Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 727
    Raða eftir:
    05. des. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Borgaraþjónusta, Evrópusamvinna, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Alþjóðasamningar, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Rit og skýrslur

    Skýrsla utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkis- og alþjóðamál

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flutti árlega skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál fyrir Alþingi.

    03. des. 2025Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Góð reynsla af heimili fyrir bágstaddar stúlkur í Kenía sem Ísland styrkir

    Niðurstöður nýrrar úttektar á vegum utanríkisráðuneytisins, sem framkvæmd var af Verkís verkfræðiskrifstofu, benda til að verkefnið Haven Rescue Home í Kenía, sem utanríkisráðuneytið styrkti með nýliðastyrk fyrir frjáls félagasamtök um fjórar milljónir króna árið 2021, hafi skilað haldbærum árangri.

    02. des. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Úkraínu og norðurslóða í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna

    Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu, staða mála þar og framtíðarhorfur, voru efst á baugi fjarfundar utanríkisráðherra Norðurlandanna sem fram fór í gær. Norðurlöndin eru einhuga um áframhaldandi stuðning við varnarbaráttu landsins og leggja áherslu á að Evrópuríki og Úkraínu verði tryggð sæti við samningaborðið er kemur að mögulegum friðarumleitunum, sem fyrirhugað er að bandarísk stjórnvöld hafi forgöngu um.

    27. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Mikilvægi Íslands í sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins

    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), heimsótti í dag Ísland í sinni fyrstu vinnuheimsókn og átti fundi með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hann skoðaði einnig öryggissvæðið í Keflavík og fundaði með þingmönnum á Alþingi.

    27. nóv. 2025Almannaöryggi, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir í samstarfi við Atlantshafsbandalagið

    Skrifað var undir viljayfirlýsingu í dag um fyrirhugaða uppbyggingu mannvirkja í Helguvík en það er Atlantshafsbandalagið sem fjármagnar framkvæmdirnar.

    24. nóv. 2025Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ, Utanríkisráðuneytið

    Jarðhitaskóli GRÓ útskrifar 23 sérfræðinga

    Jarðhitaskóli GRÓ útskrifaði á dögunum 23 sérfræðinga frá 16 löndum, í 46. útskrift skólans frá stofnun hans árið 1978. Nemendurnir komu frá Afríku, Asíu, S-Ameríku og ríkjum í Karabíska hafinu. Í fyrsta sinn sótti nemandi frá Bútan skólann. Öll voru þau tilnefnd til þátttöku í náminu af hálfu vinnuveitenda sinna vegna mikilvægrar stöðu þeirra heima fyrir við að þróa og auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa.

    21. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Utanríkisráðuneytið

    Opnað fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna Vigdísar

    Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna í nafni Vigdísar Finnbogadóttur. Til verðlaunanna var stofnað í Reykjavík í maí 2023 í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins.

    21. nóv. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Sendiráð Íslands í Brussel, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra mótmælti áformum Evrópusambandsins gagnvart EFTA-ríkjunum innan EES

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra gagnrýndi harðlega ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að beita Ísland og hin EFTA-ríkin innan Evrópska efnahagssvæðisins verndaráðstöfunum vegna innflutnings á járnblendi, á fundi EES-ráðsins sem fram fór í Brussel í gær.

    20. nóv. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Innviðaráðuneytið

    Árangursríkar samningaviðræður á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar

    Talsverður árangur náðist um aukin flugréttindi við endurskoðun og uppfærslu tiltekinna loftferðasamninga á loftferðasamningaráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, ICAN 2025, sem samninganefnd Íslands sótti í bænum Punta Cana í Dóminíska lýðveldinu, 10. til 14. nóvember síðastliðinn. Afraksturinn er meðal annars einföldun ferðalaga Íslendinga til fjarlægra slóða með íslenskum flugfélögum, en samninganefndin átti jafnframt gagnlega fundi varðandi möguleika íslenskra flugrekenda á flutningi farms erlendis.

    18. nóv. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Sendiráð Íslands í Varsjá, Utanríkisráðuneytið

    Samkomulag undirritað við Búlgaríu vegna Uppbyggingarsjóðs EES

    Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Búlgaríu, undirritaði í dag samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021–2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Búlgaríu hins vegar.

    17. nóv. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heimsækir Ísland

    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er væntanlegur í vinnuheimsókn til Íslands 27. nóvember næstkomandi. Er þetta fyrsta heimsókn Mark Rutte til Íslands í stöðu framkvæmdastjóra sem hann tók við af Jens Stoltenberg í október 2024.

    14. nóv. 2025Utanríkismál, Mannréttindaráð SÞ, Mannréttindi, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkisráðuneytið

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir voðaverk í Súdan

    Ísland, sem á sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, var meðflutningsaðili ályktunar sem samþykkt var á sérstökum aukafundi ráðsins í dag um alvarlega stöðu mannréttinda í El Fasher og nágrenni í Súdan.

    13. nóv. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Öryggismál og stuðningur við Úkraínu í brennidepli á fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna

    Haustfundur varnarmálaráðherra Norðurlandanna (NORDEFCO) fór fram í Helsinki í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum. Norrænt varnarsamstarf, þróun öryggismála í Evrópu og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu voru efst á baugi fundarins þar sem yfirmenn hermála Norðurlandanna voru jafnframt viðstaddir. Þá áttu norrænu varnarmálaráðherrarnir fund með kollegum sínum frá Eystrasaltsríkjunum í dag.

    12. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Neðansjávarfar til að efla eftirlit við strendur Íslands afhent Landhelgisgæslunni

    Landhelgisgæsla Íslands tók formlega á móti ómannaða neðansjávarfarinu GAVIA AUV frá Teledyne Gavia í dag. Um samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands og utanríkisráðuneytisins er að ræða en Háskóli Íslands færði Landhelgisgæslunni farið til eignar fyrr á árinu.

    11. nóv. 2025Utanríkismál, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Freetown, Utanríkisráðuneytið

    Jafnréttis- og barnamálaráðherra Síerra Leóne í heimsókn á Íslandi

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fund með Dr. Isata Mahoi, jafnréttis-og barnamálaráðherra Síerra Leóne í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í vikunni. Dr. Mahoi heimsótti Ísland í tilefni af Heimsþingi kvenleiðtoga í Reykjavík og þá sótti hún jafnframt málþing um konur, frið og öryggi sem fram fór í Háskóla Íslands.

    07. nóv. 2025Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið

    Ísland og EFTA-ríkin ljúka viðræðum við Singapúr um stafrænt hagkerfi

    EFTA-ríkin, það er Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss, hafa komist að samkomulagi við Singapúr um samning um stafrænt hagkerfi. Samkomulagið verður hluti af fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Singapúr, sem hefur verið í gildi frá árinu 2003.

    07. nóv. 2025Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Flutningar forstöðumanna sendiskrifstofa

    Flutningar forstöðumanna sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni standa nú fyrir dyrum. Um er að ræða reglubundna flutninga sem jafnan eru ákveðnir að hausti en tilkynntir þegar samþykki gistiríkja liggja fyrir.

    04. nóv. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Málefni Úkraínu í brennidepli í ferð ráðherra til Brussel

    Möguleg fjölþjóðleg stuðningsaðgerð til handa Úkraínu, áframhaldandi varnartengdur stuðningur við varnarbaráttu landsins og samstarf innan sameiginlegu viðbragðssveitarinnar JEF voru til umræðu á fundum varnarmálaráðherra sem fram fóru í Brussel í dag og í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundunum.

    04. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Samráðshópur þingmanna vegna mótunar öryggis- og varnarstefnu hefur störf

    Í tengslum við mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands hefur utanríkisráðherra skipað samráðshóp þingmanna sem tilnefndir eru af þingflokkum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Hlutverk samráðshópsins er að fjalla um inntak og áherslur öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland.

    04. nóv. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarviðræðum við Malasíu lokið

    EFTA-ríkin, Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss, hafa náð samkomulagi um fríverslunarsamning við Malasíu. Fríverslunarsamningurinn opnar tækifæri fyrir aukin viðskipti milli Íslands og Malasíu með niðurfellingu tolla á vörum og auknum tækifærum fyrir þjónustufyrirtæki og fjárfesta.

    03. nóv. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Dómsmálaráðuneytið

    Utanríkisráðherra boðar stefnumótun og aðgerðir í varnarmálum

    Utanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í dag tillögu að mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024 kemur fram að mótuð verði öryggis- og varnarmálastefna. Stefnunni er ætlað að lýsa helstu öryggisáskorunum til lengri og skemmri tíma með áherslu á ytri ógnir og draga fram markmið Íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi, fjalla um nauðsynlegan varnarviðbúnað, og skipulag og getu sem þurfi að vera til staðar á Íslandi, auk þess að benda á hugsanlegar umbætur á laga- og stofnanaumgjörð varnarmála.

    29. okt. 2025Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra sótti þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi

    Þing Norðurlandaráðs í ár er það sjötugasta og sjöunda í röðinni og er haldið í Stokkhólmi að þessu sinni. Í tengslum við þingið fundaði utanríkisráðherra m.a. með norrænum kollegum sínum og sameiginlega funduðu þau með Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands.

    22. okt. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skrifað undir tvísköttunarsamning við Nýja-Sjáland

    Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Nýja-Sjálands var undirritaður í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd Íslands og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands.

    19. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Undirrituðu viljayfirlýsingu á sviði varnarmála

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, undirrituðu í dag tvíhliða viljayfirlýsingu um varnarmál í tengslum við heimsókn Pistoriusar til Íslands.

    17. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra fundaði með formanni hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins

    Á fundinum voru öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum helst til umræðu, en einnig var farið yfir vaxandi framlag Íslands innan Atlantshafsbandalagsins og stuðning við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu innrásarstríði Rússlands.

    17. okt. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Forsætisráðuneytið

    Nýr forgangslisti vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti í morgun nýjan forgangslista vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB) að undangengnu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis og opnu samráði við hagaðila í samráðsgátt stjórnvalda.

    17. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Utanríkisráðherrar Íslands, Færeyja og Grænlands á sameiginlegum fundi

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag þríhliða fund með starfssystrum sínum frá Færeyjum og Grænlandi, þeim Sirið Stenberg og Vivian Motzfeldt.

    17. okt. 2025Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið

    Pólitískt samráð við Chile

    Skrifað var undir viljayfirlýsingu um samstarf á sviði jafnréttismála milli Íslands og Chile í tengslum við pólitískt samráð sem fram fór milli landanna í vikunni.

    16. okt. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áskoranir þróunarríkja og alþjóðahagkerfisins efst á baugi á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

    Staða og horfur í alþjóðahagkerfinu, samstaða með Úkraínu og atvinnusköpun í þróunarríkjum voru meðal umræðuefna á ársfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans sem fram fara í Washington, D.C. í vikunni.

    15. okt. 2025Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu eflingu loftvarna og stuðning við Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins komu saman til fundar í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum en hann fór fram í skugga vaxandi eldflauga- og drónaárása Rússlands gegn Úkraínu, lofthelgisbrota í Póllandi og Eistlandi og aukinna fjölþáttaaðgerða.

    14. okt. 2025Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Utanríkisráðuneytið

    Samkomulag undirritað við Lettland vegna Uppbyggingarsjóðs EES

    Samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Lettlands hins vegar, var undirritað í Riga í síðustu viku. Í framhaldinu hefst undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Lettlandi á nýju sjóðstímabili 2021-2028.

    12. okt. 2025Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindaráð SÞ, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra kynnti áherslur Íslands í mannréttindamálum

    Alþjóðlegi mannréttindadagurinn er í dag, 10. desember, en af því tilefni hefur utanríkisráðuneytið tekið saman upplýsingar um áherslur og aðgerðir Íslands í mannréttindamálum á alþjóðavettvangi.

    12. okt. 2025Rit og skýrslur, Mannréttindi og jafnrétti, Alþjóðamál, Mannréttindaráð SÞ, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Áherslur og aðgerðir Íslands í mannréttindamálum á alþjóðavettvangi

    Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um helstu áherslur og aðgerðir Íslands í mannréttindamálum á alþjóðavettvangi. Þessi samantekt veitir yfirsýn yfir mikilvægt starf á sviði mannréttinda.

    11. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra tók þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga

    Ráðherra tók þátt í opnunarviðburði Heimsþings kvenleiðtoga, fundaði með aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu og flutti einnig opnunarávarp á málþingi í tilefni af aldarfjórðungsafmæli ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 um konur, frið og öryggi.

    11. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Beiðni Vélfags um framlengingu á undanþágu synjað

    Utanríkisráðuneytið hefur synjað beiðni Vélfags ehf. um frekari framlengingu á tímabundinni undanþágu frá þvingunaraðgerðum og hefur stjórnendum Vélfags verið tilkynnt um ákvörðunina.

    08. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga NB8-ríkjanna um Úkraínu

    Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) til stuðnings Úkraínu.

    08. okt. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing átta utanríkisráðherra

    Utanríkisráðherrar Íslands, Írlands, Lúxemborgar, Möltu, Noregs, Portúgals, Slóveníu og Spánar fordæma ákvörðun ísraelskra stjórnvalda að útvíkka hernaðaraðgerðir sínar og hernám á Gaza.

    07. okt. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra heimsótti USS Newport News í Grundartangahöfn

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra heimsótti bandaríska kafbátinn USS Newport News, í höfninni á Grundartanga í dag. Um er að ræða reglulega þjónustuheimsókn kjarnorkuknúna bandarískra kafbáta á Íslandi, en þá fyrstu sem fram fer í höfn. Áhöfn USS Newport News telur um 140 einstaklinga, en báturinn er Los Angeles-gerðar og ber ekki kjarnavopn.

    06. okt. 2025Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið

    Ísland ætlar að efla vernd vistkerfa í hafi

    Ísland ætlar að vernda vistkerfi í hafi með hliðsjón af alþjóðlegum markmiðum um vernd 30% hafsvæða fyrir 2030. Þetta kom fram í ræðu Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á Hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nice í Frakklandi í dag.

    01. okt. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu áréttaður

    Varnarmálaráðherrar ríkja sem styðja varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) funduðu í gær um stöðuna á vígvellinum og stuðning ríkjanna við baráttu íbúa Úkraínu gegn innrásarstríði Rússlands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn í beinu framhaldi af heimsókn sinni til Kænugarðs þar sem hún ræddi við ráðamenn og kynnti sér afleiðingar stríðsins.

    26. sep. 2025Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Kampala, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við unglingsmæður og börn þeirra í Úganda skilar árangri

    Hátt í þúsund fátækar mæður á unglingsaldri og börn þeirra njóta góðs af fjárstuðningi í tengslum við verkefni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úganda sem Ísland fjármagnar. Stuðninginn nota stúlkurnar til að skapa lífsviðurværi fyrir sig og börn sín. Með verkefninu er freistað að rjúfa þann vítahring sem ungar mæður og börn þeirra festast í.

    24. sep. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Atvinnuvegaráðuneytið, Fastanefnd Íslands í Róm

    Ísland og FAO undirrita nýjan samstarfssamning

    Íslensk stjórnvöld og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hafa undirritað nýjan samstarfssamning til þriggja ára, sem ætlað er að efla samstarf Íslands og stofnunarinnar. Samningurinn var undirritaður miðvikudaginn 24. september í Safnahúsinu af Dr. QU Dongyu forstjóra FAO, sem er í stuttri heimsókn á Íslandi ásamt sendinefnd, og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í fjarveru Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem stödd er á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York.

    23. sep. 2025Sendiráð Íslands í Vín, Utanríkisráðuneytið

    Samkomulag undirritað við Króatíu vegna Uppbyggingarsjóðs EES

    Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Króatíu, undirritaði í dag samkomulag varðandi nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liectenstein og Noregs annars vegar og Króatíu hins vegar. Nú hefst undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Króatíu á nýju sjóðstímabili 2021-2028.

    22. sep. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja 80. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í þessari viku. Í dag sátu þær sérstakan hátíðarviðburð í tilefni áttatíu ára afmælis samtakanna, fundað var með Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóra og síðar í dag fer fram sérstakur leiðtogafundur um tveggja ríkja lausnina í Mið-Austurlöndum.

    19. sep. 2025Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ísland tekur þátt í að „rampa upp Úkraínu“

    Samningur um 60 milljóna króna stuðning íslenskra stjórnvalda við verkefnið „Römpum upp Úkraínu,“ næstu fjögur árin var undirritaður í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í gær. Forvígismaður verkefnisins, Haraldur Þorleifsson, réðst sem kunnugt er í sambærilegt verkefni hér á landi fyrir nokkrum árum, sem leiddi til þess að tæplega tvö þúsund aðgengisrampar voru byggðir víðsvegar um land.

    19. sep. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Frumvarp um innleiðingu BBNJ samningsins í samráðsgátt

    Stjórnvöld hafa birt drög að frumvarpi um innleiðingu á lagalegum skuldbindingum „BBNJ-samningsins“ (e. Biodiversity beyond national jurisdiction), um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja, í Samráðsgátt stjórnvalda.

    18. sep. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Kynntu sér mikilvægt framlag Íslands til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins

    Mannvirkjasjóðsnefnd Atlantshafsbandalagsins heimsótti Ísland á dögunum og fékk kynningu á varnarmannvirkjum og innviðum, og framlagi Íslands til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins. Skoðaði nefndin sig m.a. um á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og heimsótti Grindavík og ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli.

    17. sep. 2025Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Fríverslunarsamningur EFTA og Mercosur undirritaður

    Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna fjögurra, Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss, og Mercosur-ríkjanna, sem samanstanda af Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrugvæ, var undirritaður við hátíðlega athöfn í Ríó de Janeiro í gær.

    15. sep. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra styrkti böndin á Grænlandi og fylgdist með varnaræfingu

    Heimsókn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra til Grænlands lauk í dag en hún var mikilvægur liður í samstarfi Íslands og Grænlands hvað varðar norrænt samráð um öryggis- og varnarmál. Þá átti utanríkisráðherra tvíhliða fund með Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, þar sem málefni norðurslóða, áskoranir sem svæðið stendur frammi fyrir og tækifæri til frekara samstarfs ríkjanna í ört breytilegum heimi var til umræðu.

    15. sep. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Utanríkisráðuneytið

    Alþjóðasamningur um ríkisstyrki í sjávarútvegi tekur gildi

    Samningur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um takmörkun ríkisstyrkja í sjávarútvegi tók gildi í dag þegar tilskyldum fjölda aðildarríkja, sem hafa fullgilt hann, var náð. Ísland var eitt af fyrstu aðildarríkjum stofnunarinnar til að fullgilda samninginn og tilkynnti formlega um það 23. maí 2023.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband