Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 552
    Raða eftir:
    19. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing landsins undirrituð

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og innviðaráðherra staðfestu í dag samninga fjarskiptasjóðs við 25 sveitarfélög um að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Lengi hefur ríkt óvissa um hvort, og þá hvenær, mörg þúsund lögheimili í þéttbýli um land allt munu eiga kost á háhraðanetsambandi, sem er mikilvægt öryggismál og undirstaða nútíma búsetugæða. Með þessum samningum er sú óvissa ekki lengur fyrir hendi.

    17. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Leiðarvísir um árangurstengda fjármögnun háskóla

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt greinargerð um nýja árangurstengda fjármögnun háskóla, sem tók gildi í sumar. Um er að ræða stærstu breytingu á háskólaumhverfinu í áratugi.

    16. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu

    Eftir fimm ára hlé hafa KLAK - Icelandic Startups og Ferðaklasinn ákveðið að endurvekja Startup Tourism, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu. Með því að endurvekja hraðalinn vonast samstarfsaðilar til að skapa ný tækifæri innan íslenskrar ferðaþjónustu.

    15. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Starfshópur um bætt öryggi í ferðaþjónustu

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur óskað eftir tilnefningum í starfshóp um öryggismál í ferðaþjónustu. Er það liður í eftirfylgni með aðgerðaáætlun (E.7 ) með ferðamálastefnu til 2030 sem samþykkt var í júní 2024 og unnin var í breiðri samvinnu fjölda hagaðila. Starfshópurinn hefur það að meginhlutverki að koma með tillögur að úrbótum á sviði öryggismála í ferðaþjónustu, tryggja samráð á milli hlutaðeigandi ráðuneyta, stofnana og atvinnugreinarinnar, og stuðla að framgangi verkefna sem hafa það að markmiði að bæta öryggi ferðamanna þvert á hið opinbera og atvinnulíf.

    13. sep. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Fjarskipti, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fjárlög, Háskólar, Iðnaður, Netöryggi, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fjárlög 2025: Verðmætasköpun á skilvirkum og ábyrgum grunni

    Styrkum stoðum er rennt undir þekkingarsamfélag framtíðar í fjárlagafrumvarpi ársins 2025. Háskólar landsins eru efldir með nýrri árangurstengdri fjármögnun um leið og aðgangshindrunum er rutt úr vegi, sem hefur þegar skilað sér í fjölgun nemenda, auk þess sem fjárfesting í stuðningsumhverfi nýsköpunar er fest í sessi.

    13. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland komið í hóp bestu ríkja heims í netöryggismálum

    Ísland er hástökkvari á nýjum lista Alþjóðafjarskiptasambandsins.

    12. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fyrsta úthlutun netöryggisstyrks Eyvarar

    Stjórn Eyvarar hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 13 verkefna að ganga til samninga um nýjan netöryggisstyrk. Þetta er í fyrsta sinn sem Eyvör, hæfnisetur fræðslu, menntunar og rannsókna á netöryggi, úthlutar slíkum styrkjum eins og greint var frá í ágúst síðastliðnum.

    10. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar: Óskað eftir tillögum

    Ráðgjafanefnd dags íslenskrar tungu gerir tillögu til menningar- og viðskiptaráðherra um verðlaunahafa og rökstyður val sitt. Í ár er sú nýbreytni á að almenningur getur sent in tillögu til ráðgjafanefndar hér.

    10. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hakkarar Íslands keppa í beinu streymi

    Lið Íslands tekur nú þátt í Netöryggiskeppni Evrópu (e. European Cyber Security Challenge) sem stendur yfir í Tórínó á Ítalíu dagana 8.-11. október. Lið Íslands er skipað þeim keppendum sem náðu bestum árangri í Gagnaglímunni, Netöryggiskeppni Íslands, sem haldin var 25. maí síðastliðinn fyrir ungmenni á aldrinum 14 til 25 ára.

    09. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Tímabundin vistaskipti fangelsismálastjóra

    Páll E. Winkel tekur tímabundið til starfa hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu.

    09. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fundaði með aðstoðarframkvæmdastjóra UN Women: Jafnréttismál eru stórt efnahagsmál

    „Jafnréttisbaráttan hefur gengið mun betur hérlendis en víða annars staðar en það er eitt miðla okkar velgengni en annað að gera sér grein fyrir því að fullnaðarsigur er ekki í höfn. Við höfum verk að vinna á ýmsum sviðum og þegar jafnrétti er náð þarf að viðhalda því samhliða hraðri þróun samfélagsins,“ segir Lilja Dögg og bætir við að Ísland geti vel verið í farabroddi í jafnréttismálum áfram ef vel er haldið á þeim verkfærum sem þjóðin býr yfir.“

    05. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íslenska til framtíðar: Fundað með Microsoft og AI 2 í Seattle

    „Við viljum festa íslenskuna í sessi og halda áfram að koma henni að í lausnum erlendra tæknifyrirtækja sem Íslendingar nota í sínu daglega lífi. Samhliða erum við kanna áhuga á alþjóðlegum samstarfsvettvangi fyrir minni málsamfélög og stór tæknifyrirtæki, sem Ísland myndi leiða," segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    28. ágú. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Háskólar, Iðnaður, Nýsköpun, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skrifstofa ráðherra óháð staðsetningu haustið 2024

    Í haust mun háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, m.a. starfa frá Hveragerði, Rangárþingi ytra, Stykkishólmi og Vopnafirði. Frá upphafi hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu og eru störf ráðherra þar engin undantekning. Ráðherra staðsetur skrifstofu sína reglulega víðs vegar um landið, enda eiga málefni ráðuneytisins við um landið allt. Á hverri starfsstöð býður ráðherra öll áhugasöm velkomin í opna viðtalstíma þar sem gefst tækifæri til að eiga stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði ráðherra.

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í Sviðslistasjóð

    Alþingi veitir árlega fé í fjárlögum til stuðnings sviðslistasjóði með það að markmiði að efla sviðslistir og búa þeim hagstæð skilyrði. Sviðslistaráð auglýsir eftir styrkumsóknum atvinnusviðslistahópa í Sviðslistasjóð. Umsóknarfrestur er til 1. október 2024 klukkan 15:00.

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Frábær aðsókn að nýju grunnnámi í blaðamennsku við Háskóla Íslands

    Tímamót urðu í Háskóla Íslands fyrr í vikunni, þegar kenndur var fyrsti tíminn í nýju BA-námi í blaðamennsku við stjórnmálafræðideild skólans. Fleiri umsóknir bárust um námið en unnt var að samþykkja og eru nú um tuttugu nemendur skráðir. Nemendur munu meðal annars sinna starfsnámi við fjölmiðla landsins á námstímanum, ásamt því að sitja námskeið sem undirbúa þá fyrir störf við fjölmiðla framtíðar.

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Háskólar, Menntamál

    Opinberir háskólar fái heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hyggst leggja fram frumvarp á haustþingi um breytingar á lögum um opinbera háskóla sem fela í sér heimild til skólanna til að innheimta skólagjöld fyrir nemendur sem koma frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins (EES). Samhliða þessu verða teknir upp námsstyrkir fyrir afburðanemendur frá þessum löndum í þeim tilgangi að efnilegir nemendur hafi áfram tækifæri til náms á Íslandi, óháð efnahag.

    22. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Nýr hornsteinn lagður að Sögu

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, lögðu í gær nýjan hornstein að Sögu við Hagatorg. Endurbætur á húsinu eru langt komnar og má reikna með að starfsfólk og nemendur háskólans flytji inn í húsið síðar í haust.

    22. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Netöryggi eflt með styrkjum Eyvarar NCC-IS

    Ráðherra netöryggismála mun í haust veita netöryggisstyrki í gegnum Eyvöru NCC-IS sem er hæfnisetur fræðslu, menntunar og rannsókna á netöryggi. Markmið samstarfsins er að efla netöryggisgetu á landsvísu, styðja við íslenskt netöryggissamfélag og að tryggja öflugt Evrópusamstarf á sviði netöryggismála.

    21. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing í þéttbýli og háhraðafarnet á stofnvegum tryggt – hlutverki fjarskiptasjóðs lokið og hann lagður niður

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur kynnt ríkisstjórn ákvörðun sína um að framlengja ekki líftíma fjarskiptasjóðs. Að öllu óbreyttu munu lög um fjarskiptasjóð því falla brott við lok þessa árs og hættir starfsemi sjóðsins frá sama tíma.

    20. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tugir listamanna ræddu listamannalaun á opnum fundi

    Tugir listamanna og forsvarsmenn bandalaga þeirra mættu og sköpuðust líflegar umræður um kosti og galla listamannalauna sem ráðherra segist taka fagnandi. „Það komu margar góða hugmyndir fram, fólk var málefnalegt og hvatti kollega sína áfram með lófataki,“ segir ráðherra sem segir það mikið gleðiefni hve margir mættu og tjáðu sig.

    20. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Gervigreind

    Beita gervigreind gegn gullhúðun

    Háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðuneytið hóf vinnu í sumar, með nokkrum aðilum á sviði gervigreindar, við að greina hvort gullhúðun hafi átt sér stað á EES-gerðum á málefnasviði ráðuneytisins. Verkefnið er eitt af verkefnum ráðuneytisins í aðgerðaáætlun um gervigreind sem unnið hefur verið að á undanförnum mánuðum. Með notkun gervigreindar er hægt að greina gullhúðun á gildandi löggjöf án þess að kosta til þess fjölda vinnustunda sérfræðinga ráðuneytisins. Þá kann notkun gervigreindar að greina mynstur og tengsl innan lagabálkanna sem gætu annars farið fram hjá hefðbundinni greiningu.

    18. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Seinni úthlutun úr Tónlistarsjóði: Mikill fjöldi frambærilegra umsókna

    „Það er mikið fagnaðarefni að sjá hversu mörg spennandi verkefni hlutu styrk og ekki síður er það gleðiefni að heyra frá úthlutunarnefndum hve mörg og efnileg verkefni sóttu um. Sú staðreynd að það sé erfitt að velja hver hljóti styrk er mikilvæg vísbending um gróskuna í íslensku tónlistarlífi. Tónlistarmiðstöð er frábær umgjörð sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og tækifæri sem ég hvet sem flesta til að kynna sér. Þar er til dæmis boðið upp á ráðgjöf við styrkumsóknir og þangað má sækja innblástur og fagþekkingu frá einvala sérfræðingum,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Menningar- og viðskiptaráðherra við tilefnið.

    16. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fléttustyrkjum úthlutað í þriðja sinn: Tæplega 100 m.kr. til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu

    Tíu íslensk nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðlar hljóta alls 12 styrki úr Fléttunni í ár. Þetta er í þriðja sinn sem styrkir eru veittir úr Fléttunni, en tilgangur styrkjanna er að styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðiskerfinu. Í ár verður um 96 milljónum króna dreift til þessara fyrirtækja í þeim tilgangi að innleiða nýja tækni og lausnir í heilbrigðisþjónustu.

    15. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir um listamannalaun: Ráðherra býður til kynningarfundar 19. ágúst

    Á liðnu vorþingi voru samþykktar breytingar á lögum um listamannalaun í því skyni að styrkja faglega starfslaunasjóði listamanna og tryggja betur afkomu þeirra sem starfa í listum eða við skapandi greinar. Tveimur nýjum launasjóðum hefur verið bætt við; launasjóði kvikmyndahöfunda og þverfaglegum sjóði fyrir 67 ára og eldri. Einnig mun úthlutunarmánuðum fjölga í hverri grein. Að þessu tilefni boðar menningar- og viðskiptaráðuneytið til umræðu um þessar breytingar sem og áherslur og stefnu listamannalauna til næstu þriggja ára.

    14. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing allra lögheimila í þéttbýli – svarfrestur framlengdur

    Svarfrestur vegna tilboðs til sveitarfélaga um fjárstuðning vegna allra ótengdra lögheimila á þéttbýlisstöðum og í byggðakjörnum, sem eigin áform fjarskiptafyrirtækja og opinberra aðila ná ekki til, hefur verið framlengdur til kl. 12:00 föstudaginn 23. ágúst nk.

    11. ágú. 2024Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Dagur íslenskrar tungu: Hátíðardagskrá í Eddu 16. nóvember

    Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 16. nóvember í 29. sinn. Dagskráin er einstaklega hátíðleg í ár þar sem glæsileg handritasýning verður opnuð í Eddu á degi íslenskunnar og í kjölfarið verða verðlaun Jónasar Hallgrímssonar veitt.

    11. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Samantekt ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli

    Á fundi ríkisstjórnar 27. ágúst sl. var ákveðið að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og dómsmálaráðuneytis til að afla upplýsinga um banaslys sem varð í skipulagðri ferð í jöklaferð á Breiðamerkurjökli sunnudaginn 25. ágúst. sl. og skoða öryggi í íshellaferðum almennt.

    11. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um netöryggi skilað árangri

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur lagt mat á stöðu aðgerða í aðgerðaáætlun stjórnvalda í netöryggi sem kynnt var fyrir tveimur árum síðan. Nú þegar er rúmum þriðjungi aðgerða lokið og fjöldi annarra aðgerða vel á veg komin.

    10. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tímamótasamningur Íslands og Danmerkur vegna íslensku handritanna

    Samkomulag Árnastofnunar í Reykjavík og Árnasafns í Kaupmannahöfn um að liðka fyrir lánum á handritum milli landanna. Þetta þýðir að fleiri íslensk handrit munu koma til Íslands á komandi árum til rannsókna og sýninga, þar á meðal handrit sem hafa ekki komið til Íslands í rúm 300 ár.

    10. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hvati styrktarsjóður: Tilkynnt verður um úthlutun í nóvember

    Alls bárust 64 umsóknir og er úrvinnsla umsókna hafin innan ráðuneytisins. Tilkynnt verður um úthlutun í nóvember en öllum umsóknum verður svarað.

    06. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    RÚV Orð styður innflytjendur í íslenskunámi

    Íslensk stjórnvöld halda áfram að auka aðgengi að fjölbreyttu og einstaklingsmiðuðu íslenskunámi sem stunda má hvar og hvenær sem er. RÚV Orð er nýr vefur fyrir sjálfsnám í íslensku með notkun sjónvarpsefnis frá RÚV. Vonir standa til þess að persónuleg nálgun hvetji innflytjendur til að læra íslensku á sinn hátt og út frá sínu áhugasviði.

    04. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Netöryggiskeppni Íslands haldin í fimmta sinn

    Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglíman, er nú haldin í fimmta sinn sem hluti af samsvarandi árlegum netöryggiskeppnum annarra ríkja Evrópu. Keppnin hefur heppnast vel undanfarin ár og stefnt er að því að senda íslenskt lið í Netöryggiskeppni Evrópu (European Cyber Security Challenge, ECSC) haldin verður í Tórínó á Ítalíu í október.

    03. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kröftug ritmenning og fjölbreytt útgáfustarfsemi: drög bókmenntastefnu í opið samráð

    Kynntar eru til sögunnar nýjungar sem mikilvægt er að fá viðbrögð við, frá hagsmunaaðilum og áhugafólki um bókmenntir.

    03. ágú. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Iðnaður, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áslaug Arna ávarpaði Iðnþing

    Snjöll framtíð í orkumálum, nauðsyn þess að umbylta úreltum kerfum og nýting gervigreindar til að bæta þjónustu hins opinbera. Þetta er meðal þess sem kom fram í ávarpi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær.

    21. júl. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opnað fyrir umsóknir úr Hvata 2. september nk.

    Hvati er sjóður sem útdeilir styrkjum á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra. Málefnasvið ráðuneytisins ná meðal annars yfir menningarmál, skapandi greinar, málefni íslenskrar tungu, neytenda- og samkeppnismál, fjölmiðla, almenn viðskiptamál og ferðaþjónustu.

    16. júl. 2024Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skýrsla Eurydice um viðurkenningu á óformlegu námi fyrir nám á háskólastigi

    Mennta- og barnamálaráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið vekja athygli á nýrri skýrslu Eurydice um viðurkenningu á óformlegu námi fyrir nám á háskólastigi. Evrópuþjóðir fara ólíkar leiðir þegar kemur að því að meta fyrra nám nemenda á framhaldsskólastigi inn á háskólastig, sérstaklega þeirra sem farið hafa óhefðbundnar námsleiðir. Tilgangurinn er m.a. að auka möguleika ungs fólks á vinnumarkaði. Í skýrslunni er skoðað hvort og að hve miklu leyti Evrópuþjóðir viðurkenna og sannreyna nám sem aflað er með óformlegum hætti eða utan framhaldsskóla.

    11. júl. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Gervigreind, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fyrsta aðgerðaáætlun Íslands um gervigreind kynnt

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag fyrstu aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda um gervigreind til ársins 2026. Þar eru tíundaðar þær aðgerðir sem stuðla munu að því að Ísland, í krafti smæðar sinnar, verði leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar og skapar tækifæri, velmegun og framfarir fyrir alla landsmenn.

    10. júl. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Undirrituðu sögulegan samning

    „Samningurinn markar söguleg tímamót fyrir menningu og skapandi greinar á Íslandi. Markmið samningsins er að miðlun á hagtölum um menningu og skapandi greinar verði hluti af reglubundinni starfsemi Hagstofu Íslands. Það er staðfesting á auknu vægi menningar og skapandi greina í íslensku efnahagslífi. Munu upplýsingarnar varpa ljósi á þróun atvinnuvegarins og gagnast stjórnvöldum við ákvarðanatöku og stefnumótun en ekki síður atvinnuveginum sjálfum,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    10. júl. 2024Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Húsfyllir til heiðurs skapandi greinum: Menning og listir auðga hagkerfið kröftuglega

    Fullt var út úr dyrum á Tjarnarbíói þegar Ágúst Ólafur Ágústsson hagfræðingur kynnti skýrslu sem greinir stöðu menningar og skapandi greina hérlendis. „Tilgangur með þessari vinnu var að fá samanburðarhæfar tölur og skilgreina tækifæri,“ segir Ágúst Ólafur og bendir á að beint framlag til menningar og skapandi greina hafi numið 3,5% af landsframleiðslu árið 2023 eða 150 milljörðum sem er litlu minna en framlag fiskveiða og fiskeldis til þjóðarbúsins sama ár eða 4%.

    06. júl. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Listahátíð Reykjavíkur: Ekki missa af listinni!

    Séu yngri listaunnendur með í för er vert að benda á að á vefsíðu Listahátíðarinnar er hægt að sía leitarniðurstöður eftir áhugasviði og til dæmis skoða sérstaklega fjölskylduvæna viðburði og má sem dæmi nefna sviðsverkið Scoooootch! sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Í þessari bráðfjörugu og kostulegu sýningu sjá gestir vaska kvennarokksveit skapa heilan heim úr harla óvenjulegum efnivið - límbandi! Sýningin hvetur börn jafnt sem fullorðna til að koma auga á og gleðjast yfir hinu óvenjulega í því allra hversdagslegasta.

    05. júl. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Netöryggi, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýtt netöryggisráð skipað

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað nýtt netöryggisráð. Hlutverk netöryggisráðs er að fylgja eftir framkvæmd stefnu stjórnvalda á sviði net- og upplýsingaöryggis.

    28. jún. 2024Netöryggi, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland með í áætlun um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti

    Markmið áætlunarinnar er að tryggja til frambúðar aðgengi að hraðvirkum, öruggum og hagkvæmum fjarskiptum um gervihnetti á heimsvísu.​

    28. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Afkastamikill þingvetur að baki – 11 þingmál samþykkt

    Þinglok urðu á 154. löggjafarþingi Alþingis um síðustu helgi og þar með lauk viðburðaríkum þingvetri þar sem fjölmörg mál komu til kasta löggjafans. Átta frumvörp Lilju Daggar Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra urðu að lögum á Alþingi þingveturinn 2023-2024 og þrjár tillögur til þingsályktunar voru samþykktar: Málstefna íslensks táknmáls, aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu og fyrsta heildstæða ferðamálastefna landsins.

    28. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar

    Samstarf háskóla: Opið fyrir umsóknir

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Samstarf háskóla árið 2024.

    28. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Faggildingarsvið Hugverkastofunnar – Jákvæð niðurstaða jafningjamats

    Á lokafundi með starfsfólki sviðsins föstudaginn 21. júní sem fulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins var viðstaddur, tilkynntu matsmennirnir þá niðurstöðu sína að mæla með áframhaldandi aðild faggildingarsviðsins að samningi EA um gagnkvæma viðurkenningu, enda uppfylli sviðið allar grundvallarkröfur EA hvað varðar faggildingu á skoðunarstofum.

    26. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun

    Fækkun sjóða hafin með sameiningu NSA og Kríu

    Fyrsta skrefið í átt að fækkun sjóða HVIN hefur verið stigið.

    25. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðherra endurnýjar skipun þjóðleikhússtjóra

    Skipunartími sitjandi þjóðleikhússtjóra, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, rennur út í lok árs 2024. Hefur menningar- og viðskiptaráðherra ákveðið að undangengnu frammistöðumati á vegum ráðuneytisins og í samráði við þjóðleikhúsráð, að nýta endurnýjunarheimild 4. gr. laga um sviðslistir og framlengja skipunartíma þjóðleikhússtjóra. Samkvæmt sviðslistalögum er heimilt að endurnýja skipun þjóðleikhússtjóra einu sinni til fimm ára. Við þinglega meðferð frumvarpsins um sviðslistalög var samþykkt að ekki þyrfti að auglýsa í lok hvers skipunartímabils ef vilji væri til að endurnýja skipun þjóðleikhússtjóra, að undangengnu frammistöðumati.

    25. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Ábyrgðarmenn heyra sögunni til

    Ábyrgðarmannakerfi námslána hefur verið fellt úr gildi að fullu og skilyrði fyrir námsstyrk verið rýmkuð.​

    22. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fjölgun listamannalauna samþykkt: Fjárfest í menningarlegri framtíð okkar allra

    Ég er ákaflega glöð með að samstarfsfólk mitt í þinginu hafi séð tækifærin sem felast í því að fjárfesta í listafólkinu okkar. Það gleymist oft í þessari umræðu að listir auðga ekki bara andann heldur eru þær líka tekjulind. Dæmi er um að verkefni sem hlaut listamannalaun í sex mánuði hafi leitt til meira en þriggja ársverka og 7,5 milljóna í skatttekjur. Það er því ekki tilviljun að menning og viðskipti búa í sama ráðuneytinu, það er einmitt af því að þessir málaflokkar eiga svo fallega saman,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

    18. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar

    Stóraukin aðsókn í háskóla

    Umsóknum fjölgaði í flesta háskóla landsins milli ára auk þess sem merkja má aukna aðsókn í heilbrigðis-, kennslu- og vísindagreinar.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband