Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 435
    Raða eftir:
    19. ágú. 2024Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Gjaldfrjáls námsgögn og tvöfalt meira fjármagn til námsgagnagerðar

    Fjárframlag til námsgagnagerðar tvöfaldast og námsgögn verða gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema fram að 18 ára aldri. Aðgerðirnar eru liður í heildarendurskoðun á útgáfu námsgagna og menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Nýtt frumvarp um námsgögn hefur verið samþykkt af ríkisstjórn til fyrirlagningar á Alþingi.

    16. ágú. 2024Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Matsferill – safn matstækja til að meta námsárangur grunnskólabarna – frumvarp til umsagnar

    Matsferill er safn matstækja til að meta námsárangur grunnskólabarna sem koma mun í stað samræmdra prófa. Frumvarp um breytingu á lögum um grunnskóla um þróun og innleiðingu á Matsferli hefur verið lagt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Skyldubundið samræmt námsmat í íslensku og stærðfræði kemur til innleiðingar og framkvæmda í öllum grunnskólum skólaárið 2025–2026.

    15. ágú. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Formleg opnun fjölskylduheimilis á Akureyri

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, opnuðu í dag með formlegum hætti fjölskylduheimilið Sólberg í Kotárgerði á Akureyri. Heimilið hefur nú þegar tekið til starfa en þar fer fram greiningar- og þjálfunarvistun fyrir börn og foreldra þeirra.

    14. ágú. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umsóknir um tvö embætti skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu

    Fjórtán umsækjendur eru um tvö embætti skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu sem voru auglýst laus til umsókna í júlí.

    13. ágú. 2024Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Frigg – nýr miðlægur gagnagrunnur nemendaupplýsinga

    Frigg er nýr gagnagrunnur utan um skráningu upplýsinga um íslenska nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskóla sem nú er í smíðum. Upplýsingarnar hafa fram til þessa verið vistaðar hjá mismunandi aðilum í mismunandi kerfum en verða með Frigg á einum miðlægum stað þvert á skóla, skólastig og landsvæði.

    10. ágú. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Innviðaráðuneytið

    Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2024

    Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna voru kynntar á alþjóðlegum degi kennara 5. október. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og ungmennum.

    09. ágú. 2024Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Orð eru ævintýri – nýtt spil, myndaspjöld og vefur

    Í dag er alþjóðlegur dagur læsis. Orð eru ævintýri er verkfæri til eflingar læsis meðal leikskólabarna. Í fyrra var bókin Orð eru ævintýri gefin út. Hún var gefin börnum fæddum 2018, 2019 og 2020 og nú öllum börnum fæddum 2021. Í ár bætist við glænýtt spil, myndaspjöld og vefurinn Orðatorg.

    06. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    RÚV Orð styður innflytjendur í íslenskunámi

    Íslensk stjórnvöld halda áfram að auka aðgengi að fjölbreyttu og einstaklingsmiðuðu íslenskunámi sem stunda má hvar og hvenær sem er. RÚV Orð er nýr vefur fyrir sjálfsnám í íslensku með notkun sjónvarpsefnis frá RÚV. Vonir standa til þess að persónuleg nálgun hvetji innflytjendur til að læra íslensku á sinn hátt og út frá sínu áhugasviði.

    05. ágú. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Guðríður Hrund Helgadóttir skipuð skólameistari MK

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Guðríði Hrund Helgadóttur í embætti skólameistara Menntaskólans í Kópavogi til fimm ára frá 1. ágúst 2024.

    05. ágú. 2024Rit og skýrslur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Evrópusamvinna, Menntamál

    Skýrslur Eurydice

    maí 2024 / Mennta- og barnamálaráðuneytið Skýrslur Eurydice Eurydice-samstarfið er samstarf evrópskra aðila á sviði menntamála. Tilgangur samstarfsins er að veita stefnumótandi aðilum og öllum þeim sem hafa áhuga á menntamálum, áreiðanlegar og samanburðarhæfar upplýsingar um menntakerfi í Evrópu

    05. ágú. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skýrsla Eurydice um nám til sjálfbærni í evrópskum skólum

    Mennta- og barnamálaráðuneytið vekur athygli á útgáfu Eurydice-skýrslunnar: Nám til sjálfbærni í evrópskum skólum. Sjálfbærni er hluti af skyldunámi allra evrópskra skólakerfa. Þjóðirnar nálgast þó viðfangsefnið á afar fjölbreyttan hátt. Sumar þjóðir kenna um sjálfbærni, aðrar til sjálfbærni. Í sumum skólakerfum er sjálfbærni skilgreind sem sérstök grunnstoð þvert á faggreinar. Dæmi um slíka nálgun má finna í íslenska skólakerfinu en þar er sjálfbærni skilgreind meðal sex grunnþátta menntunar í aðalnámskrá, á öllum skólastigum.

    03. ágú. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkeppni um hönnun og byggingu Þjóðarhallar

    Þjóðarhöll ehf., fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, býður fyrirtækjum og teymum að sækja um þátttöku í forvali fyrir samkeppnisútboð fyrir hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar fyrir innanhúsíþróttir í Laugardal.

    31. júl. 2024Rit og skýrslur, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ytra mat á framhaldsskólum

    júlí 2024 / Mennta- og barnamálaráðuneytið Ytra mat á framhaldsskólum Ytra mat á leik-, grunn- og framhaldsskólum felur í sér úttekt á gæðum skólastarfsins. Markmiðið er að veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks skóla, viðtökuskóla, foreldra og nemenda

    30. júl. 2024Rit og skýrslur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál

    Ytra mat á grunnskólum

    Ytra mat á leik-, grunn- og framhaldsskólum felur í sér úttekt á gæðum skólastarfsins. Markmiðið er að veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks skóla, viðtökuskóla, foreldra og nemenda. Einnig að tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár leik, grunn- og framhaldsskóla. Ytra mat á að auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum og tryggja að réttindi barna/nemenda séu virt og að þau fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á.

    18. júl. 2024Rit og skýrslur, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ytra mat á leikskólum

    Ytra mat á leik-, grunn- og framhaldsskólum felur í sér úttekt á gæðum skólastarfsins. Markmiðið er að veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks skóla, viðtökuskóla, foreldra og nemenda. Einnig að tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár leik, grunn- og framhaldsskóla. Ytra mat á að auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum og tryggja að réttindi barna/nemenda séu virt og að þau fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á.

    16. júl. 2024Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skýrsla Eurydice um viðurkenningu á óformlegu námi fyrir nám á háskólastigi

    Mennta- og barnamálaráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið vekja athygli á nýrri skýrslu Eurydice um viðurkenningu á óformlegu námi fyrir nám á háskólastigi. Evrópuþjóðir fara ólíkar leiðir þegar kemur að því að meta fyrra nám nemenda á framhaldsskólastigi inn á háskólastig, sérstaklega þeirra sem farið hafa óhefðbundnar námsleiðir. Tilgangurinn er m.a. að auka möguleika ungs fólks á vinnumarkaði. Í skýrslunni er skoðað hvort og að hve miklu leyti Evrópuþjóðir viðurkenna og sannreyna nám sem aflað er með óformlegum hætti eða utan framhaldsskóla.

    11. júl. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Helgi Grímsson til liðs við mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur með samkomulagi við Reykjavíkurborg fengið tímabundið til liðs við sig Helga Grímsson, sem gegnt hefur starfi sviðstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavikur sl. ár.

    11. júl. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Innviðaráðuneytið

    Íslensku menntaverðlaunin 2024

    Íslensku menntaverðlaunin 2024 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 5. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.

    27. jún. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Þróunarsjóði námsgagna 2024

    Þróunarsjóður námsgagna hefur úthlutað 76,4 m.kr. til 37 verkefna. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra afhenti styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu í dag.

    27. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Nýr tækniskóli rís í Hafnarfirði

    Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029.

    26. jún. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skilnaðarráðgjöf fyrir fjölskyldur á Íslandi

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag samning um nýjan stafrænan vettvang á vegum Samvinnu eftir skilnað (SES) með efni fyrir börn frá 3 til 17 ára. Ísland er fyrsta landið til að bjóða upp á þjónustuna á landsvísu en henni er ætlað að hjálpa börnum að takast á við afleiðingar skilnaðar eða sambúðarslita. Samhliða var samið um áframhaldandi þjónustu Samvinnu eftir skilnað sem fjölskyldur hér á landi nýta í auknum mæli.

    25. jún. 2024Dómsmálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kynntu aðgerðir stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna á blaðamannafundi í Hannesarholti í dag. Með fjórtán aðgerðum er ætlunin að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi.

    24. jún. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Öllum tryggt pláss í framhaldsskólum

    Alls bárust 4.677 umsóknir um pláss í framhaldsskólum landsins haustið 2024 en innritun er nú lokið. Allir nýnemar úr grunnskóla sem sóttu um hafa fengið inngöngu. Þannig var hægt að samþykkja allar umsóknir í verknám en á undanförnum árum hefur þurft að vísa stórum hluta frá vegna skorts á aðstöðu og kennurum.

    18. jún. 2024Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Niðurstöður PISA 2022 – Skapandi hugsun

    Hæfni 15 ára nemenda á Íslandi í skapandi hugsun var undir meðaltali OECD og var frammistaða drengja lakari en stúlkna. Þetta er meðal niðurstaðna úr könnun PISA á skapandi hugsun sem birtar voru í dag. Um er að ræða nýjan valkvæðan hluta PISA-könnunarinnar 2022 sem Ísland tók þátt í ásamt 63 öðrum þjóðum.

    14. jún. 2024Barnaréttur, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vinnustofa um gerð alþjóðastaðals um Barnahús

    Að frumkvæði mennta- og barnamálaráðuneytisins hafa alþjóðlegu staðlasamtökin ISO (e. International Standardization Organization) nú samþykkt að stofna til alþjóðlegrar vinnustofu á Íslandi í október til að staðla uppsetningu, rekstur og virkni Barnahúss á alþjóðavísu.

    13. jún. 2024Evrópusamvinna, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þátttaka Íslands í Erasmus+ og European Solidarity Corps áhrifarík fyrir íslenskt samfélag

    Ný úttekt á árangri Erasmus+ og European Solidarity Corps (ESC) á Íslandi sýnir fram á jákvæð áhrif áætlananna á íslenskt menntakerfi og æskulýðsstarf. Umsóknarferlið mætti einfalda en þjónusta Landskrifstofu veitir umsækjendum og styrkhöfum mikilvægan stuðning.

    06. jún. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Alvarleg staða drengja í menntakerfinu

    Víðtæk greining á stöðu drengja í íslenska menntakerfinu sýnir alvarlega stöðu sem bregðast þarf við. Þetta er niðurstaða skýrslu sem Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynntu á blaðamannafundi í dag. Í skýrslunni er farið yfir helstu áhrifaþætti og lagðar fram tillögur til úrbóta.

    04. jún. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Verk- og starfsnámsaðstaða við Fjölbrautaskóla Suðurnesja stækkar um allt að 1.900 fermetra

    Allt að 1.900 fermetra stækkun verk- og starfsnámsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ mun rísa á næstu árum samkvæmt samningi sem var undirritaður í dag milli mennta- og barnamálaráðuneytisins og sveitarfélaga á Suðurnesjum.

    31. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um styrki til flugskóla

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá flugskólum á Íslandi um styrki til þess að halda úti bóklegum hluta atvinnuflugmannsréttindanáms. Heildarúthlutun verður allt að 30 milljónum króna.

    30. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Sprotasjóði 2024

    Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 59,8 m.kr. til 32 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2024–2025. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu í dag.

    30. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkir til kennslu grunnnáms í listdansi 2024

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki vegna grunnnáms listdansskóla fyrir skólaárið 2023–2024. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Þeir skólar sem geta sótt um styrk þurfa að kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Heildarstyrkfjárhæð er 25.300.000 kr. sem mun skiptast niður eftir heildarfjölda nemenda þeirra skóla sem sækja um styrk og uppfylla fyrrgreint skilyrði.

    27. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Soffía Sveinsdóttir skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Soffíu Sveinsdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

    24. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýtt húsnæði fyrir meðferðarheimilið Lækjarbakka

    Meðferðarheimili Barna- og fjölskyldustofu, Lækjarbakki á Rangárvöllum, hefur fengið nýtt húsnæði. Heimilinu var lokað í apríl vegna myglu. Það mun hefja starfsemi á nýjum stað í Hamarskoti í Flóahreppi í næsta mánuði.

    22. maí 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Grindavík, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Framkvæmdanefnd skoðaði aðstæður í Grindavík

    Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ kynnti sér aðstæður í Grindavík í gær.

    22. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um styrki í þágu farsældar barna

    Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem varða farsæld og samfélagslega virkni, þar á meðal menntun, frístundir, íþróttir, vernd og réttindi barna, í þjónustu við börn og fjölskyldur, m.a. forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir og þjónustu er miðar sérstaklega að börnum í viðkvæmri stöðu og þ.m.t. börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

    22. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Endurnýjaðir samningar um rekstur Fab Lab smiðja á Íslandi

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt fleirum, undirrituðu í gær nýjan samning um Fab Lab Reykjavík. Samningurinn gildir til þriggja ára og er sameiginlegur með ráðuneytunum og Reykjavíkurborg. Undirritun þessa samnings er sú fyrsta í röðinni í því ferli að endurnýja samninga við alls 11 Fab Lab smiðjur víðs vegar um landið.

    17. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Verknámsaðstaða Verkmenntaskólans á Akureyri stækkar um allt að 1.500 fermetra

    Allt að 1.500 fermetra viðbygging fyrir verk- og starfsnám mun rísa við Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA). Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði samning þess efni við sveitarfélögin við Eyjafjörð í dag.

    17. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vesturland fyrsti landshlutinn til að sameinast um svæðisbundið farsældarráð

    Vesturland er fyrsti landshlutinn til að sameinast um svæðisbundið farsældarráð. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði samning þess efnis við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi í gær.

    16. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Bætt og samræmd móttaka og menntun barna af erlendum uppruna

    Mennta- og barnamálaráðherra, borgarstjóri og forstjóri nýrrar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu undirrituðu í gær samkomulag um þróunarverkefnið Menntun Móttaka Menning (MEMM). Því er ætlað er að stuðla að inngildingu og virkri þátttöku barna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.

    12. maí 2024Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýtt vefviðmót um laun kennara og skólastjórnenda í Evrópu

    Út er komið vefviðmót um laun kennara og skólastjórnenda í Evrópu á vegum Eurydice-samstarfsins. Með vefviðmótinu er hægt að bera saman kjarasamningsbundin laun og heildarlaun kennara og skólastjórnenda í Evrópu 2022–2023 m.t.t. kaupmáttar í þátttökuríkjunum, menntunar og starfsreynslu.

    09. maí 2024Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Menntaþing 2024

    Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til Menntaþings mánudaginn 30. september kl. 9:00–16:00 á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi. Á þinginu verður rætt um stöðu menntakerfisins, yfirstandandi breytingar og næstu skref í menntaumbótum með kynningu á fyrirhugaðri 2. aðgerðaáætlun í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Niðurstöður samtalsins verða nýttar við endanlega mótun áætlunarinnar.

    04. maí 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skrifað undir stækkun á verk- og starfsnámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

    Mennta- og barnamálaráðuneytið og sveitarfélög á Norðurlandi vestra skrifuðu í dag undir samning um allt að 1.400 fermetra stækkun á verk- og starfsnámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki.

    30. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Áfram Ísland! Tillögur að fyrirkomulagi afreksstarfs

    Skýrsla starfshóps mennta- og barnamálaráðuneytisins um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks var kynnt á blaðamannafundi í Laugardalshöll í dag. Hlutverk starfshópsins var að yfirfara og leggja til breytingar á fyrirkomulagi, löggjöf og öðru sem hópurinn taldi þurfa til að stuðningur við afreksíþróttafólk á Íslandi verði í fremstu röð. Hópurinn hefur skilað meðfylgjandi skýrslu þar sem staða og umgjörð afreksíþrótta á Íslandi er greind og settar fram tillögur að nýrri nálgun í afreksmálum og aðgerðum til nokkurra ára.

    29. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Alþjóðlegur leiðtogafundur um málefni kennara (ISTP) verður haldinn í Reykjavík vorið 2025

    Alþjóðlegur leiðtogafundur um menntamál og málefni kennara (ISTP) verður haldinn í Reykjavík í mars 2025. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn á nýafstöðnum leiðtogafundi sem fram fór í Singapore í liðinni viku. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tók við keflinu úr höndum Chan Chun Sing menntamálaráðherra Singapúr.

    29. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mælaborð um farsæld barna opnað

    Mælaborð farsældar barna, nýtt verkfæri við innleiðingu farsældarlaga og gagnadrifinnar stefnumótunar um hag barna, var opnað við hátíðlega athöfn í dag.

    28. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Allt er hægt á íslensku: sigurvegari í efniskeppni vandamálaráðuneytisins

    Metnaðarfullt og skemmtilegt myndband þar sem fjölbreyttir hæfileikar þátttakenda njóta sín, auk íslenskrar tungu. Endursköpun flókins kvikmyndaatriðis er leyst með miklu hugmyndaflugi, sköpunarkrafti og natni við smáatriði þar sem öllum brögðum er beitt. Ástríða fyrir viðfangsefninu leynir sér ekki, það er allt hægt á íslensku!

    26. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Opnun mælaborðs farsældar barna

    Þann 29. apríl kl 9:00-09:45 býður mennta- og barnamálaráðuneytið til kynningar á Mælaborði farsældar barna, nýju verkfæri sem er hannað til að styðja við innleiðingu farsældarlaganna og innleiða gagnadrifna stefnumótun hvað hagi barna varðar.

    22. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Kópavogi

    Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust 7 umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Kópavogi

    22. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ráðstefna um gæði og jafnræði í kennsluháttum á Norðurlöndum á sviði stærðfræði og náttúruvísinda. Norræn greining á TIMSS gögnum.

    Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að komið er út nýtt rit um stærðfræði- og náttúrufræðikennslu á Norðurlöndum.

    18. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nám í alþjóðlegum menntaskóla í Noregi

    Mennta- og barnamálaráðuneytið styrkir árlega einn íslenskan nemanda til náms við Alþjóðlega menntaskólann (e. Red Cross Nordic United World College) í Flekke í Noregi.

    • First
    • Prev
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband