir júlímánuð. Í frétt á vef HMS kemur fram að hægt er að sækja um til og með 14. júlí nk. Sem liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar um að festa hlutdeildarlán í sessi hafa mánaðarlegar úthlutanir verið tryggðar fram að áramótum.

    04. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Samþætt heimaþjónusta við eldra fólk og stórefling dagdvalarþjónustu í Mosfellsbæ

    Samningar voru undirritaðir í dag um samþætta heimaþjónustu við íbúa Mosfellsbæjar, aukna dagdvalarþjónustu með fleiri rýmum og stofnun heima-endurhæfingarteymis fyrir fólk í heimahúsum. Með samningunum verður rekstur allrar heimaþjónustu á hendi Eirar sem rekur hjúkrunarheimili og dagdvöl í bæjarfélaginu. Dagdvölin stækkar til muna og verður þar rými fyrir 25 einstaklinga í stað níu áður. Með því að efla og samþætta heima- og dagþjálfunarþjónustu á einni hendi er þess vænst að betur megi sníða hana að einstaklingsbundnum þörfum notenda og bregðast tímanlega við breytingum á aðstæðum þeirra og heilsufari.

    27. des. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Hækkun viðmiðunarfjárhæða tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða

    Innviðaráðherra gaf nýlega út uppfærðar viðmiðunarupphæðir tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða fyrir árið 2025.

    22. des. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Inga Sæland nýr félags- og húsnæðismálaráðherra

    Inga Sæland er nýr félags- og húsnæðismálaráðherra. Hún tók í dag við lyklum í ráðuneyti sínu úr hendi Bjarna Benediktssonar sem verið hefur starfandi félags- og vinnumarkaðsráðherra frá 17. október sl. en þar áður hafði Guðmundur Ingi Guðbrandsson gegnt embættinu frá 28. nóvember 2021.

    20. des. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ásgeir Runólfsson skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu fjárlaga og rekstrar

    Ásgeir Runólfsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu fjárlaga og rekstrar í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Hann er skipaður af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, settum félags- og vinnumarkaðsráðherra við skipunina.

    18. des. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Kynningarfundur um tækifæri á styrkjum vegna vinnumarkaðsmála og félagslegrar nýsköpunar

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Rannís boða til opins kynningarfundar um félags- og vinnumálaáætlun Evrópusambandsins. Áætlunin styrkir fjölbreytt verkefni á sviði vinnumarkaðsmála og félagslegrar nýsköpunar.

    13. des. 2024Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Unnið að úrbótum úrræða og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum

    Minnisblað með fyrstu tillögum starfshóps sjö ráðuneyta um úrbætur á úrræðum og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    12. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum og fjölskyldum hinsegin fólks á Íslandi

    Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann nýverið rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum og fjölskyldum hinsegin fólks á Íslandi. Rannsóknin er hluti aðgerðaáætlunar í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025 en hún er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og eru niðurstöður hennar til þess fallnar að gefa innsýn í stöðu málaflokksins og hvaða aðgerða er þörf. ​

    04. des. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Mælti fyrir frumvarpi sem skýrir hlutverk og heimildir réttindagæslumanna og persónulegra talsmanna

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur mælt á Alþingi fyrir frumvarpi sem skýrir hlutverk og verkferla í kringum réttindagæslumenn og persónulega talsmenn fatlaðs fólks og gerir þeim betur kleift að sinna hlutverki sínu. „Með þeim breytingum sem lagðar eru fram í frumvarpinu er lögð áhersla á að vilji hins fatlaða einstaklings ráði för, eins og skýrt kemur fram í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks,“ sagði Guðmundur Ingi meðal annars í framsöguræðu sinni.

    03. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þing kvennanefndar SÞ: Jafnrétti kynjanna forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda

    Jafnrétti kynjanna er og hefur verið forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda, hvort sem er heima fyrir eða í alþjóðlegu samstarfi – þar á meðal í framboði Íslands til Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2025-2027. Þetta kom fram í ávarpi Íslands sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, flutti á þingi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi.

    03. des. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Samráðsgátt: Frumvarp birt sem felur í sér aukið samstarf og eftirlit á vinnumarkaði

    Drög að frumvarpi sem felur í sér aukið samstarf og eftirlit á vinnumarkaði hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu er meðal annars ætlað að styrkja samvinnu stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins við að sporna gegn brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði.

    26. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Þróunarverkefnið „Gott að eldast“ hefst í Dalvíkurbyggð

    Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Dalvíkurbyggð og hjúkrunarheimilið Dalbær á Dalvík hafa undirritað samning um rekstur samhæfðrar þjónustu eldri borgara í sveitarfélaginu. Samningurinn er byggður á aðgerðaáætlun stjórnvalda, "Gott að eldast", sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023.

    26. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Bjartur lífsstíll fyrir eldra fólk

    Bjarni Benediktsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Landssambandi eldri borgara 15 milljóna króna styrk til verkefnisins Bjartur lífsstíll. Bjartur lífsstíll er samstarfsverkefni Landsambands eldri borgara (LEB) og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Markmiðið er að auka lífsgæði eldra fólks um land allt í gegnum markvissa hreyfingu og auka líkur á að fólk geti búið lengur í heimahúsum. Jafnframt er samstarf við Gott að eldast aðgerðaáætlun, Heilsueflandi samfélög og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

    25. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Norrænt samstarf, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Norræn samstarfsáætlun gefin út á sviði byggða- og skipulagsmála til ársins 2030

    Norræna ráðherranefndin um sjálfbæran hagvöxt, sem skapar umgjörð um norrænt samstarf um byggða- og skipulagsmál, hefur gefið út samstarfsáætlun fyrir árin 2025-2030.

    22. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Stuðningur við Batahús

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Bati góðgerðarfélag hafa gert með sér samstarfssamning um áframhaldandi stuðning við Batahús, áfangaheimili og stuðningsúrræði fyrir einstaklinga, karla og konur, sem hafa verið í réttarvörslu og þarfnast stuðnings við að verða virkir þátttakendur í samfélaginu á ný.

    22. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra úthlutar styrkjum til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

    Bjarni Benediktsson félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til sex verkefna á sviði jafnréttismála. Heildarfjárhæð styrkjanna er tíu milljónir króna.

    21. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, NPA, Fatlað fólk

    Allar umsóknir frá sveitarfélögum og þjónustusvæðum um NPA árið 2024 samþykktar

    Allar umsóknir frá sveitarfélögum og þjónustusvæðum um framlag til gildandi samninga um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) á árinu 2024 hafa verið samþykktar af hálfu ríkissjóðs. Alls var sótt um framlag vegna 123 samninga, sem er aukning um 26 samninga frá síðasta ári.

    19. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Grindavík, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Sértækur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur um þrjá mánuði

    Alþingi samþykkti í gær lagafrumvarp sem velferðarnefnd mælti fyrir um að framlengja því úrræði að veita Grindvíkingum sértækan húsnæðisstuðning.

    13. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar er komin út

    Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2024 er komin út. Skýrslan skiptist í fimm meginkafla sem fjalla um efnahagsmál, vinnumarkað, laun og launaþróun sem flokkað er eftir mörkuðum og heildarsamtökum launafólks, kjarasamninga gerða í yfirstandandi samningalotu, auk sérstakrar umfjöllunar um heildarsamtök launafólks eftir mörkuðum.

    13. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Áfram stutt við verkefnið Sjúktspjall

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Stígamót hafa gert með sér samstarfssamning um áframhaldandi stuðning við verkefnið Sjúktspjall. Bjarni Benediktsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Drífa Snædal, talskona Stígamóta, undirrituðu samninginn í dag. Samningurinn felur í sér að ráðuneytið styrki verkefnið um 12 milljónir króna. Stutt hefur verið við verkefnið síðastliðin þrjú ár.

    09. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Fjárlög, Innflytjendur, Málefni eldra fólks, Almannatryggingar og lífeyrir

    Breytingar á örorkulífeyriskerfinu og hækkun á almennu frítekjumarki ellilífeyris

    Nýtt örorkulífeyriskerfi tekur gildi þann 1. september 2025. Kostnaður vegna breytinganna er á ársgrundvelli 18,1 milljarður króna en 4,4 milljarðar koma inn árið 2025 samkvæmt frumvarpi til fjárlaga sem birt var í gær. Aukin fjárframlög til örorkulífeyriskerfisins eru að mestu til komin vegna hærri greiðslna til örorkulífeyrisþega en um 95% þeirra munu fá hærri greiðslur í nýja kerfinu.

    09. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Samgöngur, Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjárlög, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Fjárlög 2025: Áhersla á húsnæðisuppbyggingu og umhverfisvænni samgöngur

    Framlög á fjárlögum 2025 til verkefna á málefnasviðum innviðaráðuneytisins nema 127,9 milljörðum króna og aukast um 14% frá fjárlögum 2024.

    06. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson ávarpaði þing aðildarríkja um samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, ávarpaði nú rétt í þessu þing aðildarríkja um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, COSP-17. Þingið hófst í dag í New York.

    04. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Mælti fyrir frumvarpi sem felur í sér aukið samstarf og eftirlit á vinnumarkaði

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi á Alþingi sem felur í sér aukið samstarf og eftirlit á vinnumarkaði. Frumvarpinu er meðal annars ætlað að styrkja samvinnu stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins við að sporna gegn brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði. Enn fremur er frumvarpinu ætlað að styrkja eftirlit og samstarf þeirra aðila sem fara með opinbert eftirlit á vinnumarkaði.

    03. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sett í dag

    Árlegt þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna var sett í New York í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sækir þingið fyrir hönd Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Hann flytur ávarp Íslands á þinginu.

    03. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tillögur að auknum náms- og starfstækifærum fyrir fatlað fólk

    Starfshópur um aukin náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk hefur skilað tillögum sínum til ráðherra. Hópnum var ætlað að greina núverandi starfs- og menntunartækifæri fatlaðs fólks með tilliti til þess hvað þurfi að bæta, auk þess að leggja fram tillögur að aðgerðum.

    31. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa

    Víðtæk samþætting endurhæfingar formgerð með tímamótasamningi

    Samningur sem kveður á um víðtækt samstarf á sviði endurhæfingar og samhæfingu þjónustunnar þvert á kerfi var undirritaður í dag. Að samningnum koma 46 aðilar á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu, sem skuldbinda sig til að eiga með sér samstarf og samvinnu um endurhæfingu einstaklinga sem á þurfa að halda. Samningurinn tekur gildi 1. september 2025 og er mikilvægur liður í innleiðingu viðamikilla breytinga á örorkulífeyriskerfinu samkvæmt lögum sem öðlast gildi á sama tíma.

    30. okt. 2024Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Stór skref stigin í málefnum hinsegin fólks

    Stór skref hafa verið stigin í málefnum hinsegin fólks á fyrri helmingi gildistíma þingsályktunar um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks frá árinu 2022.

    22. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Umsækjendur um stöðu skrifstofustjóra skrifstofu fjárlaga og rekstrar

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsti lausa stöðu skrifstofustjóra skrifstofu fjárlaga og rekstrar 3. september síðastliðinn

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband